Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Page 9
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
DV
_______2
Fréttir
Upplýsingar ríkissaksóknara um dóma í sakamálum:
Þyngsta refsing var fimmtán mán
aða fangelsi fyrir kynferðisbrot
í mars 2003 bárust ríkissaksókn-
ara samtals 264 dómar og viður-
lagaákvarðanir frá héraðsdómstól-
um þar sem ákærðir voru 288 ein-
staklingar. Af þeim voru 4 alfarið
sýknaðir en 284 voru sakfelldir að
öllu leyti eða að hluta.
Þyngsta refsing var 15 mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot. 32
einstaklingar voru dæmdir í óskil-
orðsbundið fangelsi en 51 í skil-
orðsbundið fangelsi að öllu leyti
eða að hluta. Flestir voru ákærðir
fyrir umferðarlagabrot, eða 148
einstaklingar. Refsing þeirra var
yfírleitt sekt ásamt sviptingu öku-
réttinda. Sektir í slíkum brotum
námu rúmum 11 milljónum króna.
99 einstaklingar voru ákærðir
fyrir brot á almennum hegningar-
lögmn og voru 95 þeirra sakfelldir
en 4 sýknaðir. í flestum tilvikum
var refsing ákveöin fangelsi. í 20
tilvikum var fangelsisrefsing
óskilorðsbundin en í 42 tilvikum
var hún skilorðsbundin að hluta
eða að öllu leyti. Sektir vegna
hegningarlagabrota námu rúmum
6 milljónum króna.
Alls var 41 einstaklingur ákærð-
ur fyrir önnur sérrefsilagabrot en
umferðarlagabrot og voru brot
gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf-
inni algengust í þeim flokki. Sak-
fellt var í öllum tilvikum nema
einu og í flestum tilvikum voru
ákærðu dæmdir til greiðslu sekt-
ar. Námu þær 2,4 milljónum
króna. -EKÁ
DV-MYND HILMAR ÞOR
Mörg eru mannanna verk
Þaö þarf víöa að taka til hendinni í samfélaginu. Þessi sjómaöur var aö
ganga frá netunum í Reykjavíkurhöfn í leiðindaveöri í gærdag og fórst það vel
úr hendi þrátt fyrir suöaustanbálið.
SEBOGHEYRT
Héraðsdómur N-eystra:
Sleppt við refsingu
vegna þjófnaðar
Héraðsdómur Norðurlands
eystra taldi ekki skilyrði til að
dæma mann á þrítugsaldri í frek-
ari fangelsisvist fyrir þjófnað en
hann afplánar nú tveggja og hálfs
árs dóm vegna kynferðisbrota og
þjófnaðar sem framin voru á ár-
unum 1999 til 2002. Maðurinn var
ákærður í febrúar 2003 fyrir að
hafa stolið þremur Playstation II
leikjatölvum og fimmtán DVD-
diskum úr verslun Pennans-Bóka-
vals á Glerártorgi á Akureyri.
Hann játaði skýlaust sakargiftir
fyrir dómi og í ljósi þess og fang-
elsisvistar hans þótti dómara
ekki skilyrði fýrir því að dæma
hann til frekari fangelsisvistar og
honum var því ekki gerð sérstök
refsing í þessu máli. Hann var
hins vegar látinn greiða allan
sakarkostnað, þar með talda
40.000 króna málflutningsþóknun
skipaðs verjanda hans. -EKÁ
Héraðsdómur N-eystra:
Skilonðsbundið
fangelsi fyrir hús-
brot og líkamsárás
Héraðsdómur Norðurlands
eystra hefur dæmt mann í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir húsbrot og líkamsárás.
Hafði maðurinn ruðst heimildar-
laust inn í íbúð fyrrverandi sam-
býliskonu sinnar í nóvember 2002
og veist að henni þegar hún vís-
aði honum út. Hrinti hann henni,
greip um hár hennar og sneri
upp á handleggi hennar þannig
að hún hlaut marbletti á báðum
upphandleggjum. Þegar lögreglan
kom á vettvang og handtók
manninn voru tvö ung börn hans
og konunnar í íbúðinni. Maður-
inn viðurkenndi skýlaust fyrir
dómi að hafa brotist inn og veist
að kommni. Hann hefur tvívegis
gerst sekur um umferðarlagabrot
og einu sinni áður verið dæmdur
í sekt fyrir húsbrot. -EKÁ