Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Blaðsíða 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003
I3v
Ökumaöur malarflutningabíls slapp ótrúlega vel í Hafnarfiröi í fyrradag:
„ÁW ekkl von á því
að sleppa lllandi"
DV-MYND ÞOK
Frá slysstað í Hafnarfiröl í fyrrakvöld
Ólafur Guömundsson taldi þetta vera sitt síöasta og lá klemmdur í saman klesstu ökumannshúsinu sem var
auk þess hálffullt afsandi.
Ólafur Guðmundsson, ökumað-
ur malarflutningabíls Neshamars,
slapp á undraverðan hátt úr
árekstri við fólksbíl og slysi á
gatnamótum Reykjanesbrautar og
Lækjargötu í Hafnarfirði í fyrra-
kvöld. „Ég slapp ótrúlega vel og
má þakka fyrir að vera á lífi,“
sagði Ólafur í samtali við DV í
gær. Hann ökklabrotnaði í slysinu
og var nokkuð marinn og lemstr-
aður en annars við þokkalega
heilsu.
Ólafur var að keyra norður
Reykjanesbrautina yfir gatnamót-
in þegar fólksbíll beygði fyrir
hann á leið inn í Setbergshverfíð.
Tók Ólafur það þá til bragðs að
stefna fulllestuðum stórum drátt-
arbíl sínum með tengivagn út af
vegkantinum og hafnaði hann
niðri á gangstíg við undirgöng
undir Reykjanesbrautina. Bíllinn
vai' fullhlaðinn af sandi og í heild
um 40 tonn að þyngd. Hnoðaðist
ökumannshúsið saman við höggið
og sandurinn af pallinum helltist
yfir það. Húsið á bílnum, þar sem
Ólafur lá klemmdur, hálffylltist
því af sandi. Segir hann þetta
hroðalega upplifun, en nokkra
stund tók fyrir sjúkralið að moka
sandinum frá til að ná Ólafi úr
flakinu sem klippa þurfti í sund-
ur.
Skelfileg tilfinning
„Maður hugsaði með sér að
þetta væri bara restin - þetta væri
búið. Ég átti ekki von á því að
sleppa lifandi frá þessu. Allt gerð-
ist þetta á þvílíkri örskotsstundu
að maður gat fátt hugsað. Ég var
þó mikið með hugann við hvernig
fólkinu í smábílnum hefði reitt af.
Þar voru fjórir og það var stóra
lánið að fólkið skyldi sleppa.“
- Það hefur þá veriö eini mögu-
leikinn hjá þér að keyra þama út
af til að bjarga fólkinu frá því að
lenda undir bílnum hjá þér?
„Já, það var í rauninni það eina
sem ég gat gert til að forða okkur
frá enn stærra slysi.“
Ótrúlegt hugrekki
Meðeigandi Ólafs í fyrirtækinu
Neshamri, Gísli Hjartarson, segir
hann hafa sýnt ótrúlegt hugrekki
þegar hann ákvað að stýra bílnum
út af til að koma í veg fyrir að
þungur bíllinn færi hreinlega yfir
fólksbílinn. Með því hafi hann sett
sjálfan sig í mikla lífshættu.
„Það var ótrúleg mildi að hann
skyldi sleppa lifandi frá þessu og
að enginn skyldi vera á gangi
þarna sem bíllinn lenti. Ólafur
hringdi í mig um leið og þetta
gerðist og hafði miklar áhyggjur
af því að nú fengi viðtakandi
farmsins ekki sandinn á réttum
tima og baö mig að láta hann
vita.“
Gísli telur að ef farmurinn hefði
verið grjót en ekki sandur heföi
ekki þurft að spyrja að leikslok-
um.
Hættulegustu gatnamótin
Þessi gatnamót hafa mestu slysa-
tíðni allra gatnamóta í Hafnarfirði
samkvæmt tölum tryggingafélagsins
Sjóvár-Almennra um tjón og slys í
Hafnarfirði frá árinu 1995 til þessa
dags. Um 25 þúsund bílar eru taldir
aka noröan gatnamótanna á sólar-
hring og um 18 þúsund sunnan
þeirra. Þar urðu á þessu tímabili
11% allra tjóna á gatnamótum í
Hafnarfirði og 25% slysa á fólki. Hjá
Sjóvá-Almennum telja menn því
glapræði að fresta eða falla frá áæti-
unum um gerð mislægra gatnamóta
á þessum stað með gerð hringtorgs.
Bent er á í samanburði að hring-
torgið Melatorg er í sjöunda sæti
yfir hættulegustu gatnamót í
Reykjavík.
Ölafur Guðmundsson segir frá-
leitt aö setja hringtorg á þennan
stað. „Það yrði bara dauðagildra. Ég
teldi það algjört óráð og hringtorg er
ekki nokkur einasta lausn.“
Meðalkostnaöur i hverju tjóni í
Hafnarfirði árið 2002 var um 578
þúsund krónur. Á gatnamótum
Reykjanesbrautar og Lækjargötu
var meðaltjónkostnaður hins vegar
1.319 þúsund krónur, sem er 228%
hærra en meðaltjónkostnaður í
Hafnarfirði. -HKr.
