Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Page 15
15
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
PV.......................................... ............................ Útlönd
íbúar Bagdad vöknuðu upp við
sprengingar og skothríð í morgun
- eftir aö hafa verið frelsaöir undan yfirráöum ógnarstjórnar Saddams
Bandarískar skriðdrekasveitir hafa
tekið sér stöðu í hjarta Bagdad eftir
sögulegan dag í gær sem markaði
endalok 24 ára ógnarstjómar Sadd-
ams Husseins i landinu.
Fljótlega eftir að bandarísku her-
sveitirnar höfðu komið sér fyrir í mið-
borginni í gærdag hópuðust íbúar
borgarinnar saman við Shahid-torg
þar sem sex metra hárri styttu af
Saddam Hussein forseta var steypt af
stalli með hjálp bandarísku hermann-
anna og var atburðurinn, sem þótti
bæði táknrænn og dramatískur, sýnd-
ur í beinum sjónvarpsútsendingum
víða um heim.
Fólkið sýndi Saddam lítilsvirðingu
sína með því að traðka á styttunni og
eftir alit stappið sást hvar höfuð stytt-
unnar var dregið af nokkrum karl-
mönnum um götur i nágrenninu.
Bandarísku hersveitimar streymdu
inn í miðborgina úr ýmsum áttum
fram eftir degi í gær og stefhdi megin-
hluti heraflans inn í Saddam-hverfi á
austurbakka Tígris og yflr fljótið tO
Hersveitum Bandaríkjamanna fagnaö.
í gær
vesturs þar sem það sameinaðist inn-
rásarliðinu sem hóf innrásina í mið-
borgina á mánudaginn.
Þúsundir bandarískra hermanna
eru nú í miðborginni og hafa þeir
tryggt yfirráð yflr helstu lykOsvæðum
og brúm sem tengja saman vestur- og
austurbakka Tígrisfljótsins og hófust
aðgerðir strax í morgun við að vikka
yfirráðasvæðið enn frekar út í nálæg
borgarhverfi.
Eftir fagnaðarlætin í gær vöknuðu
íbúar Bagdad upp í morgun við
sprengingar og skothveOi en bardagar
höfðu þá blossað upp í norðaustur-
hluta borgarinnar þar sem bandarísk-
ar hersveitir höfðu ráðist tO atlögu
við sveitir Lýðveldisvarðar Saddams,
sem enn halda uppi mótspyrnu.
Bandarískar sprengjuvélar voru
þegar sendar á vettvang og mátti
heyra öflugar sprengingar fram eftir
morgni en írakar svöruðu loftárás-
unum með öflugri loftvamaskothríð á
vélar BandarOíjamanna.
Hættir í bili
Starfsmaður Rauöa krossins lést í
skothríö í Bagdad á þriöjudag og
hafa samtökin hætt allri starfsemi
sinni þar um stundarsakir.
Rauði krossinn hættir
störtum í Bagdad
Alþjóðanefnd Rauða krossins
hefur hætt öllu starfi sínu í
Bagdad um stundarsakir vegna
ótryggs ástands í borginni.
Kanadískur starfsmaður Rauða
krossins, sem hafði verið saknað
frá því á þriðjudag, fannst skot-
inn til bana í gær. Bíllinn sem
hann var í hafði lent í skothríð
stríðandi fylkinga.
„Vegna upplausnarástandsins
sem ríkir í borginni er mjög
hættulegt að ferðast frá einum
stað til annars," sagði í yfirlýs-
ingu sem Rauði krossinn sendi
frá sér.
Alþjóðanefnd Rauða krossins
var ein fárra alþjóðastofnana sem
höfðu starfsfólk í írak frá fyrsta
degi stríðsins.
Fundur boðaður um
pólitíska framtíð íraks
Bandarísk stjómvöld hafa boð-
að til fundar á laugardag um póli-
tíska framtíð íraks og þangað
hafa verið kallaðir 43 íraskir
stjómmálamenn. Fjórtán þeirra
hafa búið í útlegð en 29 hafa búið
í sjáifu landinu. Þrír bandarískir
embættismenn stjórna fundinum.
Að sögn Ahmads Chalabis, leið-
toga útlagasamtakanna Þjóðar-
ráðs íraks, verður fundurinn
haldinn á herstöð við Nassiriya.
Bandarískir ráðamenn voru þó
ekki eins vissir um fundarstað.
Helstu samtök sítamúslíma
ætla ekki að koma til fundarins
vegna nærveru bandarískra her-
manna.
REUTERSMYND
Saddam steypt af stalli
Mikill fögnuður braust út í Bagdad, höfuöborg íraks, í gær þegar risastórri styttu af haröstjóranum Saddam Hussein
var steypt af stalli sínum á torgi í miöborginni. írakarnir nutu aöstoöar bandarískra hermanna á bryndreka viö aö fella
styttuna. Viöstaddir notuöu tækifæriö og dönsuðu á styttunni til aö láta fyrirlitningu sína í Ijós.
