Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 íslendingaþættir_______________________________________________________________________________________________________DV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Folk í fréttum higa Rós IngólfsdótSr sellóleikari og framkvæmdastjóri Kirkjuhátíöar 2003 8$ árg______________________ Sigurður Brynjólfsson, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. 80 ára______________________ Sigrún Sigurjónsdóttir, Laugarnesvegi 64, Reykjavík. Svava Jónsdóttir, Gunnarsbraut 26, Reykjavik. 75ára Bjarni Þórarinsson, Staöarhrauni 1, Grindavík. Hallbera G. Leósdóttir, Heiöarbraut 53, Akranesi. Hulda Magnúsdóttir, Hamraborg, Akureyri. Kristján Ólafsson, Kjartansgötu 18, Borgarnesi. 70 ára_________________________________ Elín Ingvarsdóttir, Húsatóftum 3, Selfossi. Guðríður S. Valgeirsdóttir, Vallargötu 24, Keflavík. húsmóöir. Guö- ríður býöur ættingjum og vinum að gieöj- ast með sér á afmælisdaginn á heimli dóttur sinnar, Melbraut 17, Garöi, á af- mælisdaginn eftir kl. 16.00. Jóhanna Rósinkrans, Lindarbraut 6, Seltjarnamesi. Kristín Magnúsdóttir, Völusteinsstræti 32, Bolungarvík. Rögnvar Ragnarsson, Steinholtsvegi 9, Eskifirði. Svava Kjartansdóttir, Sólvöllum 7, Selfossi. Örn Ingólfs Ingólfsson, Hringbraut 62, Hafnarfiröi. 60 ára_________________________________ Einar Magnússon, Háholti 8, Keflavík. Hallur Sturlaugur Jónsson, Fellsmúla 5, Reykjavík. Jón Zophoníasson, Hríseyjargötu 22, Akureyri. Rósa B. Árilíusardóttir, Hóli, Borgarnesi. Sigrún Stefánsdóttir, Brekkugötu 3, Vogum. Þorbergur Kristinsson, Blómahæð 1, Garðabæ. Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari er framkvæmdastjóri Kirkulistahá- tíðar Hallgrímskirkju sem hefst 29.5. nk. eins og fram kom í DV í fyrradag. Starfsferill Inga Rós fæddist í Reykjavík 17.3. 1953 og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1973, einleikaraprófi í sellóleik frá Tón- listarskólanum í Reykjavík 1976, stundaði framhaldsnám við Tón- listarháskóla Rínarlanda 1976-81 og hjá prófessor Johannes Goritzki í Dússeldorf. Inga Rós er fastráðin sellóleik- ari við Sinfóníuhljómsveit íslands frá 1982, meðlimur í Kammersveit Reykjavíkur frá sama tíma, og var sellóleikari í Reykjavíkurkvartett- inum 1990-93. Inga Rós sat í stjórn Félags ís- lenskra tónlistarmanna 1988-90 og var formaður félagsins 1995-98, sat í stjórn Bandalags íslenskra listamanna 1995-98, í stjórn Nor- disk solistrád 1995-98, í stjórn Kammersveitar Reykjavíkur 1994-2002, hefur setið í stjórn Starfsmannafélags Sinfóníuhljóm- sveitar íslands og í ýmsum nefnd- um þess, var fulltrúi í Listanefnd vegna undirbúnings Kristnihátíð- ar 2000, í fulltrúaráði Listahátíðar í Reykjavík 1995-98 og er fram- kvæmdastjóri Kirkjulistahátíðar frá 2000. Inga Rós hefur leikið inn á fjölda geisladiska með Sinfónu- hljómsveit íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Mótettukór Hall- grímskirkju og fleiri og hefur komið fram á tónlistarhátíðum víða um heim. Fjölskylda Inga Rós giftist 15.6. 