Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 DV Fréttir Kjörsókn í alþingiskosningum frá 1944 lengst af í kringum 90 prósent: Kjörsókn hefur snap- minnkað á tóll árun Kjörsókn hefur snarminnkað í alþingiskosningum síðustu ár, hefur minnkað um ríflega 7 pró- sent frá 1987. Kjörsókn í alþingis- kosningum var lengi vel mjög mikil hér á landi, meiri en í flest- um ríkjum með frjálsar kosning- ar. En í síðustu kosningum var kjörsóknin minni en hún hafði verið í heila öld. Þessi þróun kemur mjög skýrt fram á með- fylgjandi grafi. Frá fyrstu alþingiskosningum eftir stofnun lýðveldisins 1944, en þær fóru fram 1946, hefur kjörsókn í alþingiskosningum verið í kringum 90 prósent. í 7 al- þingiskosningum af 17 á þessum tíma var kjörsóknin yfir 90 pró- sent. Mest var hún í kosningun- um 1956 eða 92,1 prósent. í kosn- ingunum 1987 greiddu 90,1 pró- sent atkvæðisbærra manna at- kvæði en síðan hefur þróunin verið niður á við. Vorið 1991 var kjörsóknin 87,6 prósent, 87,4 pró- sent 1995 og 84,1 prósent í alþing- Kjörsókn í alþingiskosningum frá lýðveldisstofnun Kjörsókn í sex áratugi Grafiö sýnir þróun kjörsóknar í alþingiskosningum frá lýöveldisstofnun 1944. Kjörsókn hefur veriö aö minnka frá því í kosningunum 1987 og var komin niöur í 84,1 prósent 1999. iskosningunum 1999. Er það þingiskosningum á íslandi frá minnsta kosningaþátttaka í al- því í seinni heimsstyrjöldinni. Á Norðurlöndum og í einstaka Evrópulöndum, þar sem frjálsar kosningar eru viðhafðar, hefur kjörsókn ekki verið mjög langt undir þeirri sem hér er. En víða hefur minnkandi kjörsóknar orð- ið vart á undanfómum árum, einkum þar sem kosningar eru mjög tíðar. Árin 1874-1903 var kosninga- réttur einungis bundinn við karla eldri en 25 ára. 19. júní 1915 fengu konur fyrst kosningarétt. Þá miðaðist kosningaréttur við 40 ára aldurstakmark en það fór lækkandi með hverju ári. Árið 1934 var aldurstakmark vegna kosningaréttar kvenna alveg afnumið. Var kosningaréttur síð- an miðaður við 21 árs aldur. Árið 1971 var kosningaréttur miðaður við 20 ára aldur en sam- kvæmt núgildandi kosningalög- um er aldurstakmark vegna kosningaréttar 18 ár. -hlh Þyrla Landhelgisgæslunnar sóttl veikan sjómann um borð í Þerney RE TF-Llf, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í sjúkraflug í togarann Þerney RE í gærkvöld þar sem veikur sjómaöur var um borö. Togarinn var á veiöum á karfamiöum viö tvö hundruö sjómílna mörk efnahagslögsögunnar en sigldi til móts viö þyrluna. Sjúklingurinn var híföur um borð í þyrluna tvö hundruö og fimmtán sjómílur suövestur af Reykjavík. Þrír lögreglu- menn sýknaðir Hæstiréttur sýknaði í gær ís- lenska ríkið og þrjá lögreglumenn af skaðabótakröfu manns vegna lík- amstjóns sem hann varð fyrir í lög- reglubíl á ferð í kjölfar handtöku. Höfðu lögreglumennirnir beðið hann að sýna innihald vasa sinna en hann var í annarlegu ástandi af völdum amfetamínneyslu. Hann brást ókvæða við þeirri bón og hrópaði að lögreglumönnunum að þeir yrðu að handjárna sig. Til stympinga kom áður en til slíkrar leitar gat komið sem maður- inn stofnaði til með mótþróa sínum og lauk þeim á þann veg að smellur heyrðist í öörum handlegg hans og reyndist um að ræða brot á vinstri upphandlegg hans. Lögreglumenn- irnir eru ekki taldir hafa sýnt af sér ógætni eða gengið harkalegar fram gagnvart manninum en nauðsynlegt var til að vinna bug á mótþróa hans gegn lögmætum aðgerðum, þótt svo illa hafi til tekist að hann slasaðist í átökunum. -EKÁ lceland Express: Veruleg fjölgun farþega Lággjaldafélagið Iceland Express flutti 12.600 farþega í apríl og er það töluvert meira en í febrúar og mars. Að sögn