Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 37
Fimmtudagur 10. apríl 2003
37
Sigur hja Stoke
íslendingaliðið Stoke náði að vinna sig-
ur á Rotherham í ensku 1. deildinni í gær-
kvöld, 2-0. Það voru þeir Paul Warhurst
og Andrew Cooke sem gerðu mörk Stoke
í fyrri hálfleik. Sigurinn er afar mikil-
vægur fyrir Stoke sem berst hatrammri
baráttu fyrir sæti sínu í deildinni og er
nú í fjórða neðsta sæti með 41 stig. Brynj-
ar Bjöm Gunnarsson var með í gær en
Bjami Guðjónsson var á bekknum -PS
Rafpostur: dvsport@dv.is
- keppni i hverju orði
Armann sem-
ur vlð Val
Ármann Smári Björnsson hef-
ur framlengt samning sinn við
Símadeildarlið Vals í knatt-
spymu og gildir nýi samningur-
inn út keppnistímabilið árið
2005. Ármann gekk til liðs við
Val árið 2001 en hefur í milli-
tíðinni leikið erlendis, síðast
með Brann í Noregi. -PS
MEISTARADEILD
Átta liöa úrslit, fyrri leikir
Juventus-Barcelona............1-1
1-0 Montero (16.), 1-1 Saviola (78.),
Juventus: Gianluigi Buffon, Lilian
Thuram, Ciro Ferrera, Paolo
Montero, Gianluca Zambrotta
(Zalayeta 67.), Alessio Tacchinardi,
Igor Tudor (Birindelli 60.), Mauro
Camoranesi, Edgar Davdis.
Alessandro Del Piero (Di Vaio 82.),
Pavel Nedved.
Barcelona: Roberto Bonano, Micheal
Reiziger, Frank De Boer, Carles
Puyol, Xavi Hemandes (Gerard 74.),
Javier Saviola, Juan Riquelme
(Mendieta 63.), Marc Overmars
(Enrique 83.), Gabri Cargcia, Thiago
Motta, Patrick Kluivert.
Gul Spjöld: Kluivert (Barcelona 61.),
Gabri (Barcelona 69.) Birindelli
(Juventus 76.).
Dómari: Michel Lubos, (Slóvakía).
Inter-Valencia . . ,
1-0 Vieri (14.)
Inter: Francesco Toldo, Ivan Codoba,
Javier Zanetti, Emre Belözoglu,
Christian Zanetti, Sergio Conceicao
(Okan Buruk 65.), Heman Crespo
(Cannovaro 84.), Luigi Di Biagio,
Marco Materazzi, Christian Vieri,
Fransesco Coco (Pasquale 31.).
Valencia: Santiago Canizares,
Roberto Ayala, Anthony Réveillére,
Carlos Marchena, Amedoe Carboni,
Fransisco Rufete (Mista 79.), 'David
Albelda, Ruben Baraja, Pablo Aimar,
John Carew (Angulo 65.), Vicente
Rodrique (Aurelio 85.).
Gul spjöld: Rufete (Valencia 43.),
Zanetti (Inter71.), Pasquale (Inter 90.)
Aimar (Valencia 90.).
Rauó spjöld: Albelda (Valencia 56.),
Emre (Inter 56.).
Áhorfendur: 57.623
Dómari: Markus Merk (Þýskaland).
Stórslagir spænskra og ítalskra liöa í átta liöa úrslitum MeistarsK&íldarinnar í gærkvöld:
Vænleg staöa Barcetona
- ekki tapaö fimmtán leikjum í röö í Meistaradeildinni en töpuöu síöast fyrir Real Madrid
Það var mikill slagur spænskra
og ítalskra liða í átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar þegar
spænsku liðin Barcelona og Val-
encia léku gegn Juventus og Inter.
Úrslitin í gærkvöld hljóta að teljast
ákjósanleg fyrir þau spænsku þrátt
fyrir að Valencia tapaði gegn Inter.
Hins vegar er staða Barcelona enn
betri eftir jafntefli gegn Juventus.
Juventus byrjaði betur á heima-
velli sínum í Torino og eftir aðeins
16 minútur höfðu þeir komist yfir
gegn Barcelona. Það var Paolo
Montero sem gerði fyrsta mark
leiksins með góðu mark. Hann hirti
upp lausan bolta í teignum eftir að
Del Piero hafði reynt hjólhesta-
spyrnu sem Bonano varði.
Mikilvægt mark
Áður en yfir lauk náðu leikmenn
Barcelona aö jafna leikinn og var
þar að verki maður að nafni
Saviola. Markið var heppnismark,
en eftir frábæran undirbúning fé-
laga hans. Með jafntefli þessu hefur
Barcelona ekki tapað 15 leikjum í
röð í meistaradeildinni, eða ekki
síðan þeir töpuðu fyrir Real Madrid
í undanúrslitum i fyrra. Allt bendir
til þess að í undanúrslitum nú mæt-
ist þessi lið að nýju. Mark Saviola
er gríðarlega mikilvægt og það hlýt-
ur að teljast þægilegt fyrir
Barcelona að hafa jafna stöðu fyrir
heimaleikinn og í ofanálag að hafa
eitt mark á útivelli í farteskinu.
Þjálfari Juventus, Marcello Lippi,
var ekki á því að Barcelona hefði átt
nokkuð skilið út úr leiknum í gær-
kvöld. „Með fullri virðingu fyrir
þeim voru þetta ekki sanngjörn úr-
slit. Juventus bjó til miklu meira í
leiknum og var miklu meira skap-
andi og við áttum skilið að vinna
leikinn.
