Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Qupperneq 30
^30
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
9$
Eyfríður Guðjónsdóttlr,
' Víðinesi, Reykjavík.
90 ára
Hólmfríður Þóroddsdóttlr,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
99 ára_________________________________
Gunnar Þóröarson,
Dalbraut 18, Reykjavík.
Helga Kristinsdóttlr,
Holtagerði 2, Kópavogi.
Helgi Vilhjálmsson,
Stórholti 28, Reykjavík.
Laufey Ásgelrsdóttir,
Æsufelli 4, Reykjavík.
90 ára_________________________________
Gunnlaugur Lárusson,
Skeiðarvogi 11, Reykjavík.
75 ára_________________________________
Kristín Jóhannesdóttir,
Árbraut 15, Blönduósi.
Páll Slgurðsson,
Hólmagrund 11, Sauöárkróki.
Páll Þorkelsson,
Laugarvöllum, Selfossi.
Ragnheiöur Jónsdóttir,
Lautasmára 1, Kópavogi.
sjúkraliöi
Ragnheiöur fæddist í Vest-
mannaeyjum og ólst þar
upp. Maður hennar er
Ernst Backman, íþrótta-
kennari, f. 21.10.1920 og börn þeirra
eru Þuríður Backman f. 8.1.1948 og
Jón Rúnar Backman f. 6.1.1951
Ragnheiöur er að heiman á afmælisdag-
inn.
70 ára________________________
Rúnar Sophus Hansen,
Krummahólum 51, Reykjavík.
60 ára________________________
Jóhanna Karlsdóttir,
Víöihlíð 15, Sauöárkróki.
Sigurður Geirsson,
Akraseli 21, Reykjavík.
Sævar Níelsson,
Hlíöargötu 33, Fáskrúösfiröi.
90 árg________________________
-*• Aldís Ebba Eövaldsdóttir,
Hraunbrún 37, Hafnarfiröi.
Grétar Kjartansson,
Njörvasundi 26, Reykjavík.
Guðný Helga Guðmundsdóttir,
Sæviöarsundj 35, Reykjavík.
Ólafur Elías Ólafsson,
Tjarnarmýri 7, Seltjarnarnesi.
Ómar Sigurðsson,
Háaleitisbraut 123, Reykjavík.
40 ára________________________
Alfreö Hatldórsson,
Rauöagerði 35, Reykjavík.
Dýrleif Skjóldal,
Arnarsíöu 4a, Akureyri.
Erling Jóhannesson,
Ögurási 7, Garðabæ.
Halldóra Jóna Sigurðardóttir,
Sunnubraut 30, Garöi.
MÍIarald Pétur Brynjarsson,
Sandholti 4, Ólafsvík.
Hulda Rut Ársæisdóttir,
Viðjugeröi 3, Reykjavík.
Rannveig Guðjónsdóttir,
Fögrubrekku 2, Vopnafiröi.
Regína Sigríður Ólafsdóttir,
Unufelli 46, Reykjavík.
Rúnar Martelnsson,
Suöurgötu 36, Siglufirði.
Sigfús Baldvin Ingvason,
Fagragaröi 8, Keflavík.
Slgríður Guðmundsdóttir,
Hofsvallagötu 19, Reykjavík.
Sigurður S. Gunnlaugsson,
Aðalgötu 13, Sauöárkróki.
Siguröur Sigurösson,
Tröllaborgum 14, Reykjavík.
Vilborg Sverrisdóttlr,
^ Stórhóli 31, Húsavík.
Þorgeir Pálsson,
Múlasíöu 46, Akureyri.
Þór Karlsson,
Klapparstíg 26, Reykjavík.
Andlát
Lárus Þ.J. Blöndal frá Slglufiröi, lést í
Holtsbúö, Garöabæ 8. apríl.
Þorstelnn Magnússon, Svartagili, Norö-
urárdal, lést 6. apríl.
Högni Björn Jónsson, Keldulandi 3, lést
á gjörgæsludeild Landspítalans 5. apríl.
Himinbjörg G. Waage, Löngufit 38,
Garðabæ, lést 29. mars. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Margaret E. Kentta, lést í Edinborg 31.
mars.
Karl Einarsson frá Siglufiröi, Fannarfelli
12, Reykjavík, lést á Landspítalanum
^ viö Hringbraut 26.3. Jaörarförin hefur
fariö fram í kyrrþey.