Nýir eigendur Þorfinnsstaðaskóla ætla að flytja íbúðarhúsin:
Yfirvöld leita leiða til riftunar
Sveitarstjórn Húnaþings
vestra kannar nú hvort unnt sé
að rifta sölu á fasteignum við
Þorfinnsstaðaskóla í Vesturhópi.
Eignirnar voru seldar um sið-
ustu áramót, í samvinnu við Rík-
iskaup, til Steypustöðvar
Blönduóss en sveitarstjórn hafði
látið þá ósk í ljósi að eignimar,
tvö íbúðarhús auk skólahúsnæð-
is, yrðu nýttar til ferðaþjónustu
og aukinnar starfsemi á svæð-
inu. Nú hefúr Steinar Jónsson,
framkvæmdastjóri Steypustöðv-
ar Blönduóss, uppi áform um að
flytja húsin í nágrenni Akraness
þar sem byggð rís í tengslum við
stóriðjuna.
Elín R. Líndal, formaður
byggðarráðs Húnaþings vestra,
segir að það valdi vonbrigðum
að viðkomandi aðili hafi ekki
einu sinni reynt að nýta húseign-
imar undir starfsemi á svæðinu
en hún segir að sveitarstjórn
hafi samþykkt sölu eignanna,
sem voru í sameiginlegri eigu
ríkis og sveitarfélags, í trausti
þess að áform Steypustöðvar
Blönduóss um rekstur ferðaþjón-
ustufyrirtækis gengi eftir sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
tilboðsaðili veitti. En bókað var í
þessa veru í sveitarstjórn á sín-
um tíma og eins látin sú ósk í
ljós að sala fasteignanna myndi
efla ferðaþjónustuna og þannig
byggð í sveitarfélaginu.
A Þorfinnsstöðum eru, eins og
áður segir, tvö íbúðarhús úr
timbri, á annaö hundrað fermetra
hvort um sig. Kaupverð allra
eigna á Þorfinnsstöðum var um 10
milljónir króna. Sveitarstjórn
aflar nú lögfræðiálits um
möguleika á riftun, sem kannski
eru ekki miklir eins og málum er
komið. -ÞÁ
DV-MYND HAFDlS ERLA BOGADÖTTIR
Dagný Jónsdóttir viö Defender-jepp-
ann eftir næturævintýrið í Langadal.
Ljóslaus fpam-
bjóðandi ók
fram á hjörð
Þau miklu ferðalög sem fram-
bjóðendur eiga að baki þessa síð-
ustu daga fyrir kosningar eru mikil
og ekki alltaf laus viö hættu. Því
fékk hún Dagný Jónsdóttir, sem
skipar 3. sæti á lista Framsóknar-
flokksins í Norðausturkjördæmi, að
kynnast á ferð sinni frá Akureyri
til Eskifjarðar í gærkvöld.
Þótt Dagný væri á einkar glæsi-
legum og vel búnum Land Rover
jeppa varð hún fyrir því óláni að
aðalljósin gáfu sig á bílnum og ein-
ungis stefnuljós og bremsuljós virk-
uðu. Tók því ferðin býsna langan
tima þar sem frambjóðandinn ók
afar hægt og varlega, vart mikið
yfir 30 kílómetrana á klst.
En þrátt fyrir að Kosningastress
sé víða farið að búa um sig var
ekki hægt að segja þaö sama um
hreindýrahjörðina sem Dagný ók
fram á í rökkrinu í Langadal. Þau
stóðu róleg á veginum, hreindýrin,
og létu sér ekki bregða þótt glæsi-
legur frambjóðandi kæmi aðvifandi
á sínum fina Land Rover.
„Það varð mér nú til happs að ég
var á mjög lítilli ferð og dýrin
hreyfðu sig ekki, en ég var ósköp
fegin að flautan var í lagi því ég
hef satt að segja aldrei verið dugleg
að smala dýrum,“ sagði Dagný
sposk á svip, enda er þessi upp-
rennandi stjómmálakona eflaust
duglegri að smala kjósendum.
_________________ -HEB
Kjaradómur:
Hækkun á kjör-
dag ekki lögmál
„Það er ekkert náttúrulögmál að
Kjaradómur kveði upp úrskurði sína
á kjördegi,“ segir Garðar Garðars-
son, lögmaður og formaður Kjara-
dóms, í samtali við DV.
Þegar landsmenn gengu að kjör-
borðinu fyrir fjórum árum kom
dómurinn saman og kvað upp úr-
skurð sem kvað á um verulega
hækkun launa þingmanna og æðstu
embættismanna þjóðarinnar. Launin
hækkuöu um nærfellt 30% og þar af
hækkuðu mánaðarlaun þingmanna
um 66 þúsund kr. Hækkunin var
kynnt daginn eftir kjördag. Garðar
Garðarsson vildi ekkert segja til um
hvort vænta mætti nýrra tíðinda úr
ranni Kjaradóms. „Dómurinn tjáir
sig með sínum ákvörðunum. Ekki
öðruvísi," sagði hann. -sbs
www.reykjavik.is
» Kjörskrár í Reykjavík vegna Alþingiskosninga 2003 eru á www.reykjavik.is
» Sláðu inn kennitölu og fáðu upplýsingar um kjörstað og kjördeild
||| Reykjavíkurborg