Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 16
16 Innkaup FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 DV Fræösluefni til aö setja framan á ísskápinn: Gevmslubol matvæla eftir onnun umbúða Nýtt fræðsluefni, A4-spjald um geymsluþol matvæla eftir opnun umbúða, hefur litið dagsins ljós. Kvenfélagasamband íslands og Leiðbeiningarstöð heimilanna standa að útgáfunni í samstarfi við Hagkaup og Bændasamtök ís- lands. Að sögn Hjördísar Eddu Broddadóttur, framkvæmdastjóra Leiðbeiningarstöövar heimilanna, geymir spjaldið gagnlegar upplýs- ingar um geymsluþol matvæla eft- ir opnun umbúöa ásamt ýmsum mikilvægum upplýsingum um rétta meðferð og geymslu mat- væla. Hjördís Edda segir fyrirspurnir varðandi geymsluþol og rétta með- ferð matvæla vera algengar á Leiðbeiningarstöðinni allan árs- ins hring, einnig varðandi rétta notkun og umgengni við kæliskáp og eins rétt val á umbúðum fyrir kælivörur. „Fólk leitar til okkar með hinar ótrúlegustu fyrirspumir en þekk- ing þess á örverum í umhverfinu getur verið mjög mismunandi. Það skiptir því miklu að upplýsa hinn almenna neytanda. Okkar markmið er að gera neytendur meðvitaðari um mikilvægi þess að geyma matvæli rétt í kæliskáp og það sem skiptir ekki síður máli, að meðhöndla matvæli rétt. Við viljum forðast matarsýkingar og það má auðveldlega gera með rétt- um vinnubrögðum," sagði Hjördís Edda. Spjaldiö Helstu upplýsingar á fræðslu- spjaldinu eru; Tafla um mismunandi geymslu- þol matvæla i kæli, á kjöti, fiski, mjólkurafurðum, eggjum o.fl. eftir opnun umbúða. Mynd af kæliskáp sem sýnir rétta röðun matvæla. Upplýsingar um geymsluþols- merkingar, rétt hitastig í kæli- skáp og fjölgun örvera. Góð umgengni skiptir máli, rétt röðun og regluleg þrif eru mikil- væg. Rétt kæling - vörn gegn matar- sýkingum. Mikilvægi þess að geyma öll matvæli í lokuðum umbúðum. Hreinlæti er nauðsynlegt - tryggir öryggi og geymsluþol mat- væla Útlit vörunnar og lykt þarf alltaf að kanna. Aftan á spjaldinu eru jafnframt upplýsingar um; Umbúðir fyrir kælivöru. Þíðingu frosinna matvæla. Gagnleg ráð um þrif á kæliskáp. Svörin á einum stað „Sumar af þessum upplýsingum má finna í matreiöslubókum en það getur sparað mörg spor að þurfa ekki alltaf að leggja mikla vinnu í upplýsingaleit þegar svara er leitað. Þarna eru saman komn- ar mikilvægar upplýsingar um geymsluþol og meðferð matvæla, allt á einu og sama spjaldinu. Til- valið er að hengja geymsluþols- spjaldið framan á kæliskápinn," segir Hjördís Edda. Hún segir að við vinnslu spjalds- ins hafi fengist góðar ráðleggingar hjá matvælafræðingum á matvæla- sviði hjá Umhverfisstofnun. Einnig var leitað til nokkurra heimilis- fræðikennara. Hjördís Edda segir geymsluþolsspjaldið gagnlegt inn- legg í kennslu í heimilisfræði og öðrum matvælagreinum í grunn- og framhaldsskólum. Geymsluþolsspjaldið er hægt að nálgast í öllum verslunum Hag- kaupa og hjá Leiðbeiningarstöð heimfianna, Túngötu 14. -hlh Egill Skallagrímsson: Nýr páskabjór á mapkað Egils páskabjór, Egils malt páskabjór og Tuborg Páskebryg eru nýjar bjórtegundir sem eru til sölu í verslunum ÁTVR. Egils páskabjór er bragðmikill 5% lagerbjór sem minnir á þýsk- an bjór. Bjórinn býr yfir miklu jafnvægi og fyllingu. Egils malt páskabjór er sætur og dökkur 5,6% maltbjór með mikilli fyllingu og góðu eftir- bragði. Tuborg Páskebryg, sem margir íslendingar þekkja, er 5,7% lag- erbjór. Bjórinn er fallega gylltur með keim af karamellueftir- bragði. Framleiðsla á Egils páskabjór tekur um það bil einn mánuð og fylgjast brugg-meistararnir náið með löguninni á öllum stigum framleiðslunnar. Páskabjórinn verður til sölu í verslunum ÁTVR fram yfir páska og einnig á veitingastöð- um og í veislusölum. -hlh Lögfræðingafélagið: Fypiplestup um neytendavepnd