Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2003, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003
Fréttir DV
Mikill sam-
dráttur í loOnu
Heildarafli íslenskra skipa var
tæp 184 þúsund tonn í nýliðnum
marsmánuði og dróst saman um
242 þúsund tonn frá sama mánuði
2002, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Hagstofu íslands.
Heildaraflinn í síðasta mánuði
var því í magni talinn aðeins
43% af aflamagni í mars 2002. í
samantekt Greiningar íslands-
banka kemur fram að samdrátt-
urinn skýrist af mun minni
loðnuafla, en í mars sl. komu á
land 115 þúsund tonn af loðnu,
samanborið við 360 þúsund tonn í
mars í fyrra, en sem kunnugt er
olli loðnuvertíðin vonbrigðum. í
mars veiddust 54 þúsund tonn af
botnfiskafla sem er svipað og í
mars í fyrra. Kolmunna- og síld-
arafli jókst frá í fyrra en skel- og
krabbadýraafli dróst saman. -VB
Minni sala matvöru
í mars en í fyrra
Velta dagvöruverslana í mars
reyndist vera 7,2% minni en á
síðasta ári að sögn Emils B.
Karlssonar hjá Samtökum versl-
unar og þjónustu. Hann segir að
veltan í sölu áfengis hafi sömu-
leiðis minnkað um 18,8% þegar
marsmánuður nú og í fyrra eru
bornir saman. Skýringuna telur
Emil einfaldlega þá að páskar
voru í lok mars og byrjun apríl í
fyrra - en eru mun seinna nú.
Páskaveltan í matvöruverslunum
lendir því í apríl í ár.
Þegar skoðuð er velta lyfjabúða
í mars er greinilegt að þar gætir
ekki árstíðasveiflna. SVÞ hefur
kannað veltu apóteka undanfarna
7 mánuði og er því ekki um að
ræða samanburð milli ára. -JBP
Um 3.000
fylgdust með
fundi á heimasíðu
Yfir 3.000 manns fylgdust með
fundi formanns og varaformanns
Sjálfstæðisflokksins í Sjallanum á
Akureyri á mánudagskvöld á heima-
síðu flokksins, www.xd.is. Fundur-
inn var sá fyrsti í 22 funda röð for-
manns og varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins undir yfirskriftinni „Til
fundar við þig“. Þar ræddu Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Geir H.
Haarde fjármálaráðherra ásamt
Tómasi Inga Olrich menntamálaráð-
herra og Ambjörgu Sveinsdóttur al-
þingismanni við kjósendur. Fundur-
inn var fjölmennur, hann sóttu á
fjórða hundrað manns. Þar að auki
var hann sendur út beint á nýrri
heimasíðu Sjálfstæðisflokksins. -GG
Guöni Ágústsson, varaformaöur Framsóknarflokksins, metur stööuna í pólitíkinni:
Hættaábngri
stjómarkreapu
„Mér sýnist aö skoðanakannan-
ir beri með sér að hér geti orðið
mikil og löng stjórnarkreppa ef
svo færi að hér yrðu tvær stórar
fylkingar sem tækjust á og allir
hinir flokkarnir, þar á meðal við,
yrðum smáflokkar."
Þetta segir Guðni Ágústsson,
varaformaður Framsóknarflokks-
ins og landbúnaðarráðherra, í
opnuviðtali sem birtist í DV á
morgun. Guðni ræðir þar um póli-
tíkina, kosningabaráttuna og met-
ur horfur í ljósi þeirrar stöðu sem
uppi er nú. Hann kveðst telja að
þriggja flokka stjórnir séu óheppi-
I legar. Framsókn
eigi kjörfylgi á bil-
inu 18-25 prósent
og til þess að hafa
styrk og stöðu
þurfi flokkurinn
| að vera á því bili.
