Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Síða 9
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 I>V Fréttir 9 Þorgerður Katrín: Afskaplega mikil áskorun „Þetta eru óvænt en mjög ánægjuleg tíöindi,“ segir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir sem verður menntamálaráð- herra um næstu áramót. „Það er afskaplega mikil áskorun að taka við menntamálaráöuneyt- inu. Það er búið að gera stór- kostlega hluti þar á síðast liðn- um árum undir forystu okkar sjálfstæðismanna og það er um að gera að reyna að halda áfram því góða starfi og bæta við það.“ Þorgerður Katrín er lögfræð- ingur að mennt. Hún verður 38 ára í október og sest því í ráð- herrastól ívið eldri en Árni Magnússon og Siv Friöleifs- dóttir en tveimur árum yngri en Árni Mathiesen. Hún hefur setið á þingi í fjögur ár og gegnt formennsku í allsherjar- nefnd allan þann tíma. Sem kunnugt er á Þorgerður Katrín von á barni í sumar og því liggur beint við að spyrja hvort ekki verði erfitt að takast á við þetta krefjandi starf með ungt barn. „Ég held að þetta sé bara nútíminn og sem betur fer höfum við þessa stórkostlegu fæðingarorlofslög- gjöf sem hefur einmitt gert okkur konum kleift að takast á við ögrandi og skapandi verk- efni. Þetta er bara eitt dæmi um það,“ segir tilvonandi menntamálaráðherra. Tómas Ingi sendiherra: Ekkent svekktun „Þetta leggst ágætlega í mig,“ segir Tómas Ingi Olrich sem hættir sem menntamála- ráðherra um árámótin eftir tæplega tveggja ára starf. Hann verður sendiherra í París á vormánuðum á næsta ári. „Við forsætisráðherra vor- um búnir að ræða þetta mál áður en þessi fundur hófst," sagði Tómas Ingi eftir þing- flokksfundinn í gær spurður um hvort niðurstaðan kæmi sér á óvart, og bætti við: „Ég hef aldrei talið mig eiga neitt gefið í pólitík og tek þeim verk- efnum sem þarf að vinna.“ Hann var spurður hvort hann væri ekki „svolítið svekktur" og svaraði: „Nei, ekki nokkurn skapaðan hlut. Ég geng til þeirra verka sem þarf að vinna og geng yfirleitt glaður til verks.“ Tómas Ingi hefur setið á Al- þingi í tólf ár, frá 1991, og var formaður utanríkismálanefnd- ar í fimm ár, 1995-2002, fram að því að hann tók við Birni Bjarnasyni sem menntamála- ráðherra. Arnbjörg Sveinsdótt- ir tekur sæti á Alþingi í stað Tómasar Inga um áramótin. Björn um ráðherradóm: Verö ekki oddviti í borgarstjórn Björn Bjarnason, nýr dóms- og kirkjumálaráðherra, segir að það fari ekki saman að vera ráðherra og oddviti minnihlut- ans í borgarstjórn Reykjavíkur en heldur því opnu hvort hann hættir sem borgarfulltrúi. „Þetta ber svo brátt að að ég hef ekki haft tima til annars en að borða frá því að ég frétti þetta,“ sagði Björn eftir þing- flokksfundinn í Valhöll í gær. „En það fer náttúrlega ekki saman að vera oddviti Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjórn og dóms- og kirkjumálaráð- herra. Það þarf að leysa það með einhverjum hætti.“ Björn segir að ekki blasi við hver taki við stöðu oddvita enda sé ekkert sjálfkrafa í stjórnmál- um. Björn segist ekki hafa sóst. eftir ráðherrastólnum en er sáttur við ráðuneytið. „Ég er lögfræðingur og hef mikinn áhuga á öryggismálum og ör- yggi borgaranna. Ég er gamall starfsmaður Landhelgisgæsl- unnar og hef áhuga á almanna- vörnum óg öllu því sem undir dómsmálin heyrir. Síðan er ég líka mikill kirkjunnar maður þannig að ég kvíði því ekki að sinna þessum verkefnum," seg- ir Björn. Þess má geta að faðir hans, Bjarni Benediktsson, fór með ráðuneyti dómsmála í fjórum ríkisstjórnum, ávallt samhliða einu eða fleiri ráðuneytum. Sigríður Anna: Ég átti ekki von á þessu „Mér líst mjög vel á þetta. Ég tel að þetta sé mjög