1974 Herði Áskelssyni, f. 22.11.1953, organista og kórstjóra. Hann er sonur Ás- kels Jónssonar, f. 5.4.1911, d. 2002, söngstjóra á Akureyri, og k.h., Sigurbjargar Hlöðversdóttur, f. 8.5. 1922, húsmóður. Böm Ingu Rósar og Harðar eru Guðrún Hrimd Harðardóttir, f. 7.9. 1974, víóluleikari, en maður henn- ar er Gunnar Andreas Kristinsson tónskáld; Inga Harðardóttir, f. 17.2. 1979, guðfræðinemi, maður hennar er Guðmundur Vignir Karlsson, BA í guðfræði og tónlist- armaður, og er dóttir þeirra Björt Inga; Áskell Harðarson, f. 24.5. 1990. Alsystur Ingu Rósar: Þorgérður, f. 5.11. 1943, kórstjóri í Reykjavík; Rut, f. 31.7. 1945, fiðluleikari í Reykjavík; Vilborg, f. 3.6. 1948, yf- irhjúkrunarfræðingur hjá Land- læknisembættinu i Reykjavík; Unnur María, f. 6.5.1951, fiðluleik- ari í Garðabæ. Hálfsystkini Ingu Rósar, sam- feðra, eru Andri Már Ingólfsson, forstjóri i Reykjavík; Eva Mjöll Ingólfsdóttir, fiðluleikari í New York; Árni Heimir Ingólfsson, tón- listarmaður í Reykjavík. Foreldrar Ingu Rósar eru Ingólf- ur Guðbrandsson, f. 6.3. 1923, for- stjóri og kórstjóri í Reykjavík, og Inga Þorgeirsdóttir, 2.2. 1920, kennari. Ætt Ingólfur er sonur Guðbrands, b. á Prestbakka á Síðu, bróður Þor- finns, afa Ómars Ragnarssonar, fréttamanns og dagskrárgerðar- manns. Guðbrandur var sonur Guðbrands, b. á Hraunbóli og á Orustustöðum, Jónssonar b. í Efri- Vík, Þorkelssonar. Móðir Jóns var Málmfríður Bergsdóttir, pr. á Prestbakka, Jónssonar og Katrín- ar Jónsdóttur eldprests Stein- grímssonar. Móðir Guðbrands á Prestbakka var Guðlaug Ijósmóð- ir, hálfsystir, samfeðra, Þuríðar, ömmu Valgerðar Dan leikkonu. Guðlaug var dóttir Páls, b. á Hörgslandi, Stefánssonar, bróður Guðlaugar, móður Jóhönnu Egils- dóttur verkalýðsfrömuðar, ömmu Jóhönnu Sigurðardóttur alþm. Móðir Guðlaugar ljósmóður var Ragnhildur Sigurðardóttir. Móðir Ingólfs var Guðrún Auðuns- dóttir, b. á Eystri-Dalbæ, Þórarins- sonar og Sigríðar Sigurðardóttur. Inga er dóttir Þorgeirs, b. og smiðs á Hlemmiskeiði, bróður Sig- ríðar, móður Þorsteins Sigurðs- sonar, dbrm. á Vatnsleysu, for- manns Búnaðarsambands íslands. Önnur systir Þorgeirs var Þórdís, amma Gunnars Eyþórssonar fréttamanns, fóöur Eyþórs tónlist- armanns. Þorgeir var sonur Þor- steins, b. á Reykjum, Þorsteins- sonar, b. í Brúnavallakoti, Jör- undssonar, b. í Laug, Illugasonar, Skálholtssmiðs, Jónssonar. Móðir Þorgeirs var Ingigerður, systir Ei- ríks á Ólafsvöllum, föður Sigurðar regluboða, föður Sigurgeirs bisk- ups, föður Péturs biskups, Ingi- gerður var dóttir Eiríks, hrepp- stjóra á Reykjum, Eiríkssonar, ættföður