Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Side 8
8 Fréttir FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 DV Rcídherralistinn kynntur Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksms, kynnti fréttamönnum ráðherra/ista flokksins. Breytingar, nú og síðar á kjörtímabilinu, voru meiri en margir áttu von á. Davíð kemur á óvart og skiptir úr tveimur ráðherrum: Dramatík hverjir drykklanga stund yfir fréttamenn biðu þess fyrir utan að kaffisopa í hliðarsal, á meðan spyrja þá spjörunum úr. -ÓTG Sólveig bítur á jaxlinn: Ágætt að breyta til Margir höfðu spáð því að heldur litlar breytingar yrðu í ráðherra- liði Sjálfstæðisflokksins en niður- staðan á þingflokksfundi í Valhöll í gær varð sú að tveir ráðherrar hætta. Loftið var hlaðið spennu bæði fyrir og eftir fundinn; ný ráð- herraefni ljómuðu af gleði en þeir sem þurfa að víkja bitu á jaxlinn. Áfall Mest var áfallið fyrir Sólveigu Pétursdóttur dóms- og kirkjumála- ráðherra, sem lætur af störfum í dag. Sólveig verður varaforseti Al- þingis en forseti þess eftir tvö ár. Halldór Blöndal stígur þá upp af forsetastólnum en segist gera ráð fyrir að halda áfram þingmennsku. Tómas Ingi Olrich víkur úr menntamálaráðuneytinu en fær þó að sitja þar til áramóta og fær í kjölfarið sendiherrastöðu í París. Davíð Oddsson hafði greint þess- um tveimur ráðherrum frá því fyrr um daginn að hann myndi leggja til að þeir hyrfu úr ríkisstjóm. Óvænt ánægja Bjöm Bjamason verður dóms- og kirkjumálaráðherra í dag. Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir verð- ur menntamálaráðherra um ára- mótin. Og Sigríður Anna Þórðar- dóttir verður umhverfisráðherra þegar Sjálfstæðisflokkurinn tekur við því ráðuneyti af Framsóknar- floknum í september á næsta ári. Hvorki þau né aðrir þingmenn en þau Sólveig og Tómas Ingi vissu að sögn nokkuð um það fyrir þing- flokksfundinn, hver tillaga for- mannsins yrði. Hún var samþykkt einróma á fundinum, sem stóð fremur stutt. Til skamms tíma þýðir breyting- in að engin kona verður í ráð- herraliði Sjálfstæðisflokksins og í stað Sigríðar Önnu sem formanns þingflokksins kemur karl: Einar K. Guðfinnsson. Til lengri tíma litið fjölgar hins vegar konum í ráð- herraliðinu úr einni í tvær; í stað karls í stóli forseta Alþingis kemur kona; og konum í þingflokknum fjölgar þegar Arnbjörg Sveinsdóttir tekur sæti á Alþingi í stað Tómas- ar Inga Olrichs. Upp og niður Fundurinn var haldinn beint í kjölfar fjölmenns fundar í flokks- ráði Sjálfstæðisflokksins, sem sam- þykkti með öllum greiddum at- kvæðum gegn einu að heimila Dav- íð að mynda ríkisstjórn með Fram- sóknarflokknum á grundvelli sam- komulags flokkanna um stefnuyfir- lýsingu og skiptingu ráðuneyta. Sá sem greiddi atkvæði á móti geröi það að sögn Davíös vegna óánægju með að forsætisráðuneytið var gef- ið eftir. „Hann kom til mín á eftir og sagði: Þú áttir annað og betra skilið en að ég greiddi atkvæði með þessu,“ sagði Davíð. Fjallað er um stefnuyfirlýsingu stjómarinn- ar á miðopnu blaðsins. Eftir næsta fund - þingflokks- fundinn - var fréttamönnum vegna misskilnings vísað upp á efri hæð að fundinum loknum og gengu þar i flasið á þingmönnum, sem virtust síður hafa átt von á heimsókn. Ekki fór á milli mála að niðurstað- an hafði orðið Sólveigu Pétursdótt- ur vonbrigði þótt hún verðist allra frétta í bili. Upp úr hálfgerðri ringulreið kom í ljós að tU stóð að Davíð Oddsson tUkynnti fjölmiðl- um niðurstöðuna formlega niðri á fyrstu hæð. Þar las hann upp ráö- herralistann af minnismiða sínum og svaraði spurningum. Almenn samstaöa „Það var almenn samstaða um þessar tillögur og þegar þetta verður allt komið í kring verða af hálfu Sjálfstæðisflokksins tvær konur í ríkisstjórninni og kona forseti Alþingis," sagði Davíð. Um ástæðu þess að Sólveig Pét- ursdóttir hverfur úr ríkisstjórn sagði Davíð að hún hefði verið ráðherra í fjögur ár, staðið sig vel, og menn vUdu breyta tU. „Hún hafði í samtali við mig sagst geta hugsað sér að það yrðu breytingar á hennar háttum, hún einbeitti sér frekar að þingstörfum og tæki svo við starfi forseta þingsins á síðari helmingi kjörtímabUsins." Davíð hrósaði sömuleiðis Tómasi Inga og Halldóri Blöndal fyrir störf þeirra en sagðist hafa vUjað „breyta tU“. Davíð hvarf í kjölfarið til núver- andi, fráfarandi og tUvonandi ráð- herra, sem ræddu málin flestir „Hún er auðvitaö ágætlega ásættanleg," segir Sólveig Péturs- dóttir um þá niðurstöðu að hún hverfur úr ráðherrastóli og þarf að bíða í tvö ár eftir að taka við sem forseti Alþingis. „Ég átti langt sam- tal við formann flokksins og það er alveg ljóst að menn vildu sjá ákveðnar breytingar. Ég fæ tæki- færi tfl þess að gegna embætti for- seta Alþingis sem er auðvitað mjög góð og merkUeg staða þannig að mér finnst ágætt að breyta tU. Ég er sátt við þessa niðurstöðu." Sólveig segist fagna því sérstak- lega að konum fjölgi í ráðherrastól- um. „Ég vU líka óska mínum félög- um til hamingju. Ég held að þetta verði sjálfstæðisstefnunni tU fram- dráttar og flokknum til góðs,“ seg- ir Sólveig og segist ekki líta á nið- urstöðuna sem vantraust á sín störf. „Það kemur aUtaf maður í manns stað og það er ósköp eðlilegt að huga að breytingum. Mér finnst líka ágætt að breyta tU.“ -ÓTG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.