Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Qupperneq 36
36
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
Sport
„Búbbi” telur
Hartson lykilinn
Jóhannes Eövaldsson,
„Búbbi“, fyrrum leikmaöur Glas-
gow Celtic, telur aö sigurvilji
John Hartson, leikmanns Celtic,
sé lykillinn að því að liðinu tak-
ist að leggja Boavista að velli í
undanúrslitum Evrópukeppni fé-
lagsliða en liðin eigast við í
kvöld. Þetta sagði hann í viötali
viö enska íþróttavefmn,
Sportinglife. Þess má geta að
Jóhannes Eðvaldsson lék síðast
þegar þessi lið mættust í
Evrópukeppni bikarhafa árið
1975.
Jóhannes segir að frábært
keppnisskap og hugarfar þessa
welska landsliðsmanns geti
fleytt liðinu langt. „Hartson hef-
ur leikið frábærlega. Hann legg-
ur sig allan fram, þykir frábært
að skora mörk og þolir ekki að
tapa. Maður sér það á andlitinu
á honum aö hann þolir þaö ekki.
Það sást berlega þegar hann mis-
notaði færin í bikarúrslitunum
gegn Rangers, auk þess sem
hann brenndi af víti,“ sagöi
Jóhannes.
Hann segist óttast að liðið
endi tímabilið án þess að hafa
uppskorið nokkuð þrátt fyrir að
vera að keppa um verðlaun á
íjórum vigstöðvum. „Ég er mjög
hræddur um að það gerist. Það
væri hins vegar frábært afrek að
komast í úrslit Evrópu-
keppninnar, en við verðum hins
vegar að vinna úrvalsdeOdina
skosku. Fyrir Celtic er það
mikilvægast. Við getum ekki
leyft Rangers að vinna þrefalt,
þrátt fyrir að frábært væri að
vinna Boavista. Ég spái því að ef
við náum að vinna Boavista með
þremur mörkum og án þess að fá
á okkur mark, þá munum við
einnig vinna deildina," sagði
Jóhannes að lokum. -PS
Clarence Seedorf, leikmaður AC Mil-
an, leikur ekki meira með liðinu á
þessari leiktíð, en hann meiddist á
hné í leik liðsins gegn Ajax í Meist-
aradeiidinni í fyrrakvöld.
Leiktimi i leik íslands og Færeyja í
undankeppni EM fyrir 2004 í Portúgal
hefur verið ákveðinn. Leikurinn fer
fram á Laugardalsvelli þann 7. júní
og hefst hann kl. 15.00.
Everton og Aston Villa hafa ákveöið
að hætta við keppnis- og æfingaferð
sem fyrirhuguð var eftir
keppnistímabilið, en ferðinni var
heitið til Kína. Ástæðan er SARS-
vírusinn banvæni sem stungið hefur
sér niður i landinu. -PS
Grenlækur, svæöi eitt:
Bypjaö
Sjóbirtingsveiðm gengur ágæt-
lega víða og í gærmorgun var opnað
svæði eitt í Grenlæk fyrir veiði-
mönnum. Byrjunin í vorveiðinni
hefur sjaldan verið betri en núna.
„Þetta var svakalega fallegur fisk-
ur sem tók flugu og var sleppt aftur
í lækinn. Það var mikið af fiski
þama en hann var tregur," sagði
Valgarður Ragnarsson, Valli hjá
veiðibúðinni við Lækinn í Hafnar-
firði, en hann var að koma úr
Galtalæk.
„Við sáum mikið af fiski en hann
var tregur, við fengum tíu fiska og
þetta var fint,“ sagði Valgarður enn
fremur. „Veiðimenn byrjuðu hjá
okkur á svæði eitt í Grenlæk í
morgun en ég hef ekki náð í neina
veiðimenn enn þá. Við vorum þarna
fyrir nokkrum dögum," sagði Rögn-
valdur Hallgrímsson, annar af leigu-
DV
Formúlufarsinn heldur áfram
taliö aö Fischicella hafi haft forystuna einum hring fyrr en áöur var haldið
Enn er ekki öruggt hvor þessara ágætu herramanna, Giancario Fischiceila,
t.v., eða Kimi Raikkonen er raunverulegur sigurvegari Formúlunnar í Brasilíu
um síöustu helgi.