Reykjaættar, Vigfússon- ar. Móðir Ingu var Vilborg Jóns- dóttir, smiðs á Hlemmiskeiði, Jónssonar og Vilborgar, systur Þórðar, langafa Guðlaugs Berg- manns og Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Vilborg var dóttir Guðlaugs, b. á Hellum, Þórðarson- ar, b. á Hellum, Stefánssonar, á Bjalla, bróður Rannveigar Filipp- usdóttur, og Jóns á Brekkum, afa Sólveigar, ömmu Ásgeirs forseta. Stefán var sonur Filippusar, pr. í Kálfholti, forfóður ráðherranna Ingólfs á Hellu og Matthíasar Mathiesen, föður Árna sjávarút- vegsráðherra. Arnheiðup I. Svavansdóttir verkakona í Þorlákshöfn 50 ára_________________________________ Arnheiður I. Svavarsdóttir, Básahrauni 24, Þorlákshöfn. Baldvin H. Thorarensen, Ásbúðartröö 7, Hafnarfirði. Bergljót Ósk Óskarsdóttir, Staöarhrauni 6, Grindavík. Erla Þorsteinsdóttir, Gyðufelli 2, Reykjavík. Gestur Ásólfsson, Langholtsvegi 77, Reykjavík. Glumur Haraldsson, Hólum. Reykjadal, Suöur-Þingeyjarsýslu. Guðmunda Jónsdóttir, Ásabraut 1, Grindavík. Guömundur Heiðar Gylfason, Huldugili 8, Akureyri. Guðmundur Sævar Ólafsson, Kringlunni 39, Reykjavík. Haukur Einarsson, Hagamel 53, Reykjavík. Hrefna Guðbjörnsdóttir, Skipholti 12, Ólafsvík. Sigrún Helga Ragnarsdóttlr, Sléttuvegi 9, Reykjavík. Sigrún Sverrisdóttir, Skútahrauni 15, Reykjahlíð. Sigurður O. Björgvinsson, Víðiási 1, Garðabæ. Steinunn Halldórsdóttir, Sævangi 19, Hafnarfiröi. 40.ára_________________________________ Elín Símonardóttir, Tjarnargötu 10, Reykjavík. Grétar Georgsson, Selvogsbraut 1, Þorlákshöfn. Hrafnhiidur Svavarsdóttir, Skólavegi 28, Keflavík. Jóhannes H. Guðmundsson, Klukkurima 2, Reykjavík. Jðnas Karl Sigurðsson, Stararima 63, Reykjavík. Steinunn Berndsen, Suðurvegi 22, Skagaströnd. Tryggvi Gunnarsson, Krákuvör, Flatey, Breiðafiröi. Þuríður Þórðardóttir, Skólabrú 2, Reykjavík. Amheiður Ingibjörg Svavarsdótt- ir verkakona, Básahrauni 24, Þor- lákshöfn, verður fimmtug í dag. Fjölskylda Amheiður fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hveragerði. Hún lauk grunnskólaprófi í Hveragerði 1969 og fór að því loknu út á vinnumark- aðinn. 1 Hveragerði gegndi hún ýmsum störfum, starfaði m.a. við leikskóla þar, starfaði á Hótel Ljósbrá í Hveragerði, hjá Kjöris, á heilsuhæli NLFÍ og hjá Michelsen. Árið 1980 flutti Arnheiður, ásamt eiginmanni sínum, til Þorlákshafn- ar þar sem þau hófu störf í Másbak- aríi og störfuðu síðar við fiskmark- aðinn í Þorlákshöfn. Sex- árum síðar fluttu þau svo til Eskifjarðar og störfuðu í bakaríi Kaupfélags Eskfirðinga þar til það var lagt niður. Eftir það störfuðu þau í frystihúsi Eskfirðinga til 1990. Arnheiður og maður hennar fluttu til Þorlákshafnar 1990 þar sem þau hafa átt heima síðan. Þar hafa þau starfað við fiskvinnslu. Fjolskylda Amheiður giftist 19.8.1978 Einari Sigurðssyni, f. 26.3. 