skemmti- legt verkefni og margt áhuga- vert sem liggur þar fyrir. Um- hverfismálin eru vaxandi málaflokkur og skipta gríðar- lega miklu máli,“ segir Sigríð- ur Anna Þórðardóttir, sem verður umhverfisráðherra 15. september á næsta ári. Hún segist ekki hafa átt von á þess- ari niðurstöðu. Sigríður Anna hefur verið al- þingismaður í tólf ár, frá 1991, og formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins í funm ár, frá 1998. Hún var formaður menntamálanefndar í ellefu ár, frá 1991-2002. Hún þótti því koma sterklega til greina þegar Tómas Ingi Olrich tók við menntamálaráðuneytinu af Birni Bjarnasyni í fyrra en varð í staðinn formaður utan- ríkismálanefndar. Hún segist sannfærð um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir eigi eftir að gera mjög góða hluti sem menntamálaráðherra. Sigríður Anna segir eftirsjá að þeim ráðherrum sem hyeifa á braut. „Svo sannarlega. Ég sé náttúrlega mjög mikið eftir Sólveigu Pétursdóttur sem hef- ur staðið sig mjög vel í sínu starfi en ég er líka viss um að þingforsetastarfið mun henta henni afskaplega vel.“ -ÓTG ST0RSYNING Sumarhúsið og garðurinn 2003 fhróttamiðstððinni í Mosfellsbæ 22.-25. maí Yfir ÍOO fyrirtœki og þjónustuaðilar kynna vörur sínar og þjónustu. Ekki tnissa afþessu! • Allt þab nýjasta sem tengist sumartiúsinu og garöinum í bland vib afþreyingu og ferbaþjónustu • Allt sem þú þarft aö vita um garöyrkju . . . en vissir ekki hvern þú aettir ab spyrja! • Tvó stór sýmngartjöld og stórt útisvæöi. • í boöi eru 25 stuttir fyrirlestrar frá föstudegi til sunnudags um altt millí himins og jaröar • Sutwfrá, tanríttaO • Irairétttngar » Gutubað • flrnsr og srlnvðrur • Málnbig • Dalur • Kominur • SólarrafhlöDur • Matndýravarnlr • Hanmögn * Ralmagnstskl • Bafcur og tímartt • PnBír • RatbraH’ • GrUl • Garðshönnun • Vatnstankar • Gaxkútar • NytJalurtagarOur • Varmatklptar • Úttvtatarvörur • Gluggar • HreliUæfis- • Öryggiamál • b&ponu8{]ugn og biöndunartækl • Örygglxnátnar • Húsgögn ♦ Ugnauim • LaBaækl • Garðplðntur • Fjorhjöl • Föndur • Baröhús • Korrur • Sktttl • Heltír pottai* • JBppar • Vetðl • HeimUistæld • VörubiD með krana • Ferðalög TCOGI sa HBLUMTavmiiVJI 12*4 ð é VIIKUfjH IStENSK CIARÐYRKJA SKORRi ■PM FUNI aLIKKSMWMA Tupperware • Sýnikennsla í ýmsum verklegum þátium, t.d. garöyrkju, föndri, hjálp i' viölögum o.fl. • Fagfóik í græna gciranum svarar spurningum gesta. • Jeppar, tjaldvagnar, kerrur og Ijórhjól, vóiubíll ineö krana ... citthvaö fyrir karlana líka! • Keppni um titilinn „Blómaskreytir ársins 2003" Abeins 15. mfn. akstur frá mlöborg Reykjavíkur Sýnlngin er opln sem hér seglr: Flmmtudaglnn 22/5 kl. 17:00-19:00 Fiisudaglnn 23/5 kL 15:00-21:00 Laugardaglnn24/5 kl. 12:00-19:00 Sunnudaglnn 25/5 kl. 12:00-21:00 A&gangseyrir kr. 800.- pr. mann frítt fyrir 12 ára og yngri Tveggja daga verö kr. f.200, Helgarverö kr. 1.SOO.- pr. mann Sumarhúsið, og garðurinn 2003' www.rlLls • sfml 586 8003 Meðal efnis: FerSir fyrir fjölskylduna ■ Tjaldvagnar - fellihýsi - hjólhýsi - húsbílar • Afþreying og skemmtun • Hápunktar • HvaS er að gerast í sumar? • Utivist ■ GönguferSir • Leiðsögn • HestaferSir - bátsferSir - fjalla- og jeppaferSir og margt annaS fróSlegt og skemmtilegt. Auglýsendur athugið Sérblað um ferðir innanlands fyigir Magasíni fimmtu- daginn 5. júní - 82 þús. eintök. Skilafrestur auglýsinga er 2. júní Við erum tilbúin að aðstoða ykkur: Inga, b. s. 550-5734, inga@dv.is Kata, b. s. 550-5733, kata@dv.is Margrét, b. s. 550-5730, margret@dv.is Ransý, b. s. 550-5725, ransy@dv.is Sigrún, b. s. 550-5722, sigruns@dv.is Auglýsingadeild 550 5720

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.