Hjálparstofnanir hvattar tíl aO
fylnjast meö mannréttlndamálum
Sendimenn Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna hvöttu í gær
óháöar hjálparstofnanir til að
fylgjast með því að mannréttindi
yrðu virt í írak um leið og þær
fengju leyfi til að starfa í landinu.
„Hersveitir bandamanna sem
hafa írak á valdi sínu verða að
fara aö alþjóðalögum. Óháð félaga-
samtök geta verið augu og eyru
ráðsins til að tryggja að alþjóðleg
mannúðarlög séu virt,“ sagði Ad-
olfo Aguilar Zinser, sendiherra
Mexíkó hjá SÞ, í gær.
„Við höfum hvatt þau til að
veita fulltrúum í Öryggisráðinu
allar nauðsynlegar upplýsingar
svo við fáum að njóta óháðs mats
þeirra á því sem er að gerast í
Irak,“ sagði Zinser sem er formað-
REUTERSMYND
Mannréttindi veröl virt
Öryggisráö SÞ segir aö hersveitir
bandamanna veröi aö viröa mann-
réttindi borgaranna í írak.
ur ráðsins í apríl. Fyrr um daginn
höfðu fulltrúar hjálparsamtaka
setið á lokuðum fundi Öryggis-
ráðsins þar sem þeir greindu frá
ástandinu í írak. Fundurinn var
haldinn að imdirlagi sendiherra
Pakistans hjá SÞ og sagði hann að
honum loknum að fulltrúar hjálp-
arsamtakanna hefðu lýst áhyggj-
um sínum af öryggismálum í
írak.
Yvonne Terlingen, fulltrúi
mannréttindasamtakanna Am-
nesty International, sagði að sam-
tökin hefðu hvatt Öryggisráðið til
að koma eftirlitsmönnum með
mannréttindum til íraks hið
fyrsta. Hún hvatti einnig til aö
nefnd yrði látin rannsaka mann-
réttindabrot Saddams Husseins.
Al-Douri segir
að ieiknum sé lokið
Mohammed al-Douri, sendiherra
íraks hjá Sameinuðu þjóðunum,
sagði í gær að leiknum væri lokið
þegar fréttamenn, sem biðu hans við
heimili hans í New York, spurðu
hann um ástandið heimafyrir.
Þegar hann var spurður nánar um
málið sagðist hann ekkert hafa meira
að segja. „Leiknum er lokið og við
vonum að friður komist á sem fyrst.
Það er það eina sem við viljum,"
sagði al-Douri.
Þegar hann var spurður um Sadd-
am sagðist hann ekkert vita þar sem
hann hefði ekkert verið í sambandi
við forsetann. „Ég hef engin tengsl
haft við stjórnvöld í írak í langan
tima og veit því ekkert um ástandið
frekar en þið,“ sagði al-Douri.
Fréttamenn mótmæltu
drápum á félögum
Mikil reiði er í röðum frétta-
manna víða um heim eftir að
bandarískir hermenn drápu þrjá
félaga þeirra í Bagdad á þriðju-
dag. Dick Cheney, varaforseti
Bandaríkjanna, vísaði því alfarið
á bug í gær að bandarískir her-
menn hefðu vísvitandi beint byss-
um sínum að fréttamönnum.
Blaðamenn á Spáni, sem
misstu einn félaga sinn á þriðju-
dag, settu myndavélar, segulbönd
og minnisbækur í hrúgu fyrir ut-
an herbergi þar sem forsætisráð-
herrann fundaði með flokki sín-
um. Þá gengu fréttamenn af fundi
með Jack Straw, utanríkisráð-
herra Breta, í Madríd.
REUTERSMYND
Donald Rumsfeld
Bandaríski landvarnaráöherrann er
enn meö Sýriendinga í sigtinu.
Saka Sýrlendinga um
að aðstoða við flótta
Bandarískir ráðamenn sögðust
í gær hafa vísbendingar um að
Sýrlendingar kynnu að hafa að-
stoðað fjölskyldu og stuðnings-
menn Saddams Husseins íraksfor-
seta við að flýja land.
„Við höfum fengið upplýsingar
um að Sýrlendingar hafi auðveld-
að flutning á fólki frá írak til
Sýrlands," sagði Donald Rums-
feld, landvamaráðherra Banda-
ríkjanna, við fréttamenn.
Rumsfeld sagði síöar að hann
hefði ekki átt við að háttsettir
einstaklingar hefðu flúið'til Sýr-
lands. Þá ítrekaði hann fyrri
ásakanir um að Sýrlendingar
hefðu auðveldað flutning á her-
gögnum til íraks.