1955, bakara- meistara. Hann er sonur Sigurðar Jóhannessonar, sem er búsettur í Reykjavík, og Sigríðar Einarsdóttur sem er látin. Dætur Amheiðar og Einars eru Kristjana Svava, f. 8.6.1978, stúdent í Reykjavík, en sambýlismaður hennar er Daníel Gunnarsson og er dóttir hennar Talía Hrönn, f. 21.7. 1998; Anna Sigríður, f. 5.11.1980, bú- sett í foreldrahúsum. Arnheiður á fimm systkini. Þau eru Anna María, f. 20.2.1955, sjúkra- liði við nuddstofu, búsett í Reykja- vik, gift Wolfgang Roling sjúkra- þjálfara og á hún dótturina Lindu Óladóttur, f. 12.4. 1973; Hannes Am- ar, f. 15.8. 1957, skipskokkur í Þor- lákshöfn, kvæntur Guðbjörgu Þóru Davíðsdóttur og eiga þau dæturnar Daðeyju, Ragnheiði og Guðlaugu Ömu; Ámi, f. 5.11. 1961, starfsmað- ur Hveragerðishrepps, búsettur í Hveragerði, kvæntur Svandísi Birk- isdóttur og eiga þau börnin Krist- jönu, Margréti, Birki og Ásthildi; Guðrún Hrönn, f. 21.7.1964, stúdent, búsett í Hveragerði og starfar á Elli- heimili Hveragerðis; Svava Sigríð- ur, f. 30.5. 1981, nemi, búsett í for- eldrahúsum. Foreldrar Arnheiðar eru Svavar Marel Marteinsson, f. 12.5. 1923, vörubílstjóri i Hveragerði, og k.h., Kristjana Sigríður Árnadóttir, f. 14.4. 1937, starfsmaður við dvalar- heimilið Ás. Ætt Svavar er sonur Marteins, b. á Þurá í Ölfusi og síðar í Hveragerði, Eyjólfssonar, b. á Þurá, Gíslasonar, b. á Læk, Einarssonar, vinnumanns á Hjalla, Gíslasonar. Móðir Gísla á Læk var Hólmfríður Ámadóttir. Móöir Eyjólfs á Þurá var Eydís Eyj- ólfsdóttir, b. á Ytri-Grímslæk, Guð- mundssonar, og Eydísar Þorleifs- dóttur. Móðir Marteins var Guðlaug Hannesdóttir, b. á Bakka, Þórðar- sonar, vinnumanns og bókasölu- manns á Hurðarbakki í Flóa, síðast á Þórustöðum í Ölfusi, Jónssonar. Móðir Hannesar var Guðlaug Jóns- dóttir, vinnukona á Hurðarbaki. Móðir Guðlaugar var Margrét Jóns- dóttir, vinnumanns í Þorlákshöfn, Ólafssonar og Jórunnar Jónsdóttur. Móðir Svavars var Svanborg Anna Jónsdóttir, b. á Læk, Símon- arsonar, b. í Hraunshjáleigu, Ein- arssonar, hreppstjóra í Sigluvík í Landeyjum, Þorbjömssonar. Móðir Símonar var Þorbjörg Símonardótt- ir. Móðir Jóns á Læk var Hólmfríð- ur Magnúsdóttir, b. i Hrauni, Magn- ússonar, b. í Þorlákshöfn, Beinteins- sonar, lrm. á Breiðabólstað I Ölfusi, Ingimundarsonar, b. í Hólum, Bergssonar, ættfóður Bergsættar Sturlaugssonar. Móðir Svanborgar Önnu var Sigríður Guðmundsdóttir, b. á Ytri-Grímslæk, Eyjólfssonar og Helgu Pálsdóttur. Kristjana Sigríður er dóttir Árna Jónssonar og Ragnheiðar Ágústínu Sigurðardóttur sem bjuggu í Bjarn- eyjum á Breiðafirði en síðar í Reykjavík. Útvarpi Sögu fm 94.3 r L i Þáttur um viðskipti og efnahagsmál á hverjum virkum degi milli klukkan 17-18 alll j)(ti) (ilmgawrðasta í lieimi viðskipta í dag Landsbankinn - það borgar sig að hlusta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.