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
DV
Fólk í fréttum
Svanhildun Óskansdótlin
bókmennta- og textafræðingur
Svanhildur Óskarsdóttir, sér-
fræðingur við Stofnun Árna
Magnússonar, hlaut hvatningar-
verðlaun RANNÍS nú i vikunni.
Starfsferill
Svanhildur er fædd í Reykjavík
13. mars 1964. Hún lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1983 og B.A.-prófi í ís-
lensku og heimspeki frá Háskóla
íslands 1988.
Árið 1989 tók hún M.A.-próf í
miðaldafræðum frá University of
Toronto, Kanada, og árin 1990-93
stundaði hún framhaldsnám i nor-
rænum miðaldabókmenntum við
Háskóla íslands og Kobenhavns
Universitet. Hún tók doktorspróf
(Ph.D.) í norrænum fræðum frá
University of London (University
College London) árið 2000. Ritgerð
hennar heitir Universal history in
fourteenth-century Iceland: Stu-
dies in AM 764 4to. Leiðbeinandi
hennar var prof. emer. Peter
Foote. Fyrir doktorsritgerðina
hlaut hún viðurkenningu úr sjóði
Gjafar Jóns Sigurðssonar 2001.
Svanhildur starfaði með námi
við útgáfustörf hjá bókaforlögun-
um Svörtu á hvítu og Máli og
menningu á árunum 1984-88 og
við ritstjóm Alfræðiorðabókar
Amar og Örlygs 1989-90. Hún var
stundakennari við heimspekideild
HÍ og Fjölbrautaskólann v/Ár-
múla á árunum 1991-92 og Hall-
dórs Laxness-lektor í íslensku nú-
tímamáli og bókmenntum við Uni-
versity College London á árunum
1993-99. Starfsmaður við útgáfu á
kvæðum og sálmum Hallgríms
Péturssonar hjá Stofnun Árna
Magnússonar á íslandi var hún
1999-2001 og jafnframt stunda-
kennari við heimspekideild Há-
skóla íslands.
Frá árinu 2001 hefur hún starf-
að sem sérfræðingur við Stofnun
Áma Magnússonar.
Af öðrum störfum á undanförn-
um árum má nefna að Svanhildur
sá um tilnefningar til íslensku
bókmenntaverðlaunanna í flokki
fagurbókmennta og sat í lokadóm-
nefnd árið 2000. Einnig sat hún í
úthlutunarnefnd starfsstyrkja hjá
Hagþenki - félagi höfunda fræði-
rita og kennslugagna 2000 og 2001
og hefur verið umsagnaraðili á
sviði hugvísinda fyrir Norges
forskningsrád frá 2001.
Þá er hún einn af ritstjórum
Griplu frá 2002 og hefur setið í
undirbúningsnefnd Stóru upp-
lestrarkeppninnar í 7. bekk grunn-
skóla frá 2001.
Svanhildur hefur unnið talsvert
við útvarp og sjónvarp, m.a. lesið
Passíusálma Hallgríms Pétursson-
ar í útvarpiö (1998). Hún tekur um
þessar mundir þátt í bók-
menntaumræðu í sjónvarpsþætt-
inum Mósaík hjá RUV og sér um
Málfarsmínútu Spegilsins á Rás 1.
Hún hefur verið afkastamikil á
ritvellinum og hefur komið að út-
gáfu margra bóka og ritgerða.
Fjölskylda
Systkini Svanhildar eru Árni,
f. 10.8. 1954, bókmenntafræðingur
í Þýskalandi; Jóna Dóra, f. 29.8.
1956, tónlistarmaður; Völundur, f.
29.8. 1956, sagnfræðingur, Aagot
Vigdís, f. 21.10. 1957, lögfræðingur
hjá umboðsmanni Alþingis og
Hrafnkell, f. 3.11.1969, lögfræðing-
ur í iðnaðar-og viðskiptaráðuneyt-
inu.
Foreldrar Svanhildar: Óskar Ó.
Halldórsson, prófessor í íslensk-
um bókmenntum, f. 27.10 1921, d.
11.4. 1983 og Sigrún Árnadóttir,
kennari, þýðandi og starfsmaður
Alþingis. f. 6.9. 1927.