Svo virðist sem úrslitin í Formúl-
unni, sem fram fór í Sao Paulo í
Brasilíu um síðustu helgi, séu ekki
alveg ráðin og svo getur farið aö Gi-
ancarlo Fischicella verði úrskurðað-
ur sigurvegar, eins og gert var í
fyrstu, í stað Finnans Kimi
Raikkonens. Talið er að upplýsingar
frá tímavörðum, sem leitt hafi til
þess að Finninn var úrskurðaður
sigurvegari, hafi verið rangar.
Keppni þessi varð allsöguleg þar
sem hún var stöðvuð eftir að eknir
höfðu verið 55 hringir, í kjölfar
fjölda óhappa í brautinni þar sem
ríktu einstaklega erfiðar aðstæður
vegna mikUla rigninga.
Ástæðan fyrir því að Raikkonen
var úrskurðaður sigurvegari eru
reglur sem segja til um að raun-
verulegur sigurvegari sé sá sem
hafi forystuna tveimur hringjum áð-
ur en rauða flagginu var veifað.
Talið var að það heföi verið
Raikkonen, en nú hefur Alþjóða
akstursíþróttasambandið tilkynnt
að því hafi verið send gögn þar sem
Gary Neville, leikmaður
Manchester United, segir að leikur
Real Madrid i fyrrakvöld hafi minnt
sig á sýningarleiki Harlem Glo-
betrotters körfuknattleiksliðsins
fræga.
„Þeir léku stórkostlega knatt-
spymu í fyrri hálfleik. Sumir segja
að við höfum sýnt þeim allt of
mikla virðingu og við höfum verið
hræddir, en stundum þarf það ekki
til og það var svo sannarlega ekki í
þessu tilviki. Maöur getur hins veg-
ar ekki annað en dáðst að leik Real
Madrid í þessum leik. Við komumst
hreinlega aldrei nálægt þeim í fyrri
hálfleik, sem gerði okkur mjög erfitt
fyrir og auövitað er leikurinn í
heild sinni og úrslit hans mikil von-
brigði,“ sagði Neville.
Það bíður leikmanna Man. Utd
erfitt verkefni í síðari leiknum á
Old Trafford eftir tvær vikur og
þurfa þeir að vinna upp tveggja
marka forskot á heimavelli sínum.
Roy Keane, fyrirliði Man. Utd, segir
að þetta sé eitt erfiðasta verkefni
fram komi sannanir um að
Fiscicella hafi í raun verið byrjaður
á 56. hring í stað þess aö hafa verið
sem hann hafi staðið frammi fyrir í
herbúðum félagins. „Þetta er án efa
stærsta áskorun sem þetta lið getur
fengið, að leggja Real Madrid með
tveimur mörkum. Svona er knatt-
spyrnan, en það kannski léttir svo-
lítið á pressunni hjá okkur nú að
að ljúka 55. hring. Þetta þýðir að
þegar búið er að draga þessa tvo
hringi frá hafi Fischicella í raun
það halda allir að við séum úr leik,
þannig að í raun höfum við engu aö
tapa. Þetta lið Real Madrid er fullt
sjálfstrausts og þeir trúa því í raun
að þó að þeir fái á sig 3-i mörk þá
muni þeir alltaf skora fleiri,“ sagði
Roy Keane, fyrirliði Man. Utd. -PS
verið að byrja á 54. hring en
Raikkonen verið að klára 53. hring.
Jordan liðið hefur einnig sagst
hafa sannanir fyrir því að þetta
væri raunin. Forsvarsmenn
McLaren-liðsins sögðust anda með
nefinu. „Ef það hafa verið gerð mis-
tök í tímatökunni þá er eðlilegt að
úrslitum keppninnar verði breytt,“
sagði talsmaður McLaren-liðsins, en
Kimi Raikkonen, sigurvegari Sao
Paulo Formúlunnar, keppir fyrir
liðið. -PS
Kanoute fer
frá West Ham
Frederic Kanoute, leikmaður
West Ham, hefur lýst því yfir að
hann sjái framtíð sína annars
staðar en hjá félaginu, en hann
hefur lítið fengið að spreyta sig
frá því að hann varð góður af
meiðslum síðari hluta vetrar.
