Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 35 I>V Sport Haukan—Stjarnan 23-1G 1-0, 1-2, &-2, 8-4, 9-6, (12-6). 18-6, 14-9,15-12, 18-14, 21-15, 23-16. Haukar: Mörk/viti (skot/viti): Nína K. Bjömsdóttir 8 (17/8), Harpa Melsted 4/1 (9/2), Brynja Dögg Steinsen 3 (6), Ema HaUdórsdóttir 2 (2), Sonja Jónsdóttir 2 (4), Hanna G. Stefáns- dóttir 2/1 (7/3), Inga Fríöa Tryggvadóttir 1 (1), Ema Þráinsdóttir 1 (1), Ingibjörg Karls- dóttir (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 2 ( Ema H. Brynja) Vitanýting: Skoraö úr 2 af 5. Fiskuö vitU Harpa 2, Sonja, Hanna, Ingi- björg. Varin skot/viti (skot á sig): Luyresija Bac- an 10 (21, hélt 4,49%), Bryndís Jónsdóttir 2/1 (7/3, hélt 1). Brottvisanir: 12 mínútur. Dómarar (1-10): Bjarni Viggósson og Valgeir Ómarsson (6) Gœöi leiks (1-10): 4 Áhorfendur: 230 Best á vellinum: Nína K. Björnsdóttir, Haukum Stjaman: Mörk/viti (skot/víti): Amela Hegic 9/2 (19/4), Hind Hannesdóttir 4 (10), Margrét Vil- hjálmsdóttir 1 (2), Anna Einarsdóttir 1 (2), Dögg Bragadóttir 1 (3), Sólveig Kæmested (1), Jóna M. Ragnarsdóttir (2), Elísabet Gunnarsdóttir (3) Mörk úr hraöaupphlaupum: 3, Hegic, Hind, Anna. Vitanýting: Skoraö úr 2 af 4. Fiskuö víti: Elísabet 3, Júlíana Þóröardóttir. Varin skot/víti (skot á sig): Jelena Jovanovic 19/2 (42/4, eitt víti I stöng, hélt, 6, 46%) Brottvisanir: 4 mínútur. Haukan-Stjannan 1-0 ÍBV-Valun 27-17 1-0, 3-3, 6-4, 9-0, (11-8). 12-8, 15-11, 21-12, 25-15, 27-17. ÍBV: Mörk/viti (skot/viti): Alla Gorkorian 11/1 (16/1), Anna Yakova 9/1 (15/1), Brgit Engl 2 (3), Ingibjörg Jónsdóttir 2 (4), Edda Eggerts- dóttir 1 (2), Björg Ó. Helgadóttir 1 (2), Sylvia Strass 1 (3), Ana Perez (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 8 (Yakova 3, Ingibjörg 2, Engl 2, Gorkorian). Vitanýting: Skorað úr 2 af 2. Fiskuö víti: Yakova, Ingibjörg. Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís Sig- uröardóttir 18/1 (34/5, hélt 11, 53%, eitt víti fram hjá. Brottvísanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Guöjón L. Sig- urðsson og Ólaf- ur Haraldsson (6) Gœöi leiks (1-10): 7 Áhorfendur: 564 Best á Alla Gorkorian, ÍBV Valur: Mörk/viti (skot/víti): Ama Grímsdóttir 5 (7), Díana Guðjónsdóttir 4/4 (6/5), Kolbrún Franklín 2 (8), Drífa Skúladóttir 2 (13/1), Anna Guðmundsdóttir 1 (1), Svanhildur Þorbjömsdóttir 1 (1), Hafrún Kristjánsdótt- ir 1 (1), Elfa Hreggviösdóttir 1 (3), Sigurlaug Rúnarsdóttir (6). Mörk úr hraöaupphlaupum: 7 (Arna 4, Anna, Hafrún, Elfa). Vitanýting: Skoraö úr 4 af 6. Fiskuö vitU Sigurlaug 2, Hafrún 2, Drífa, Hafdís Guöjónsdóttir. Varin skot/víti (skot á sig): Berglind Hansdóttir 16 (43/2, hélt 8, 37%). Brottvísanir: 6 mínútur. ÍBV-Valur 1-0 ]mf\z i*TTT .»i gSi11r i 1 rj f J 1 ImiTÍ | fi 11 Harpa Melsted brýst fram hjá Hind Hannesdóttur og skorar eitt fjögurra marka sinna gegn Stjörnunni á Ásvöllum í gærkvöld. DV-mynd Sigurour Jökull - þar sem Haukar sigruðu Stjörnuna með sjö marka mun Haukar sigruðu Stjömuna í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Esso-deildar kvenna í handknatt- leik sem spilaður var á Ásvöllum í gærkvöld. Lokatölur urðu 23-16 í leik sem var mjög bragðdaufur og þar sem lítil tilþrif vom sjmd og var erfitt að trúa því í ljósi mikil- vægis leiksins, þar sem barist er um sæti í úrslitunum. Leikurinn réðst á fyrstu tíu mín- útunum þar sem Haukastúlkur náðu yfirburðastöðu, þökk sé leik- mönnum Stjömuliðsins. Þær léku langt undir getu, sýndu engan bar- áttuvilja, og þar sem ekkert gekk upp hjá liðinu vom þær fljótar að gefast upp. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 12-6, heima- mönnum í vil og sigurinn í ömgg- um höndum. Haukastúlkur gáfu samt eftir og hleyptu gestunum inn í leikinn en eftir að Elisabet Gunnarsdóttir hafði misnotað hraðaupphlaup fyr- ir Stjömuna í stöðunni 14-11 tókst Haukastúlkum að flnna taktinn á ný og eftirleikurinn varð þeim auð- veldur. Þær unnu ömggan sigur og eru því 1-0 yfir í einvígi liðanna og geta tryggt sér farseðilinn í úr- slitin með sigri í Garðabænum á laugardaginn. Leikmenn Hauka léku einnig langt undir getu og þrátt fyrir nokkur ágætistilþrif náðu þær sér aldrei almennilega á strik í sóknar- leiknum á meðan varnarleikurinn var í finu lagi. Harpa Melsted átti þó sæmilegasta dag