Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 DV Garðyrkja Istenskt bipki - harðgert og nægjusamt Birkiö er eina trjátegundin sem hefur myndaö samfelldan skóg hér á landi eftir að ísöld lauk. Nöfnin birki eða björk má rekja aftur í sanskrít og merkja þau hið bjarta eða ljósa tré. Hér er líklega vísan tii hins ljósa stofns trésins. Gerð barkarins er einkennandi fyrir ættkvíslina en hann er rauðbrúnn eða hvít- ur og flagnar i þunnan spæni. Tvær villtar regundir hér á landi Nafnið birki er í raun sam- heiti yfir um 40 mismunandi tegundir, eins og til dæmis ilm- björk (Betula pubescens), fjall- drapa (B. nana), steinbjörk (B. ermanii) og (B. pendula). Birki vex eingöngu á norðurhveli jarðar, sumar tegundir mjög norðarlega og hátt til fjalla. Út- breiðsla þess er um alla norðan- verða Evrópu, langt austur í Asíu og langleiðina að Kyrra- hafi. Hér á landi vaxa tvær tegund- ir villtar, ilmbjörk og fjalldrapi. Einnig er til kynblendingur þessara tegunda sem nefnist skógarviðarbróðir. Erfðabreyti- leiki birkis er mikill og geta tré frá sömu fræmóður verið mjög ólík í vexti og hvað varðar blað- lögun. Þetta sýnir að genabreyti- leiki er mikili þótt líkur bendi tii að hann sé fátæklegri en við landnám. Bent hefur verið á að landnámsmenn hafi líklega höggvið stærstu og bestu trén fyrst og með því móti grisjað úr tré með gen sem báru í sér erfðaeiginleika til mikils vaxtar. Eftir hafa orðið hríslur og kjarr. Fjalldrapi er allur smávaxnari en ilmbjörkin og stundum skrið- ull. Blöðin eru smá og gróftennt. Vilmundur Hansen blaðamaður Garðyrkja llmbjörk Björkin er tré eða runni með þéttum greinum. Bolurinn er hlutfallslega grannur miðað við hæð trésins. Börkurinn er þunn- ur, ljós eða rauðbrúnn, og flagn- ar af stofninum. Ræturnar liggja grunnt og þurfa súrefnisríkan jarðveg og dafna því ekki vel í blautum jarðvegi. Blöðin eru á stilk sem er um helmingur blaðsins á lengd, egg- eða tíg- ullaga og sagtennt. Blómin eru í reklum. Fræin eru lítil hnoð með himnuvæng. Þau eru fislétt og eru um 1,5-2 milljónir fræja í hverju kílói. Þrátt fyrir smæð fræjanna berast þau sjaldan langt frá móðurplöntunni. Þau geymast illa nema við bestu að- stæður. Birki er nægjusöm trjátegund sem getur vaxið við lægri sum- arhita en flestar aðrar trjáteg- undir. Það nær hins vegar ekki góðum þroska nema í frjóum jarðvegi. Hæðarmörk birkis yfir sjó eru um 550 metrar og það verður 80-100 ára gamalt og ætla má að það geti náð 17-18 metra hæð við góðar aðstæður. Birkiskeiðin Birki er eina trjátegundin sem hefur myndað samfelldan skóg hér á landi eftir að ísöld lauk. Almennt er talið að birki hafa lifað af ísaldirnar hér á landi. Það hefur haldist við á íslausum svæöum og breiðst út frá þeim. Fyrir um tíu þúsund árum hlýn- aði snögglega og allur jökull mun hafa horfinn fyrir 8 þúsund árum. Frjógreining sýnir að birki hefur breiðst mjög ört út. Þetta tímabil hefur verið nefnt fyrra birkiskeiðið en fyrir 6-7 þúsund árum jókst úrkoma aft- ur og birkið hörfaði. Birkiskeið- ið síðara var fyrir um það bil 3-4 þúsund árum. Fyrir um fimm þúsund árum var útbreiðsla birkis einna mest hér á landi, þá er talið að hita- stig hafi verið 2-3” C hærra að meðaltali en nú er. En það tók svo að kólna aftur fyrir um 2500 árum. Þessi hækkun á hitastigi gerir birki kleift að vaxa upp í allt að 1100 metra hæð. Út- breiðsla bjarkarinnar hefur ver- ið mjög hröð á þessum hlýinda- skeiðum sem gengið hafa yfir og þá ekki síst fyrir þær sakir aö fram undir landnám voru engir grasbítar hér á landi fyrir utan álftir og gæsir. Maöur og birki Fyrr á tímum var birki notað í ýmsum tilgangi. Úr berkinum má búa til skrautmuni og súta skinn. Seyöið úr berkinum þótti gott við niðurgangi og seyðið var ómissandi gegn magn- og kraftleysi, matarólyst og til að verjast sviða á barnsrössum. Börkurinn þótti einnig góður á brunasár ef hann var blandaður ósöltu smjöri. Besta heimild um birkinytjar er úr bókinni Grasnytjar eftir Bjöm Halldórsson í Sauðlauks- dal og er kaflinn sem hér kemur á eftir tekinn úr henni. „Þegar birki er sært á gegnum börk og allt inn að merg með borjárni þá fá menn lög, sem kallast birkivatn. Gjörist þetta með vaxandi tungli á vori áður en birkið hefur skotið laufum. Menn setja pípu í boruna og rennur þá út þessi vökvi í ker nokkuð, sem undir er sett. Er þá lögurinn líkur mjöð, hunangs- blöndum. Strax sem saftin er út runnin skal reka birkinagla í holuna aftur, því annars er hætt við að tréð deyi. Af því vort birki er svo smátt þá