Ætt
Faðir Óskars var Halldór,
bóndi og söðlasmiður í Kóreks-
staðagerði, Hjaltastaðaþinghá, N-
Múl. Einarssonar, bónda og söðla-
smiðs í Hallfreðarstaðarhjáleigu,
Guðmundssonar. Móðir Einars
var Guðrún Rannveig Rasmuns-
dóttir Lynge, ljósmóðir í Flögu í
Skriðdal.
Móðir Óskars var Jóna ljós-
móðir í Kóreksstaðagerði, Jóns-
dóttir, organista, bónda að Skóg-
um í Mjóafirði og síðar kennara á
Seyðisfirði, Árnasonar, b. að Hofi,
Vilhjálmssonar og Þórunnar Ein-
arsdóttur frá Firði. Móðir Jónu
var Ólafía, vinnukona í Firði,
Pálsdóttir, b. Fossi á Síðu, Þor-
steinssonar og Margrétar Ólafs-
dóttur frá Syðri-Steinsmýri.
Faðir Sigrúnar var Ami, hér-
aðslæknir í Vopnafirði Vilhjálms-
son, Guðmundssonar, b. að Ytri-
Brekkum á Langanesi og k.h. Sig-
ríðar Daviðsdóttur, b. að Heiði á
Langanesi, Jónssonar.
Móðir Sigrúnar var Aagot Vil-
hjálmsson, húsfreyja á Vopnafirði
og víðar. Foreldrar hennar voru
Rolf Johansen, kaupmaður og út-
gerðarmaður á Reyðarfirði og
kona hans Kitty Överland, hús-
freyja. Þau voru bæði frá Noregi.
Rolf var sonur Johan Thulin Jo-
hansen, lögræðings í Stafangri og
k. Albínu Johansen húsmóður og
Kitty var dóttir Orm Överland,
lögfræðings sem fór til Ameríku
og k.h. Katrínar Överland, fæddr-
ar Jelsa.
Fólk í fréttum
Benedikt Enlingsson
leikari og leikstjóri
Benedikt Erlingsson er leikstjóri
sýningarinnar Sumarævintýri
Shakespeares sem frumsýnd er í
kvöld í Borgarleikhúsinu.
Starfsferill
Benedikt er fæddur í Reykjavík
31.5.1964 og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MH1991 og útskrif-
aöist frá Leiklistarskóla íslands
1993. Hann starfaði hjá Leikfélagi
Reykjavíkur að útskrift lokinni og
síðar hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi
íslands og sjálfstæðum leikhópum.
Hann tók þátt í fjölmörgum
skemmtiþáttum Fóstbræðra á Stöð
2, sem hlutu Eddu-verðlaunin árið
2000, vann þar m.a. viö handrits-
gerð. Hann hefur leikið í nokkrum
kvikmyndum m.a. Tár úr steini eft-
ir Hilmar Oddsson og Dansinn eftir
Ágúst Guðmundsson. Benedikt
samdi handrit og lék ásamt Hall-
dóru Geirharðsdóttur Ormstungu,
ástarsögu sem frumsýnd var í
Skemmtihúsinu við Laufásveg árið
1996 og var síðar sýnd víða í Evrópu
og tekin upp fyrir sjónvarp. Hjá
Leikfélagi Islands leikstýrði Bene-
dikt Shakespeare eins og hann legg-
ur sig og hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur hefur hann leikstýrt Skáldanótt
eftir Hallgrím Helgason, veturinn
2000/2001, og þremur af sex upp-
færslum á Nýja sviði: Fyrst er að
fæðast, And Björk, of course ... og
nú Sumarævintýri. Hann hefur
einnig leikstýrt í Svíþjóð.
Benedikt lék Galdra-Loft er hann
var nýútskrifaður leikari og Vla-
dimir í Beðið eftir Godot í Borgar-
leikhúsinu haustið 2001.
Fjölskylda
Kona Benedikts er Carlotte Böv-
ing, leikari og leikstjóri, f. 15.8.1964.
Foreldrar hennar eru Tomas Peter-
sen prófessor og Marianne Böving
leikskólakennari.
Dóttir þeirra Benedikts og
Charlotte er Anna Róshildur B. Böv-
ing, f. 27.2. 1999.
Hálfbræður Benedikts eru Guð-
jón, f. 15.12. 1955, tölvuverkfræðing-
ur og Friðrik, f. 4.3. 1962, rithöfund-
ur.
