Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2003, Blaðsíða 30
30
H&lqarblctð JOV UAUGARDAOUR IV. IvlAf 2003
Það sætir tíðindum þegar nýtt leikskáld stíqur fram á si/iði Þjóðleikhússins með
tilraunakennt leikrit ímeðförum leikstjóra sem hefur uakið athygli fgrir frumleg
uinnubröqð. DV talaði uið Stefán Jónsson leikstjóra um Herjólf sem er hætturað
elska eftir Sigtrugg Maqnason.
,I>að er eins og menningarvitund sé aðeins seinentsrvk í vitum ráðamanna sem vilja byggja sér kastala fyrir kosningar en gleyma því
þess á milli að það þarf fé til þess að reka þessi sömu hús. Menning kostar peninga og hún er
þjóðinni jafumikilvæg og heilbrigðisþjónusta."
Fimmtudaginn 22. maí verður frumsýnt nýtt ís-
lenskt leikrit í Þjóðleikhúsinu. Það er margt
óvenjulegt við þessa uppsetningu enda margt
óvenjulegt við leikritið. Staðsetningin er óvenjuleg
því leiksýningin hefur fengið inni í gamla Lands-
símahúsinu við Sölvhólsgötu þar sem landsmenn
áður komust í samband hver við annan og má
segja að sé nokkurt samræmi í því þar sem eitt af
hlutverkum leikhússins er að koma áhorfendum í
samband.
Leikritið er sett upp undir merkjum leiksmiðju
Þjóðleikhússins og er fyrsta verkefnið sem þannig
er sett á svið. Þetta er leikritið Herjólfur er hættur
að elska eftir Sigtrygg Magnason leikskáld, blaða-
mann og dagskrárgerðarmann á RÚV. Titillinn er
óvenjulegur en á ekkert skylt við samnefnt sam-
göngutæki sem siglir milli lands og Eyja. Og þó.
Ferjan flytur fólk og bíla en leikritið flytur skila-
boð um sálarástand samfélagsins og leggst við
bryggju í vitund áhorfandans.
Þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni Stefáns Jóns-
DV-myndir Hari
sonar í Þjóðleikhúsinu þar sem hann hefur starfað
í 11 ár sem leikari. Stefán hefur undanfarin miss-
eri verið að laumast ofan af sviðinu og skotist í
sæti leikstjórans þegar færi hefur gefist og þetta
verður þriðja verkefni hans í atvinnuleikhúsi en
hann hefur einnig leikstýrt nokkrum skólasýning-
um. Frumraun Stefáns var Björninn eftir Tsjekhov
sem var sýndur í Iðnó fyrir fáum árum en sýning-
in sem virkilega vakti athygli á honum sem leik-
stjóra var Kvetch sem sýnt var sl. vetur við mikl-
ar vinsældir, fyrst í Vesturporti og síðan í Borgar-
leikhúsinu. Uppsetningin var tilnefnd til Menning-
arverðlauna DV.
Enn er ótalin sýning sem Stéfán stýrði en var
lögö á hilluna ásamt Leikfélagi íslands rétt fyrir
frumsýningu fyrir nokkrum árum. Það var leikrit-
ið Eldað með Elvis en nýverið fékkst styrkur til að
ljúka verkinu og Stefán segir að það komi vonandi
fyrir sjónir áhorfenda í Loftkastalanum í vetur. Ef
allt fer eins og það á að fara.
Stefán Jónsson leikstýrir sínu fvrsta verki á fjöluni
Þjóðleikliússins með uppsetningunni á Ilerjólfur er
hættur að elska eftir Sigtrygg Magnason. Stefán lief-
ur vakið verðskuldaða athvgli fvrir aðrar uppsetning-
ar sínar eins og Kveteh.
Svartur húmor eða hvítur?
DV hitti leikstjórann í sólskini á Sölvhólsgötu og
elti hann á röndum á næsta kaffihús sem stendur
beint á móti Þjóðleikhúsinu og er opinbert athvarf
allra þjóða kvikinda eins og sagt er. Þar fengum
við dúndurkaffi og Stefán var spurður hvort hann
væri að skipta um hillu á ferlinum.
„Nei,“ svaraði Stefán á þann yfirvegaða hátt sem
hann virðist hafa tamið sér og getur stressað
blaðamenn sem eru vanari því að viðmælendur
þeirra tali í belg og biðu.
„Ég hef starfað sem leikari í 14 ár og þetta er
hvöt sem hefur fæðst hægt og rólega og mig langar
til að sinna henni en mig langar ekkert til þess að
hætta að leika. Mér finnst þetta fóðra hvaö annaö
og ég verð einbeittari og fókuseraðri á báðum víg-
stöövum."
- Kvetch var svartur húmor og það er svartur
húmor líka í Eldað með Elvis en ég hef einhvern
veginn á tilfinningunni að Herjólfur er hættur að
elska sé ekkert sérstaklega fyndin sýning. Er það
rétt?
„Sigtryggur Magnason, höfundur verksins, er
mjög fyndinn og hann getur ekkert hlaupið frá því
þótt leikritið hans fjalli um frekar dökka hluti. Tit-
illinn segir sína sögu um innihaldið því þetta fjall-
ar um Herjólf sem er hættur að elska og hvernig
hann bregst við því.
Það er alllangt síðan Sigtryggur orðaði það fyrst
við mig að leikstýra verki eftir sig og hér erum við
komnir á leiðarenda með Herjólf í Þjóðleikhús-
inu.“
Með landamæravörðunuin
- Mega áhorfendur búast við hefðbundnu leik-
húsi?
„Áhorfendur sitja kyrrir í sætum sínum þar til
sýningunni lýkur. Þaö er hefðbundið. Leiksmiðju-
formið býður upp á ýmsar spennandi tilraunir með
verk sem ef til vill myndu aldrei rata upp á stóru
svið leikhúsanna. Þarna gefst kostur á hrárri nálg-
un og úr alfaraleið.
Leikritið sjálft er óhefðbundið því það liggur á
mörkum þess að geta kallast leikrit í hefðbundnum
skilningi. Það er nær því að vera ljóð en ég hef kos-
ið að nálgast það sem hljóð. Sigtryggur nálgast
leikhúsið hér á landamærum leikrits og ljóðs og
það hefur verið ákaflega gaman að fá að leika sér
með landamæravörðunum."
- Er þetta leikrit úr okkar samtíma?
„Þetta er úr okkar tíma og það má kannski segja
að þarna sé verið að fjalla um kreppu nútíma-
mannsins en ástin er tímalaus og verkið er þannig
líka tímalaust því það gerist ekki á neinum
ákveðnum stað. Staður og tími verksins er á valdi
áhorfandans. Kannski er þetta ímyndun persón-
anna eða áhorfenda. Það er erfitt að segja hvar höf-
Stefán Jónsson leikstýrir sínu fyrsta verki á fjölum
Þjóöleikhússins með uppsetningunni á Herjólfur er
hættur að elska eftir Sigtrygg Magnason. Stcfán hef-
ur vakið verðskuldaða athygli fyrir aðrar uppsetniiig-
ar sínar eins og Kvetch.