mun það ei vera ómarks vert að taka vatn af því, nema lítið eitt væri til lækninga þar af að fá. Þetta vatn er blóðhreinsandi. Segja menn þaö eyði holdsveiki, gulusótt og fótaveiki, item öllu þeim mein- semdum, sem fylgja blöðru- steini, því það brýtur hann strax og sundurleysir. Birki- vatn, nær það hefur gengið og með sykri, er sælgætisdrykkur og verkar það sem áður er sagt. Taki maður birkibörk, þurrki hann, mylji og hnoði saman við mjöl, baki síðan til brauðs og eti, þá stillir það vel allan blóð- gang. Birkilauf um Jónsmessu tekið gefur ullarlit, en þó betri saman viö jafna. Börkurinn lit- ar vel skinn, líka ullarverk og netgarn. Hefur allt þetta líka þann kost að mölur sækir síður að því, fúnar líka og rotnar langtum seinna. Vor birkibörk- ur dugir eigi til húsþaka fyrir tróð þó hann sé góður þar til í Noregi, af Norðmanna stóru björkum. Ávöxtur birkisins, sem nefnist bjarkan, hefur mjög samandragandi kraft og er því seyði af bjarkaninu þeim gott sem hafa laust líf, og þó betra rauðvin, sem bjarkanið hefur nokkurra stund í legið. Birki- lauf, snemma tekið á vori og vel þurrkað við vind, má brúka í staðinn fyrir tebou [te] og hefur viðlíka verkan. Birkiaska gefur góðan lút til sápu og fleiri hluta. Birkisins tophi cripi, sem Norð- menn kalla rekki en vér viðar- nýru, eru hjá þeim brúkaðir í skósóla og hnífaskafta. Á Kúrlandi gjörðist gulur farfi af birkilaufi, sem kallast al- Ungur nemur Um 7.000 - 8.000 grunnskólabörn víðs vegar á landinu hafa árlega tekið þátt í gróöursetningu á vegum Yrkjusjóðsins. Yrkjusjóður auglýsir umsóknir Harðgert og nægjusamt tré Björkin er tré eöa runni meö þéttum greinum. Bolurinn er hlutfallslega grannur miöaö viö hæö trésins. Börkurinn er þunnur, Ijós eöa rauö- brúnn og flagnar af stofninum. Ræt- urnar liggja grunnt og þurfa súrefnis- ríkan jaröveg og dafna því ekki vel í blautum jarövegi. mennt „skutt-gelb“. Menn taka nýtt og smátt birkilauf, seyða það í katli einn tíma, bæta þar síöan við nokkru álúni og mul- inni krít, sjóða það enn aftur og láta setja sig. Þar eftir hella menn vatninu af en þurrka hið þykka í skugga og brúka síðan eftir þörfum sem annan farfa. Rússar gjöra viðsmjör af birki- berki. Þeir taka þann efsta börk, sem þeir kunna að fá, fylla pott af honum svo allur börkurinn standi upp á endann, láta þar yfir hlemm með gati í miðju, hvolfa þessum potti ofan yfir leirpönnu, bera mó umkring svo ei leggi neina gufu út, kynda síð- an eld umkring pottinn, sem nokkuð lítið skemmist þar við, rennur þá viðsmjörið eða olían gegnum gatið á hlemminum ofan í leirpönnuna. Nýr börkur er hér til ónýtur. Þessi olía gjör- ir góða lykt af þeirra leðri. Nokkrir menn hafa kallað birk- ið skilningstré (góðs og ills), því lim þessa trés er brúkað til að hirta böm með (og stundum þegar miður fer eldra fólk) svo þau fái skilning að greina gott frá illu og illt frá góðu, að þau fylgi þessu en forðist hitt. Það tré, sem þetta verkar, má heita skilningstré. Bæði birkilauf og birkiöskulút ver osta fyrir orm- um og laufið gjörir þá gula að lit ef seyði af því er soðið. Brum og lim birkisins er rétt talið með bestu beitargæðum sauðfjár á vetri og fyrir því gjörir vor lög- bók ráð.“ í tengslum við hýðingar á börnum og gamalmennum með birkigreinum mætti til gamans nefna að hér á landi er búsett finnsk kona sem tók upp á því að rækta finnskt birki þar sem hið íslenska þótti of hart til að nota í vendi til að berja sig með í gufubaði. Auglýstar hafa verið umsóknir í Yrkjusjóð vegna ársins 2003. Allir grunnskólar landsins geta beðið um trjáplöntur í sjóðinn, hvort sem er til gróðursetningar vor eða haust. Um- sóknareyðublöð eru á heimasíðu Skógræktarfélags íslands, www.skog.is undir tenglinum Yrkja. Umsóknarfrestur er til 20. apríl. Núna hefur verið tekin upp sú ný- breytni að láta umsóknarferlið ganga alfarið rafrænt. Sjóðurinn notar árlegar vaxtatekj- ur sínar til þess að kaupa újáplöntur fyrir grunnskólana, en höfuðstóll hans er um 50 milljónir króna. Um 7.000-8.000 grunnskólaböm víðs veg- ar á landinu hafa árlega tekið þátt í gróðursetningu á vegum sjóðsins. Fram til þessa hefur sjóðurinn haft bolmagn til þess að styrkja alla um- sækjendur og nemur styrkurinn 3-6 hjáplöntum á hvem nemenda þannig aö árleg gróðursetning hefur verið á bilinu 30-40 þúsund tijáplönt- ur. Umsjón sjóðsins er í höndum Skógræktarfélags íslands, Ránargötu 18. Nánari upplýsingar fást í síma 551-8150 eða á netfanginu jgp@skog.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.