Foreldrar Benedikts eru Erlingur
Gíslason, leikari og leikstjóri, f. 13.3.
1933 og Brynja Benediktsdóttir.
leikari og leikstjóri, f. 20.2.1938.
Ætt
Foreldrar Erlings: Gísli Ólafsson,
bakarameistari i Reykjavík, og k.h.,
Kristín Einarsdóttir, húsmóðir.
Gísli var bróðir Sigurjóns mynd-
höggvara og sonur Ólafs, verkam. á
Eyrarbakka Ámasonar, b. í Þórðar-
koti, Eiríkssonar, b. á Mosastöðum,
Guðmundssonar. Móðir Áma var
Sigríöur, dóttir Ólafs, b. í Hreiður-
borg, Jónssonar. Móðir Ólafs á Eyr-
arbakka var Margrét Gísladóttir, b.
í Hreiðurborg, Halldórssonar, og
Guðnýjar.
Móðir Gísla var Guðrún Gísla-
dóttir, b. í Stokkseyrarseli, Andrés-
sonar, b. í Stóru-Sandvík, Gíslason-
ar, og Elísabetar Kristófersdóttur.
Móðir Guðrúnar var Guðný, dóttir
Hannesar, b. í Tungu i Flóa.
Kristín er dóttir Einars, verslun-
armanns i Reykjavík, Einarssonar,
sjómanns á Melnum í Reykjavík.
Móðir Einars var Sigríður Einars-
dóttir, b. i Stíflisdal, Jónssonar.
Móðir Einars verslunarmanns var
Ingveldur Jónsdóttir.
Móðir Einars versl-
unarmanns var
Kristín Gísladóttir,
b. í Grænuhlíö við
Reykjavík, Péturs-
sonar.
Móöir Kristínar
var Anna Jónsdóttir,
b. i Ártúni, Jónatans-
sonar. Móðir Jóns
var Aðalbjörg Jóns-
dóttir.
Brynja er dóttir
Benedikts Guðjóns-
sonar, kennara og
skólastjóra í Mýrdal
og síðar kennara í
Reykjavík, og k.h.,
Róshildar Sveins-
dóttur, handavinnu-
og jógakennara.
Benedikt var sonur Guðjóns, b. í
Auðsholti, Jónssonar, b. í Syðra-Seli
í Ytrihrepp, Jónssonar.
Móðir Benedikts var Kristjana
Jónsdóttir, formanns í Grímsfjósum
á Stokkseyri, Adolfssonar, Petersen,
verkstjóra í Steinakoti. Móðir Jóns
var Sigríður Jónsdóttir, ríka, hrepp-
stjóra í Vestri-Móhúsum, Þórðarson-
ar, b. á Rekstokki, Pálssonar.
Róshildur var dóttir Sveins, b. á
Norður-Fossi í Mýrdal, Sveinssonar,
pr. í Ásum, Eiríkssonar, hreppstjóra
í Hlíð, Jónssonar. Móðir Sveins var
Sigríður Sveinsdóttir, læknis í Vík,
Pálssonar, og Þómnnar Bjamadótt-
ur landlæknis Pálssonar, og Rann-
veigar Skúladóttur, landfógeta
Magnússonar.
Móðir Róshildar var Jóhanna
Margrét Sigurðardóttir, b. og smiðs
á Breiðabólstað á Síðu, Sigurðsson-
ar, og k.h., Gyðríðar Ólafsdóttur
ljósmóður.
Stefán Jónsson, Sléttuvegi 17, Reykja-
vík, verður jarösunginn frá Grafarvogs-
kirkju 11.4. kl. 15.
Jóhann G. Guðnason, Vatnahjáleigu,
Austur-Landeyjum, veröur jarösunginn
frá Krosskirkju 12. apríl kl. 14.
Helgi Jóhannsson, Þingholtsstræti 30,
verður jarösunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag, kl. 13.30.
Vigdís Þjóöbjarnardóttlr frá Grund i
Reykhólasveit veröur jarðsungin frá
Fossvogskirkju 11. apríl kl. 13.30.
Albert Karl Sanders, Hraunsvegi 19,
Njarövík veröur jarösunginn frá Ytri-
Njarövíkurkirkju 11. april kl. 14.
Hólmfríður Hólmgeirsdóttlr, Byggöavegi
136a, Akureyri, veröur jarösungin 11.4.
kl. 13.30.