„Miðað við
' stefnuskrá flokk-
anna hef ég enga
trú á því að
Vinstri grænir myndu til dæmis
sætta sig við samstarf við Fram-
sóknarflokkinn miðað við þær
framkvæmdir sem þegar eru
ákveðnar í landinu. Þeir hafa
Guðni
Ágústsson.
barist gegn þeim, þannig að ég sé
ekki alveg að þeir séu á leiðinni í
ríkisstjórn, Þetta er týpískur
stjómarandstöðuflokkiu- sem lifír
á þeim vettvangi og ég held að það
sé erfitt að mynda við hann sam-
starf,“ segir Guðni um hugsanlegt
stjórnarsamstarf flokkanna eftir
kosningar. „Aftur á móti held ég
að það gæti verið auðveldara með
Samfylkingu ef þeirra sögu, bæði
Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags, gætir enn innan raða henn-
ar. Sá flokkur er þá líklegri til að
vilja komast til áhrifa.“
-JSS
DV-MYND HARI
Tvö hundruð ára afmæll hinnar einkennisklæddu lögreglu
Sögusýning lögreglunnar var opnuö vlö hátíölega athöfn í gær en tilefnið var tvö hundruö ára afmæli hinnar einkennis-
klæddu lögreglu. Á sýningunni má meöal annars finna vopnasafn iögreglunnar, gamla lögreglubúninga, dagbækur lög-
reglunnar og margt fleira. Ríkislögreglustjóri skipaöi nefnd í byrjun síöasta árs til aö vinna aö undirbúningi afmæiisins
og er afrakstur þess meöal annars minnispeningur, minjagripir, kynningarrit um sögu, þróun og uppbyggingu lögregl-
unnar á íslandi og sögusýningin sem er í húsi ríkislögreglustjóra viö Skúlagötu.
Atvbmuleysið mældist 4% í mars
í marsmánuði síðastliðnum
voru skráðir 118.495 atvinnuleys-
isdagar á landinu öllu en þaö jafn-
gildir því að 5.645 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá í mánuðinum. Þessar tölur
jafngilda 4,0% af áætlun Efnahags-
skrifstofu fjármálaráðuneytis um
mannafla á vinnumarkaði í mars
2003.
í frétt frá Vinnumálastofnun
kemur fram að atvinnuleysið á
landsbyggðinni minnkar um 7,5%
milli mánaða. Atvinnuleysið er nú
Stuttar fréttir
D-listinn með mest fylgi
í skoðanakönnun sem IBM
gerði fyrir Stöð 2 dagana 12. til 14.
apríl nýtur Sjálfstæðisflokkurinn
mest fylgis. Fjórir af hverjum tíu í
könnuninni sögðust óákveðnir.
Samkvæmt könnuninni fengi
Sjálfstæðisflokkurinn 36,8% at-
kvæða en Samfylkingin 33,9. Mbl.
greindi frá.
Baugur og Sommerfield
Eftir að forsvarsmenn bresku
verslunarkeðjunnar Sommerfield
staðfestu að áhugi væri á að yflr-
taka félagið hækkuðu hlutabréf
þess um 20%. í breskum miðlum
er talið líklegt að Baugur geri til-
boð í Sommerfield sem rekur 588
verslanir undir eigin nafni og 686
3,6% af mannafla á landsbyggð-
inni en var 3,9% í febrúar síðast-
liðnum. Atvinnuleysið á lands-
byggðinni var 2,4% í mars árið
2002. Atvinnuleysi minnkar alls
staðar á landinu frá því í febrúar
nema á Norðurlandi vestra þar
sem það eykst lítils háttar og á
höfuðborgarsvæðinu þar sem það
er svipað.
Yfirleitt batnar atvinnuástandið
frá mars til apríl m.a. vegna árs-
tíðasveiflu. Fjöldi atvinnulausra
breyttist ekki að meðaltali milli
undir nafninu Kwik Save. Mbl.
greindi frá.
Gæsavarp hafiö í Hornafirði
Textavarpið greinir frá því að
gæsin sé farin að verpa. Nýlega
fannst gæsahreiður með nýorpn-
um eggjum í Griðungsey í Homa-
firði. Þetta er óvenju snemmt því
vanalega byrjar gæsin ekki að
verpa fyrr en í lok apríl.
mars og apríl 2002 en flölgaði um
12,2% milli þessara mánaða árið
2001 sem stafaði af lokun fisk-
vinnsluhúsa í kjölfar sjómanna-
verkfalls í aprílmánuði á því ári.