„Ég hef lagt hart að mér að
komast í form eftir tímabil sem
einkennst hefur af meiðslum og
vonbrigðum hjá mér. Nú er ég
kominn í gott líkamlegt form en
ég fæ ekki að leika neitt og því
hef ég ákveðið að framtíö mín sé
hjá einhverju öðru félagi, félagi
sem ég fæ að spila hjá. Þessi
ákvörðun stendur hvort sem fé-
lagið fellur eða ekki. Það er kom-
ið nóg,“ sagði Kanoute.
Kanoute er fyrsti leikmaður-
inn í herbúðum West Ham sem
hefur tilkynnt að hann ætli að
fara frá félaginu þegar tímabil-
inu lýkur, en líklegt er talið að
Paulo Di Canio bætist í hópinn
fljótlega, en hann er með lausan
samning þegar timabilinu lýkur.
-PS
Hoddle íær
eyðslufé
Glen Hoddle, framkvæmdastjóri
Tottenham, hefur fengið vilyrði fyr-
ir því frá stjórn félagsins að hann
fái fé í sumar til að kaupa leikmenn
og styrkja hópinn. Stjórnarformað-
ur Tottenham, Daniel Levy, segir að
ætlunin sé bæði að styrkja hópinn
verulega og að auka breiddina í
honum.
Hann segir að staða félagsins sé
traust þrátt fyrir hrun á leikmanna-
markaðinum. Levy segir að stefnan
sé sett á að koma liðinu meðal
þeirra bestu og liður í því sé að láta
Hoddle hafa fé til að kaupa
leikmenn. -PS
Stórleikur Real Madrid gegn Manchester United:
Minnti Gary Neville á
Harlem Globetrotters
Úr leik „Harlem Globetrotters" og Manchester United í fyrrakvöld.
i gærmorgun
tökum svæðisins, í samtali við DV-
Sport í gærdag, er við spurðum um
stöðuna á svæðinu. „Það eru komn-
ir á milli 25 og 30 fiskar i Minni-
vallalæknum, veiðimenn eru á fullu
að veiða Tungulæknum," sagði
Þröstur Elliðason í gærdag, er við
spurðum um MinnivaUalæk og
Tungulækinn. Veiðin í Soginu hef-
ur farið róleg af stað og hafa veiði-
menn fengið lítið. G.Bender
Valgarður Ragnarsson með
tv' 7 punda urriða sem tók
flugu og var sleppt aftur í
Galtalækinn.
DV-mynd FF
Stangaveiöifélag Akureyrar:
Stofnun félags-
ins á laugardag
„Við vonum að sem flestir
veiðimenn mæti til að stofna fé-
lagið," sagði Ragnar Hólm Ragn-
arsson í undirbúningsnefndinni
í samtali við DV-Sport. En Ragn-
ar er öllum hnútum kunnugur í
veiðinni og fyrrum formaður Ár-
manna til nokkurra ár.
En á laugardaginn næsta
verður haldinn undirbúnings-
fundur að stofnun Stangaveiðifé-
lags Akureyrar og fundurinn
verður haldinn á Hótel KEA kl.
15.
Tilgangurinn með stofnun fé-
lagsins er aö efla samkennd með-
al veiðimanna á Akureyri, fá þá
til að sameina krafta sína í einu
stóru félagi, stuðla að auknu fé-
lagsstarfi meðal veiðimanna,
bæta umgengni við náttúruna,
efla unglingastarf og horfa til
þess að taka á leigu veiðisvæði í
náinni framtíð.
Það verður spennandi að sjá
hvemig til tekst, veiðimenn eru
margir á Akureyri og nágrenni,
sem veiða mikið víða um svæð-
iö. Veiðilendur eru góðar og
ekki veitir af samtakamætti
veiðimanna þessa dagana.
G.Bender