forráðamanna félagsins er sætanýting góð og um 40% farþeg- anna koma erlendis frá. Samkvæmt skráningu á ferða- mönnum í Leifsstöð varð 35% aukn- ing ferðamanna til og frá landinu í apríl miðað viö sama tíma fyrir ári og gætir þar áhrifa Iceland Express. Hlutur félagsins í heildarfjölda far- þega í apríl var 13,5% og er það ívið hærra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá segja forráðamenn Iceland Ex- press að reksturinn hafi gengið mjög verl þessa fyrstu tvo mánuði frá því flugstarfsemin hófst. Farþegar séu töluvert fleiri en ráð var fyrir gert. Um 75% af farmiðasölu félagsins fer fram á Netinu, en önnur sala fer fram á söluskrifstofum félagsins í Reykjavík, Kaupmannahöfn og London. Iceland Express flýgur daglega til London og Kaupmannahafnar. -aþ Ríkið semup við Heypnaptækni Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið hefur gert samkomulag við fyrirtækið Heyrnartækni um þátttöku ríkisins í kostnaöi sjúkra- tryggðra við kaup á heymartækjum og nauðsynlegri þjónustu. Samning- urinn er geröur á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu og reglugerð- ar um þátttöku ríkisins í kostnaði við hjálpartæki fyrir þá sem eru með heymarmein. Viðskiptavinir fyrirtækisins greiða umsamið heildarverð fyrir heymartækin, að frádregnum til- teknum hlut rikisins í heildarverð- inu, sem er nú 28.000 kr. fyrir þá sem rétt eiga á endurgreiðslu. -EKÁ Sameinumst gegn bruöli og sóun stjórnvalda. Hættum vegabréfaskoðun fyrir Efnahagsbandalagið. Notum þœr þúsundir milljóna fyrir ferða- þjónustuna á íslandi. Magnússon skipar 1. sæti í Reykjavík suður Kj'ósum N-listann = Nýtt Afl ...stjómmálaflokkur fólksins Auölindanefnd um áhrif 10% fyrningar: Minnkap vepðmæti um 59 ppósent kvótans Verðmæti varanlegra aflahlut- deilda myndi minnka um 58,8% um leið og ákveðið yrði að fyma 10% kvótans á ári, að því er fram kemur í skýrslu auðlindanefndar frá árinu 2000. Núvirt verðmæti varanlegra aflahlutdeilda var þá áætlað alls 290 milljaröar króna en myndi sam- kvæmt þessu lækka um 171 milljarð. Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af endur- sölu kvótans (á uppboði eða markaði) yrðu 12 milljarðar króna á ári, en til að ná sömu tekjum þyrfti að leggja 20% gjald á verðmæti alls landaðs afla. Útreikningamir vom gerðir af Hagfræðistofnun Háskóla íslands. Við núvirðisreikninginn var gert ráö fyrir 7% ávöxtunarkröfú. I skýrslunni kemur fram að ef kvótinn yrði fymdur um 5% á ári myndi heildarverðmæti hans minnka um tæp 42% eða um 121 milljarð króna og árlegar tekjur ríkissjóðs yrðu 8,5 milljarðar króna. Ef hann yrði fymdur um 1% á ári myndi verðmætið minnka um 12,5% eða 36 milljarða og árlegar gjaldtekjur verða 2,5 milljaröar. „Þar sem virði útgerðar sem á aflaheimildir minnkar þegar auð- lindagjald er lagt á, lækkar veðhæfi hennar og það getur leitt til óróa meðal lánardrottna,“ segir í skýrsl- unni. „Þá rýmar verðmæti hvers eignarhlutar í útgerðinni og sú rýmun getur skfljanlega haft áhrif á fjárhagsstöðu eigendanna." Erlendur Magnússon, fram- kvæmdastjóri á alþjóðasviði íslands- banka, segist spurður um þessi áhrif ekki hafa haft tækifæri til að reikna þau nákvæmlega út. „En það er nokkuð ljóst að ef menn tækju 10% kvótans á ári hefði það mjög alvarleg- ar afleiðingar fyrir flest fyrirtæki í greininni. Greiðslugeta greinarinnar til aö standa skil á sínum lánum myndi án efa skerðast. Það liggur í augum uppi að ef 10% af framleiðslu- getu fyrirtækis er tekin af því þannig að það þurfi að kaupa hana aftur, þá hlýtur það að skerða greiðslugetu fýr- irtækisins allverulega.“ -ÓTG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.