Mikil hreyfing hefur verið á at-
vinnuleysisskrá og framboð
lausra starfa vaxið talsvert á nýj-
an leik. Þannig voru laus störf í
lok marsmánaðar 296 eða 126 fleiri
en í lok febrúar. Að öllu saman-
lögðu er því líklegt að atvinnu-
leysið minnki lítils háttar í apríl
og verði á bilinu 3,7% til 4%. -VB
Lyf fyrir 5,4 milljarða
Tryggingastofnun greiddi 5,4
milljarða króna í fyrra í lyfla-
kostnað. Útgjöldin jukust um 600
milljónir milli áranna 2001 og
2002. Almannatryggingar greiða á
milli 63 og 68% allra lyfla sem
keypt eru í apótekum hér á landi.
Ódýrt efni í austurveg
Ríkissjónvarpið er að taka sam-
an efni sem selja á til Eystrasalts-
landanna gegn vægu gjaldi. Nor-
rænar sjónvarpsstöðvar ætla að
senda 319 klukkustundir af efni til
Eystrasaltslandanna að beiðni
Sambands evrópskra sjónvarps-
stöðva. Mbl. greindi frá. -Kip
Btt filboð í
þrotabú
kjúklingabúsins
Eitt tilboð barst í þrotabú
kjúklingabúsins íslandsfugls í
Dalvíkurbyggð, en tilboð voru
opnuð eftir hádegi sl. þriðjudag.
Ólafur Rúnar Ólafsson skipta-
stjóri segir að tilboðið hafi komið
frá óstofnuðu einkahlutafélagi, en
gaf ekki upp hverjir stæðu á bak
við það.
Næst á dagskránni er að
skiptastjóri setur sig í samband
við veðkröfuhafa íslandsfugls og
kynnir þeim fram komið tilboð.
Kröfuhafarnir ákveða síðan hvort
þeir sætta sig við tilboðið eða
hvort þeir vilja bjóða betur, eins
og heimild er fyrir í lögum.
Að því ferli loknu segist Ólafur
Rúnar taka ákvörðun um fram-
haldið. Það er hvort fram komnu
tilboði verður tekið eða annarra
leiða verði leitað. Á þessari
stundu er því alls óljóst hver nið-
urstaðan verður.
Blaðið hefur góðar heimildir
fyrir því að að baki tilboðinu
standi Auðbjörn Kristinsson,
fyrrum eigandi íslandsfugls,
ásamt fleinun. -hiá
Tóku myndir
hver af öðrum
reykjandi hass
Á mánudagskvöld var lögreglunni
tilkynnt að bíl hefði verið stolið fyr-
ir utan Bústaðakirkju. Bíllinn sást
svo í umferð í nótt og stöðvaði lög-
reglan hann. í honum voru flórir
unglingar á aldrinum 15 til 16 ára.
Lögreglan handtók þrjá þeirra en sá
fiórði komst undan. Voru þeir fluttir
á lögreglustöðina og síðan sendir á
meðferðarheimilið Stuðla vegna
ungs aldurs þeirra. í bílnum fannst
myndbandsupptökuvél og myndband
af piltunum en þeir höfðu verið að
mynda hver annan við að reykja
hass í bílnum. -EKÁ
Bílannír ónýfin
en minni háttar
meiðsl á fólki
Harður árekstur varð á mótum
Flugvallarvegar og Hringbrautar
í Keflavík á hádegi í gær. Tveir
menn voru í bílunum og var ann-
ar þeirra fluttur á slysadeild en
meiðsl hans voru talin minni
háttar. Bílamir gjöreyðilögðust
og þurfti að fiarlægja þá af vett-
vangi með kranabíl. -EKÁ
I •±+A\ helgarblað
Systurnar hrjár
í Helgarblaði
I DV verður rætt
við systumar
Ingibjörgu, Þór-
unni og Hjördísi
Elínu Lárusdæt-
I ur sem tala um
nýja dagskrá á Nasa, trompetnám og
töffaraskap og minnast föður síns.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra
tjáir sig í ítarlegu viðtali um stjóm-
i i.
;#i - i * .
Yk
málaástandið. DV ræðir við einstak-
linga úr atvinnulífinu sem sest hafa á
skólabekk á ný í Háskóla Reykjavíkur,
skoðar feril kvennagullsins Sigurðar
A. Magnússonar í nýrri ævisögu hans
og veltir því fyrir sér hvort páskamir
eigi að vera leiðinlegir.