Föstudaginn 11. apríl kl. 12.15-13.15 verður haldinn fyrir- lestur á vegum Lagastofnunar Háskóla íslands þar sem Próf. Dr. Bernhard Eccher frá háskól- anum i Innsbruck í Austurríki mun flytja fyrirlestur á ensku sem nefnist „The liability of the vendor for bad delivery". Hann mun í fyrirlestri sínum m.a. fjalla um tilskipun 1999/44EC „um tiltekna þætti í sölu neyslu- vara og ábyrgð þar að lútandi“. Tilskipun þessi er á sviði neyt- endaverndar og fjallar um ábyrgð þegar vara er ekki í sam- ræmi við gerða samninga. Fyrir- lesturinn verður haldinn i stofu 101 í Lögbergi og eru allir sem áhuga hafa velkomnir. Islandsbanki: Vorfundup um lífeyrismál Vorfundur Islandsbanka um líf- eyrismál verður haldinn á Grand Hótel í kvöld kl. 20. Á fundinum munu starfsmenn íslandsbanka reyna að svara spurningum sem vaknað hafa vegna lágrar ávöxtun- ar á lífeyriseign í vetur. Eigendur lífeyris hafa spurt af hverju starfs- fólk hafi ekki hringt í þá þegar er- lendu hlutabréfin byrjuöu að lækka til að þeir gætu flutt sig, hvers vegna ávöxtun sjóðsins væri svona lág þegar bankinn væri með svona háan hagnað, hvers vegna haldið sé áfram að kaupa erlend hlutabréf í öllu þessu óvissu- ástandi, af hveiju bankinn hafi ekki selt erlendu hlutabréfin, hvers vegna verið sé að kaupa er- lend hlutabréf yfirleitt, hvort verið sé að fjárfesta í áhættufyrirtækj- um, hve mörg ár taki að vinna upp lækkun á inneign og hvernig hægt sé að gera ráð fyrir 5% ávöxtun næstu 10 til 20 árin þegar hún er 7 um þessar mundir. Framsögu flytja Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri ís- landsbanka Eignastýringar, Gunnar Baldvinsson, framkvæmd- arstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, og Ian Alcock, forstjóri Vanguard Group i Evrópu. -hlh Nýjung frá ORA: Sólþuprkaðir tómatan Enn hefur bæst við nýjung í tómatvörulínu ORA, nú sólþurrk- aðir tómatar, sem þykja einstak- lega bragðgóðir og mjúkir. ORA sólþurrkaðir tómatar eru í 340 g glösum og henta vel í salöt, pasta- rétti, súpur, brauðrétti og margt fleira. í ORA-tómatlínunni eru fyrir niðursoðnir tómatar í 5 teg- undum: heilir tómatar, saxaðir tómatar, tómatar með sveppum og hvítlauk, tómatar með papriku og lauk og tómatar með basilíku. > Nýjungar frá Fróni Frón hefur sett á markaðinn fjórar nýjar vörur í tilefni af páskunum. Það eru tvær gerðir af tebollum, tebollur með rúsín- um og tebollur með súkkulaðibit- um. Þá eru tvær gerðir af súkkulaðibitasmákökum, meö appelsínubragði og síðan með kókos. Allar þessar vörur eru í handhægum plastöskjum. Þessar nýjungar verða til sölu yfir hátíð- amar og fást í öllum helstu versl- unum. Páskar í IMóatúni Nú um páskana verður fjöldi vara verður á tilboði í Nóatúni og páskastemning í loftinu. Nóatúns hamborgarhryggur, bayonneskinka, ferskur og fros- inn kalkúni á hagstæðu verði og Argentínu kalkúnafylling er á til- boði. Þá er á boðstólum ferskur lax, páskalamb og útsala er á svínakjöti og kjúklingum. Þá má nefna villibráð eins og hreindýr, skoska rjúpu, fasana og nýjung sem er dúfur og sniglar beint frá Frakklandi. Einnig má benda á mikið úrval af gæða gasgrillum frá Sterling og fylgihlutum fyrir grilliö frá Grill Pro. SímakortílMI Verslanir 11-11 hafa tekið í sölu frelsissímakort fyrir GSM-síma. Er 11-11 að svara mikilli eftir- spurn sem hefur verið eftir slík- um kortum i verslununum. Einnig hafa verið tekin í sölu Heimsfrelsiskort, nýjung sem er 1.000 kr. inneignarskafkort sem hægt er að nota í alla síma bæöi heima, GSM og smámyntarsíma. Með þessu er hægt að tala til út- landa í allt að 260 mínútur. Þessi kort hafa verið vinsæl erlendis og af ferðamönnum sem þurfa að hringja heim. Allar upplýsingar um þetta kort er að finna á www.simakort.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.