Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 33
33 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003_____________________________ DV Tilvera Amber Management Jack Nicholson og Adam Sandler. Reiðistjórnun Helsta frumsýning í Bandarikj- unum um helgina er Anger Management, forvitnileg kvik- mynd meö Jack Nicholson og Adam Sandler í aðalhlutverkum. Fjallar myndin um mann sem læt- ur illa í flugvél. Vegna miskilnings verður hann æstari. Afleiðingin er að hann er sendur á námskeið í reiðistjómun. Þar hittir hann fyrir ráðríkan leiðbeinanda sem Jack Nicholson leikur. Leikstjóri er Pet- er Segal (Nutty Professor II). Yfirlýsingin Sá aldni og virti leikstjóri, Norm- an Jewison, er ekki á þeim buxun- um að hætta. Hann er nú að hefja tökur á The Statement eftir hand- riti Ronalds Harwoods að skáld- sögu Brians Moores. Um er að ræða spennumynd þar sem Michael Caine leikur aðalhlutverkið, nas- istaforingja sem er á flótta. í öðrum hlutverkum eru Tilda Swinton, Jer- emy Northam, Alan Bates, Matt Craven, Charlotte Rampling, John Neville og Ciaran Hinds. Hanks vili endurgera Ikiru Tom Hanks planar langt fram í tímann og eitt verkið sem hann er með í burðarliðnum er að endur- gera Ddru, meistarverk Akira Kurosawa frá árinu 1952. Enginn samúræi er í þessari kvikmynd Kurosawa heldur er aðalpersónan skrifstofublók sem fær vitneskju um að hún sé með ólæknandi krabbamein og fer í kjölfarið að reyna að hafa áhrif á heimsmálin. Að vera Julia Ungverski leikstjórinn Istvan Szabo gerir yfirleitt efnismiklar og dramatískar kvikmyndir (Mephisto, Meeting Venus, Sunshine). Hann.er nú að hefja tökur á einni slíkri, Being Julia,, sem gerð er eftir handriti Ronalds Harwoods (nóg að gera á þeim bæ) sem nýverið fékk óskarsverðlaunin fyrir The Pianist. Skrifar hann handritið eftir skáld- sögu W. Somersets Maughams. í að- alhlutverkum verða Annette Ben- ing og Jeremy Irons. Gwyneth Pal- trow er víst hundónægð með nýjustu kvikmynd sína, View from the Top þar sem hún leikur verð- andi flugfreyju. Henni hefur alltaf gengið betur þegar hún er á óháða markanum og þang- að leitar hún í næstu kvikmynd sem hún leikur í, Happy Ending. í myndinni eru sagðar þrjár sögur sem tengja nokkra einstaklinga saman. Meðal annarra leikara eru Lisa Kidrow og Ray Liotta. Leik- stjóri er Don Roos (The Opposite of Sex). Sleuth Jude Law er nú að reyna að koma á koppinn endurgerð hinnar klassísku sakamálamyndar, Sleuth, sem gerð var 1972 með þeim Laurence Olivier og Michael Caine. Hún var á sínum tíma tilnefnd til óskarsverðlauna sem besta kvik- mynd. í henni lék Caine unga manninn sem Law vill nú leika. Hann vill svo fá Caine til að leika hlutverk Oliviers. Sleuth er upp- runalega gerð eftir leikriti og eru persónur aðeins tvær og var þeim ekki fjölgað í kvikmyndaútgáfunni. Góður endir Bíófrumsýningar Játning furðufugls, stríðsdrama og Rowan Atkinson Það er veisla fram undan fyrir alla unnendur góðra kvikmynda. í dag hefst í Regnboganum kvik- myndaveisla þar sem sýndar verða þrettán úrvalskvikmyndir fram yfir páska. Um er að ræða fjölþjóðlega kvikmyndagerð þar sem allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi. í síðasta mánudagsblaði DV var kynning á þeim kvik- myndum sem í boði eru. Við þessa kvikmyndaveislu bætast svo við þrjár nýjar myndir sem frumsýnd- ar verða á fostudag. Engin mynd- anna er eins ný og breska gaman- myndin Johnny English. Sama dag veröur hún heimsfrumsýnd í London, svo segja má að um heimsfrumsýningin sé einnig hér á landi. Charlotte Gray er drama- tísk kvikmynd sem gerist á stríðs- áfunum og Confession of Danger- ous Mind er gullmoli sem margir hafa hrifist af. Johnny English Rowan Atkinson á marga aðdá- endur hér á landi sem og annars staðar. Það er fyrst og fremst per- sónan Mr. Bean, sem hefur haldið nafni hans á lofti. Fyrir fimm árum var gerð fyrsta kvikmyndin um Mr. Bean og sló hún eftir- minnilega í gegn. Atkinson hefur ekki leikið aðalhlutverk í kvik- mynd fyrr en nú að Johnny Eng- lish lítur dagsins Ijós. Þegar breska leyniþjónustan kemst að því að það eigi að stela skartgripum drottningar er að sjálfsögðu allt sett í gang til að hafa uppi á glæpamönnunum áður en þeim tekst ætlunarverk sitt. Besti njósnarinn er settur í verk- Charlotte Grey Cate Blanchett leikur unga skoska konu sem kemur til London í