Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003
DV
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstartil
kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breyt-
ingum á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík:
Skúlatúnsreitur eystri, Vélamiðstöðvarreitur.
Tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Skúlatúni,
Borgartúni, Höfðatúni og Skúlagötu.
Á fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 16. 04. 03
var samþykkt að auglýsa á ný, deiliskipulagstillögu að
framangreindum reit með nokkrum breytingum. Tillagan
var áður auglýst frá 14. nóv. til 12. des., 2001 með
athugasemdafresti til 31. des. 2001. Tillagan er í megin-
atriðum eins og sú tillaga sem áður var auglýst.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að á norðurhluta reitsins
(norðan lóðanna við Skúlagötu) verði heimilt að byggja
nýbyggingar sem að jafnaði skulu vera 4-6 hæðir. Heimilt
er þó að byggja þar eina Turnbyggingu sem má vera allt
að 16 hæðir. Á suðurhluta reitsins er gert ráð fyrir að
heimilt verði að byggja 1-2 hæðir ofan á húsin við Skúla-
götu 59 og 3-4 hæðabyggingar á lóðum aftan við húsin
við Skúlagötu. Bílastæðakrafa er 1 stæði á hverja 40 fm
húsnæðis auk 75 bílastæða fyrir stofnanir Reykjavíkur-
borgar að Skúlatúni 2 og Borgartúni 3. Landnotkun á
reitnum er miðsvæði og M5 samkvæmt Aðalskipulagi
Reykjavíkur 2001 -2024 og því fyrst og fremst gert ráð fyrir
blandaðri atvinnustarfsemi s.s. fjármála-, hátækni- og
þekkingarfyrirtækjum, rannsóknarstarfsemi, hóteli og
þjónustu tengdri slíkri starfsemi.
Breytt tillaga gerir ráð fyrir m.a., að á norðurhluta reitsins
verði heimilt að byggja bílgeymslu ofanjarðar. Við það
eykst nýtingarhlutfall á norðurhluta reitsins lóðinni úr 1,5 í
1,93. Á tillögunni er nú einnig sýndur möguleiki á að
byggja inndregna hæð ofan á Höfðatún 12 í staðinn fyrir
byggingu á baklóð sem samkvæmt deiliskipulags-
tillögunni er gert ráð fyrir að verði fjarlægð. Nánar um
tillöguna vísast til kynningargagna.
Suður-Mjódd, flettiskilti ÍR
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Suður-Mjóddar, á
horni Breiðholtsbrautar og Skógarsels/Stekkjarbakka.
Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að flettiskilti, sem áður hafði
verið samþykkt við bifreiðastæði við Álfabakka, verði
staðsett í brekkufót vestan við undirgöng undir Breið-
holtsbraut, rétt utan við gatnamót Breiðholtsbrautar og
Skógarsels/Stekkjarbakka á borgarlandi. Skilmálar: Innan
afmarkaðs svæðis er heimilt að reisa tölvustýrt flettiskilti
með þremur myndflötum ofan á steyptum sökkli. Stærð
hvers myndflatar má vera allt að 6,4m x 4,3m. Hæð skiltis
má vera allt að 8,5m frá núverandi landi. Skiltið skal
staðsetja minnst 35m frá miðlínu Breiðholtsbrautar og
62m frá miðlínu Skógarsels. Vanda skal frágang við fót
skiltis. Með þessari tillögu er heimil frávik frá samþykkt
um skilti í lögsögu Reykjavíkur gr. 6.7 og 7.2 sbr. gr. 9.1.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10.00 - 16.15 og fimmtudaga til 18.00, frá 09.05. 2003 -
til 20.06. 2003. Einnig má sjá tillögur á heimasíðu
sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila
skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 20. júní 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 9. maí 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Fréttir
DV-MYNDIR SIGURÐUR JÖKULL
Vinafundur í Vetrargaröi
Össur Skarphéöirtsson þrumaöi yfir liöinu í Smáralind og örvaöi fólk til dáöa.
Stemningin könnuö kortéri fyrir kosningar:
Harðfiskup, kaffi og kleinup
KafEl og kleinur, karlar á skrafl
og kostaboð í bæklingum. Þannig
var staöan í bólvirki framsóknar-
manna í Reykjavík þegar DV leit
þar inn síðdegis í gær. Við fórum á
kosningarúnt og könnuðum stöö-
una. Stemningin var misjöfh frá ein-
um stað til annars en aÚir telja sig
eiga góða möguleika. Annað hvort
út frá nýjustu könnun ellegar lifa
menn og starfa í anda þeirra spöku
orða að sigursæll sé góður vilji.
Mikið niðri fyrir
„Þetta er spennandi barátta og
fuÚ af gleði,“ sagði Gestur Kr. Gests-
son, húsbóndi í höfuðstöðvum
Framsóknar í borginni. „Þessi bar-
átta hefur verið full af gleði. Halldór
er tæpur inn en hann verður að ná
kjöri. Það markmið hefur tvíeflt
okkur.“
í Smáralind var fjölskyldu- og
baráttuskemmtun Samfylking-
arinnar. Össur þrumaði yfir liðinu.
„Nú verðum við að grípa tækifærið
og gera Ingibjörgu Sólrúnu að for-
sætisráðherra," sagöi flokksformað-
urinn. Manninum var mikið niðri
fyrir. Allir gátu skilið þungann í
orðunum; jafnvel bömin, sem vom í
meirihluta í Vetrargarðinum.
Einnig fólk með grátt í vöngum sem
er að sjá draum sinn um stóran og
öflugan jafnaðarmannaflokk rætast.
Hjá því er vor í lofti.
Upplögð uppáhelling
Næst lá leið okkar í vertíðar-
stemningu í Glæsibæ. Þar voru
sjálfstæðismenn á öllum aldri að
ganga frá kafiipokum sem þeir ætla
að senda inn í hvert hús I borginni
í kvöld. „Þetta verður uppáhellingin
að morgni kjördags. Kemur blóðinu
af stað,“ sagði Sveiijn Scehving sem
stjórnar starfmu á skrifstofunni.
Hann segist fmna góðan anda. Fólk
vilji Sjálfstæðisflokkinn áfram í
stjóm.
„Hingað koma aldrei færri en
hundrað manns á dag. Stundum
miklu fleiri. Mér finnst þessi bar-
átta auðveldari en oft áður. Þetta er
mikil breyting, til dæmis borið sam-
an við borgarstjómarkosningamar
í fyrra.“
í Dritvík er nú daufleg vist,
kvað Jón Helgason í Áföngum.
Sama gilti hjá Nýju afli. Við áttum
Framsókn og fjör
Þrír valinkunnir frambjóöendur og kosningastjórinn, Gestur Kr. Gestsson.
tGítarinn ehf.
☆ Stórhöföa 27
slmi 552-2125 og 895-9376
SftsiaW
élog
☆
’g.m
www.gitarinn.is
gitarinn@gitarinn.is vV