og Hanna G. Stefánsdóttir átti finan fymi hálf- leik en slakan síðari hálfleik. Nína K. Björnsdóttir sýndi góð tilþrif þegar á þurfti að halda og með mörkum á mikilvægum augnablikum í síðari hálfleik hélt hún sinu liði við efnið. Hjá Stjörn- unni varði Jelena Jovanovic mjög vel í markinu en aðrir leikmenn liðsins brugðust. Það var helst Amela Hegic sem sýndi einhveija baráttu og hún skoraði helminginn af mörkum liðsins. Einnig kom Sól- veig Lára Kærnested sterk inn í síðari hálfleik og færði aukinn þunga í sóknina. Hættum að spila „Við lögðum grunninn að þessu í fyrri hálfleik með góðum varncU-- leik og vorum með ágætisnýtingu þá. Hins vegar fannst mér botninn detta úr þessu í síðari hálfleik og við hættum að spila en fundum taktinn aftur og unnum stærri sig- ur en menn áttu von á," sagði Gúst- af Adólf Björnsson, þjálfari Hauka. Eltingarleikur allan tímann „Við komum í þennan leik eins og við hefðum ekki trú á því sem við vorum að gera og lentum svona mikið undir. Þess vegna vorum við í eltingarleik allan tímann. Við vorum að saxa á þetta í síðari hálf- leik og það er erfitt og orkufrekt og svo þegar reyndi á þetta aftur virt- ist trúna vanta á ný," sagði Matthí- as Matthíasson, þjálfari Stjörnunn- ar, að leik loknum. Það er vonandi að liðin komi bet- ur stemmd til næsta leiks og bjóöi stuðningsmönnum sínum upp á betri skemmtun en raun varð á í gærkvöld. Bæöi liðin hafa sýnt það í vetur og það er ekki seinna vænna að sýna það aftur á laugar- daginn. -ÞAÞ Tíu marka sigur Eyjastwna ÍBV tók á móti Valsstúlkum í Eyjum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum íslandsmótsins. Bæði lið höfðu komist hindrunarlaust í gegnum átta- liðaúrslitin en í þremur viðureignum liðanna í vetur höfðu Eyjastúlkur ávallt sigrað. Valsstúlkur reyndust lítil hindrun fyrir hið feikisterka lið ÍBV og urðu lokatölur 27-17. Leikurinn var gífurlega hraöur, sérstaklega fyrstu tíu mínúturnar þegar bæði lið reyndu að keyra stíft á hraðaupphlaupum. Hraðinn var hins vegar of mikill því mistökin voru mörg hjá báðum liðum og því ekkert sérstaklega mikið skorað í hálfleiknum. Eyjastúlkur komust tveimur mörkum yfir strax í byrjun en Valsstúlkur voru aldrei langt undan og jöfnuðu 3-3. Varnarleikur ÍBV varð öflugri þegar líða tók á leikinn og Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði gaf tóninn þegar hún stal boltanum í tvígang, skoraði úr hraðaupphlaupi í kjölfarið og kom ÍBV í 4-6 en staðan í hálfleik var 11-8 fyrir ÍBV. Hafi Valsstúlkur átt einhverja von um sigur var sá neisti slökktur strax i upphafi síðari hálfleiks. ÍBV byrjaði á því að auka forystuna í fjögur mörk en i stöðunni 15-11 lokuðu heimastúlkur hreinlega leiðinni að markinu, fengu fyrir vikiö hraðaupphlaup og skoruðu næstu sex mörk leiksins. Þar með voru úrslitin ráðin og þó að Valsstúlkur tækju bæði Önnu Yakovu og Sylviu Strass úr umferð síöasta stundarfjórðung leiksins breytti það litlu og leikmenn ÍBV héldu tíu marka forskoti til enda leiksins. Af þessum leik að dæma er erfitt að sjá hvernig Valsstúlkur ætla sér að leggja ÍBV að velli á Hlíðarenda. Styrkleikamunur- inn á þessum tveimur liðum er einfaldlega of mikill. Vals- stúlkur héldu reyndar í við ÍBV framan af en hver spyr að því í leikslok. Eini leikmaður Vals í sama klassa var Berglind Hansdóttir í markinu en hún varði oft og tíðum stórkostlega. Hinum megin á vellinum var Vigdís Sigurðardóttir í banastuði í marki ÍBV en Alla Gorkorian sýndi mátt sinn í gærkvöld og gestirnir réðu ekkert við hana. Vigdís Sigurðardóttir sagði eftir leikinn að samstaðan meðal leikmanna ÍBV heföi haft mikiö að segja í gærkvöld. Þær komu dýróöar til leiks „Þær komu dýróðar til leiks enda vilja allir vinna ÍBV. Við spiluðum ágætlega í fyrri hálfleik, gerðum reyndar of mikið af mistökum í sókninni, en svo small þetta saman í seinni hálfleik. Ég veit ekki hvort þær voru einfaldlega búnar í seinni hálfleik en þær virtust detta alveg niður á hælana í seinni hálfleik. Við töluðum um það í hálfleik að fækka mistökunum. Allir lögðust svo á eitt og andinn í hópnum var frábær. Seinni leikurinn verður án efa erfiður en við munum leggja okkur allar fram og ætlum að klára þetta í tveimur leikjum. -jgi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.