upp- hafi síöari heimsstyrjaldarinnar. Johnny Engtish Rowan Atkinson er í þjónustu hennar hátignar. Á innfelldu myndinni er popp- dívan Natalie Imbruglia sem leikur njósnara. ið. Sá fær þó ekki tækifæri til að sýna hvað hann getur, er kominn sex fet undir jörðina áður en var- ir. Nú eru góð ráð dýr, enginn njósnari á lausu, nema nýliðinn Johnny English. Allt er hey í harðindum segir máltækið og English fær verkið þótt hæfileik- arnir séu takmarkaðir. Auk Rowan Atkinsons leika í myndinni John Malkovich, Ben Miller, Tim Pigott-Smith og söng- stjaman Natalie Imbruglia sem er að leika fyrsta hlutverk sitt i kvikmynd. Leikstjóri er Peter Howitt (Sliding Doors). Confession of a Dangerous Mind Maður aö nafni Charles Hirsch Barris skrifaði ævisögu sína fyr- ir nokkrum árum. Barris, sem þekktur var úr bandarísku sjón- varpi fyrir að vera ábyrgur fyrir mörgu af því lélegasta sem fýrir áhorfendur kom á sjöunda ára- tugnum, meðal annars The Gong Show, upplýsti aö með fram því að starfa í sjónvarpi hefði hann verið leigumorðingi á vegum CIA og hefði 33 mannslíf á samvisk- unni. Barris þótti ekki ábyrgur náungi og það voru ekki margir sem tóku þessa játningu hans al- varlega og talsmaður CLA sagði þetta hlægilegt. Bókin heillaði George Clooney og valdi hann söguna sem fyrsta leikstjómarverkefni sitt og fékk snillinginn Charlie Kaufman (Being John Malkovich, Adapta- tion) til að skrifa handrit eftir henni. Síðan valdi Clooney lítt þekktan leikara, Sam Rockwell, til að leika aðalhlutverkið. Dæmið gekk upp hjá Clooney. Myndin þykir góð og Clooney byrjar leik- stjómarferil sinn af miklum krafti og kunnáttu. Hefur hann ömgg- lega fengið ieiðsögn hjá vini sínu, Steven Soderberg, sem er einn framleiðandi myndarinnar. Confession of a Dangerous Mind Confession of a Dangerous Mlnd Sam Rockwell leikur Charles Barris og Drew Barrymore, unnustu hans. skartar nokkrum kvikmynda- stjömum, meðal annars Juliu Ro- berts, Drew Barrymore og Cloon- ey sjálfum. Charlotte Gray Kvikmyndabransinn er karl- mannsvænn, svo ekki sé meira sagt. Þaö er því undantekning að á fjörur okkar rekm' kvikmynd sem er að miklu leyti gerö af konum. Leikstjórinn er hin ástralska Gilli- an Armstrong sem er einn fárra kvenkyns leikstjóra sem hafa öðl- ast alþjóðlega viðurkenningu. Meðal kvikmynda sem hún hefur leikstýrt eru My Brilliant Career, Mrs. Soffel, Little Women og Osc- ar and Lucinda. Charlotte Grey gerist í London í miðri síðari heimsstyrjöldinni. Yfir standa loftárásir Þjóðverja á höfuðborgina. Charlotte Gray er ósköp venjuleg kona sem kemur til borgarinnar til aö hjúkra særðum. Kvöld eitt kynnist hún flugmanni, sem er í leyfi, og þau verða ástfangin. Hamingjan virö- ist blasa við þeim í skugga styrj- aldar. Stuttu síðar kemur kallið aftur og vél hans er skotin niður í Frakklandi. Charlotte heldur í leit að týnda flugmanninum og ástinni í lífi sínu. Með titilhlutverkið fer Cate Blanchett, landa Armstrong. í öðrum hlutverkum eru Billy Crudup, Michael Gambon, James Fleet og Charlotte McDougall. -HK Innrásin frá Síðasta fimmtudagskvöl var ríf- andi stemning á Kringlukránni hjá Dalvíkingunum Hjálmari Hjálmars- syni og vaxtarræktartröllinu Fíln- um, fyndnasta manni íslands. Þeir ætla endurtaka uppistandið í kvöld á Kringlukránni kl. 22. Sigurvin Jónsson, fyrrum mark- vörður Dalvíkinga í meistaraflokki karla í knattspýmu, eða „Fíllinn" eins og hann kallar sig jafnan, vann með glæsibrag í fyrra keppnina Fyndnasti maður íslands. Fíllinn hefur skemmt norðanmönnum með einstakri kimnigáfu sinni. Nú er komið að því að sunnanmenn fái að njóta hans á ný. Hjálmar Hjálmarsson, leikari, söngvari, hagyrðingur og fyrrum Dalvík Hjálmar Hjálmarsson. línuvörður, starfar nú sem prófarka- lesari á Ekkifréttastofu íslands og er einn af fáum íslendingum sem hefur séð ekkifréttamanninn Hauk Hauks- son í eigin persónu. í uppistandi Hjálmars má greina sterka þjóðfé- lagsrýni, breiða pólitíska sýn og al- menna heimsku. Saloti Ritz stt tjrtisto^ Salott Ritz stt ■t/rtistofá^ Salon Ritz srti \t/rtisto£a~ Salott Ritz Við kennum þér hann að véla og fjarstýringuna að fela þá kemur á daginn að auðveldur gæinn fer með þér upp í sófa að kela. Framhald Salon Ritz snyrtistofa Salon Ritz snyrtistofa Salon Ritz snyrtistofa Salon Ritz

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.