Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Side 39
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003
39
Sport
fór fram í gær:
í Austurbergi
Viggó Sigurðssyni.
■ Vignir Svavarsson, Aliaksandr
Shamkuts, Þorkell Magnússon og
Andri Stefan komust ágætlega frá
þessum leik. Robertas Pauzuolis
skoraði þrjú góð mörk og það er
varla að sökum að spyrja þegar
tekst að stilla upp fyrir hann -
hans naut hins vegar ekki við
nema i rétt tæpar fjörutíu mínút-
ur og það munar um minna. Þeir
Aron Kristjánsson og Halldór Ing-
ólfsson náðu sér hins vegar ekki á
strik og það setti stórt strik í
reikninginn fyrir Haukana - þeir
geta þó huggað sig við það að þrátt
fyrir að vera töluvert frá sínu
besta voru þeir nálægt sigri.
Mikil harka
Eins og áður sagði var leikur-
inn mjög harður og dómaramir
höfðu i nógu að snúast - komust þó
ágætlega frá þessu þótt eilítið hafi
hallað á Haukana, og þá sérstak-
lega í brottvísununum. Hins vegar
er það allt annað en auðvelt að
dæma leik sem þennan - mikið í
húfi og allt að verða vitlaust og
reglurnar loðnar og gráar sem
fyrr.
-SMS
Æfluöum ekki að vera
með tvö töp á bakinu
- sagði Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR, eftir leikinn gegn Haukum í gærkvöld
„Þetta var erfiður sigur og sigur
heildarinnar. Við þurftum að hafa
fyrir þessu frá fyrstu mínútu til
þeirrar síðustu. Við fórum illa með
mörg góð færi og brenndum af allt
of mörgum vítaköstum. Það er
samt jákvætt
að hafa klárað
leikinn, en þetta
er eitthvað sem
við þurfum að
laga", sagði Júl-
íus Jónasson,
þjálfari og leik-
maður ÍR-inga,
að leik loknum.
„Það var
margt sem fór
miður í leik
okkar á þriðjudaginn sem við náð-
um að laga í dag - við ætluðum
okkur ekki að fara aftur í Hafnar-
fjörðinn með tvo tapleiki á bakinu
og það hafðist. Hvað dómgæsluna
varðar þá get ég ekki verið sam-
mála Viggó og því miður hefur það
verið lenska hjá honum að kvarta
yfir dómgæslunni ef hann tapar.
Það voru nokkur atvik í lokin sem
falla okkur í óhag og það voru at-
riði sem hefðu virkilega getað skipt
sköpum í leiknum - en Viggó má
halda áfram að kvarta yfir dóm-
urum ef hann tapar," sagði Júlíus.
SpOandi þjálfarinn var að von-
um ánægður með stuðninginn sem
lið hans fékk í leiknum.
„Við höfðum þetta af í lokin og
það hefur gerst oft í þessari úr-
slitakeppni, en það er kannski
meira spennandi fyrir vikið hjá
þeim sem koma á leikinn. Það er
gríðarlegur stuðningur sem við
höfðum fengið og allt það fólk á
virkilega mikið í þessu,“ sagði Júl-
íus að lokum.
Sigurinn er aöalatriöið
Bjarni Fritzson, fyrirliði ÍR-inga,
var að vonum ánægður að leik
loknum, en
hann tryggði
liði sinu sigur-
inn með marki
úr vitakasti þeg-
ar tæp hálf mín-
úta var eftir af
leiknum. Hann
skoraði tvívegis
úr vítaköstum
og var sá eini
úr ÍR-liðinu
sem náði að
koma boltanum fram hjá Bjarna
Frostasyni, markverði Hauka.
"Við höfðum verið að æfa víta-
köstin á æfingum og ég get sagt að
ég hef ekki verið sá besti en það
var virkilega ánægjulegt að skora
þessi mörk. Stemningin var grið-
arleg og það hefði ekki skipt mig
máli hvort ég hefði skorað þetta
Bjarni Fritzson
mark eða einhver annar - sigur-
inn er það sem skiptir máli.
Nú verðum við að snúa okkur að
næsta leik og eins og í kvöld verð-
um við að stoppa skytturnar hjá
þeim og spila góða vörn og klára
þá svo í sókninni," sagði Bjami að
lokum.
-ÞAÞ
/ - .
Aron Kristjánsson átti ekki góöan leik með Haukum í gærkvöld og var í
strangri gæslu ÍR-inga allan leiktímann
Haukar voru svekktir í leikslok:
Þvifkup
dónaskapur
- segir Viggó Sigurösson þjálfari
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka,
var ekki að spara þeim Hlyni Leifs-
syni og Antoni
Gylfa Pálssyni
kveðjumar að
leik loknum: "Ég
er alls ekki sátt-
urvið dómgæsl-
una í leiknum
og segja má að
þetta hafi verið
þvílíkur dóna-
skapur. Við
vorum eltir uppi
og réðum alls Viggó Sigurðsson
ekki við það þar
sem við vorum að missa menn út af
í tíma og ótíma og fengum á okkur
endalaus víti,“ sagði Viggó.
„Það var greinilegt að það gilda
allt aðrar reglur í vöminni hjá ÍR,
samræmið var ekkert og þetta var
ekkert annað en hlutdrægni. Anton
er sá sem er hlutdrægur og segja má
að þeir hafi gefið þeim leikinn,"
sagði Viggó Sigurðsson að lokum.
Endaöi ÍR-megin núna
"Þetta var hörkuleikur og spenn-
andi allan tímann en við spiluðum
ekki vel og þeir fengu að komast
upp með alltof margt - spiluðu gróf-
an bolta og því fór sem fór. Þetta gat
samt farið á hvorn veginn sem var í
lokin og þaö endaði þeirra megin í
þetta skiptið,“
sagði Halldór
Ingólfsson, fyrir-
liði Hauka, en
hann átti ágæt-
an leik meðan
aðrir lykilmenn
liðsins spiluðu
undir getu.
"Ég ætla ekki
að skipta mér af
dómgæslunni og
við verðum að
einbeita okkur að okkar leik - það
er það sem við getum bætt. Við spil-
um á liðsheildinni og það kemur
maður í manns staö. Við komum
tvíelfdir í næsta leik og munum
sýna okkar rétta andlit - hvernig
við getum barist og gert góða og
skemmtilega hluti,“ sagði Halldór
að lokum. -ÞAÞ
Þriðji leikurinn fer fram á Asvöllum:
Sunnudagurínn 11. maí 16:15