Við áttum mjög færi í lok leiksins
og ég er sannfærður um að við get-
um ekki gert öllu betur en við gerð-
um í kvöld," sagði Lippi.
Þjálfari Barcelona, Radomir Ant-
ic, var eðlilega afar sáttur við úrslit-
in í Torino. „Þessi leikur var leik-
inn með ítalska stílnum. Við lékum
Saviola fagnar hér dýrmætu marki sínu fyrir Barcelona gegn Juventus í gærkvöld en hann náöi aö jafna metin tólf
mínútum fyrir leikslok. Reuter
ekki vel í fyrri hálfleik en ég er
ánægður með hvernig leikmenn
mínir brugðust við í síðari hálfleik.
Reyndar fengu leikmenn Juve góð
færi í lokin en þetta verður dálítið
öðruvísi eftir hálfan mánuð í
Barcelona. Vitiði til, þótt ekki væri
nema vegna þess að þar höfum við
120 þúsund manns á bak við okkur,“
sagði Radomir Antic eftir leikinn.
Sigurmark Vieris
Christian Vieri kom Inter yfir á
14. mínútu með skallamarki eftir að
Heman Crespo hafði fundið hann
óvaldaðan fyrir framan mark Val-
encia.
Tveir leikmenn voru reknir af
leikvelli, þeir Emre úr Inter og Al-
belda úr Valencia, en þeir fengu að
líta rauða spjaldið fyrir slagsmál á
56. mínútu leiksins. í kjölfarið urðu
einhverjar óeirðir á áhorfenda-
bekkjum en þaðan komu meðal ann-
ars flöskur fljúgandi niður á völl-
inn.
Fram að þessu atviki höfðu Spán-
verjamir haft hægt um sig en þeir
sóttu allverulega í sig veðrið. Þeir
gerðu oft harða hríð að marki Inter
til að freista þess að skora mikil-
vægt mark, en það var án árangurs.
Toldo, markvörður Inter, náði oftar
en einu sinni að bjarga sínum
mönnum með góðri markvörslu.
Góö endurkoma Crespos
Maður leiksins, Christian Vieri,
var þokkalega sáttur við sigurinn.
„Þetta var mikilvægur sigur hjá
okkur og við fengum ekki á okkur
mark í kvöld. Það er gott. Við áttum
mjög góðan fyrri hálfleik, en við átt-
um úndir högg að sækja í þeim síð-
ari. Þá komu leikmenn Valencia
sterkir inn. Þar sem við bökkuðum
dálítið í síðari hálfleik áttum við á
hættu að fá á okkur mark. Við átt-
um ekki að bakka svona og hleypa
þeim svo nærri vítateig okkar. Nú
forum við til Spánar þar sem við
reynum að ná hagstæðum úrslitum.
Það er gríðarlega mikilvægt fyrir
okkur að vera búnir að fá Crespo
aftur í liðið. I kvöld vorum við þétt-
ir fyrir og á morgun förum við að
einbeita okkur að viðureigninni við
AC Milan,“ sagði Christian Vieri.
-PS
Emre, leikmaöur Inter Milan, fær hér aö líta rauöa spjaldiö hjá Markusi Merk,
dómaranum þýska, eftir viöureign sína viö Elbelda, leikmann Valencia. Sá
sfðarnefndi þurfti einnig aö yfirgefa leikvöllinn meö rautt spjald.
Canela-Cup knattspyrnumótiö á Spáni:
Fylkismenn og KR
leika til úrslíta
Fylkismenn og KR-ingar leika til
úrslita á Canela-Cup knattspyrnu-
mótinu sem Úrval-Útsýn stendur
fyrir í Canela á Suður-Spáni um
þessar mundir, en alls taka átta lið
þátt í mótinu.
Fylkismenn unnu góðan sigur á
Skagamönnum í gær í hörkuviður-
eign.Það var Théodór Óskarsson
sem gerði bæði mörk Fylkis-
manna, það fyrra á 68. mínútu og
það síðara sjö mínútum síðar.
KR-ingar lögðu Grindvíkinga að
velli, 1-0, og tryggðu sér þannig
sæti í úrslitaleiknum. Það var
Veigar Páll Gunnarsson sem gerði
sigurmarkið í síðari hálfletk.
ÍBV vann stórsigur á Aftureld-
ingu, 3-0, og hefði sigurinn getað
orðið mun stærri þar sem Eyja-
menn óðu í dauðafærum. Það voru
þeir Pétur Runólfsson, á 64. mín-
útu, Gunnar H. Þorvaldsson, á 67.
mínútu, og Bjami R. Eyjólfsson, á
88. mínútu, sem gerðu mörk Eyja-
manna.
Að lokum geröu FH-ingar 1-1
jafntefli við Úrvalsliö skipað leik-
mönnum úr öllum hinum liðunum.
Atli Viðar Bjömsson kom FH-ing-
um yfir á 8. mínútu en KR-ingur-
inn Amljótur Ástþórsson jafnaði
fyrir Úrvalsliðið á 74. mínútu. FH-
ingar stóðu hins vegar uppi sem
sigurvegarar eftir vítakeppni.
Eins og áöur sagði mætast Fylk-
ismenn og KR-ingar í úrslitaleik á
föstudag en Skagamenn og Grind-
víkingar leika um þriðja sætið. Um
fimmta sætið leika síðan lið ÍBV og
FH en Afturelding og Úrvalsliöið
leika um sjöunda sætið. -PS
4
í
<7.