Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 Sport DV mehr heimavellina í LandsbankadeMinni Hásteinsvöllur heitir aöalknatt- spymuvöllurinn i Vestmannaeyjum og er staösetning hans einstaklega skemmtileg og útsýniö frábært. Aðstaða fyrir áhorfendur er tví- skipt og í heildina ekki nægilega góð. Þar eru nú sæti fyrir 550 manns en þau voru nýlega sett upp vegna leiks ÍBV i Evrópukeppninni í knattspyrnu. Þau eru á lágreistum steinpöllum eftir endilöngum vellin- um. Yfirbygging er engin. Að öðru leyti er áhorfendaaðstaðan alls ekki nógu góð og er hinn frægi hóll á suðvesturhomi vallarins þar vin- sælastur en þar sjá áhorfendur þó nokkuð vel yfir. Þar eru hins vegar aðeins stæði i frekar erfíðu lands- lagi. Salemisaðstaða er í vallarhúsi og er nægileg. Það er hins vegar æði sérkenni- legur siður sem viðhafður er i Vest- mannaeyjum þar sem heimamenn koma tímanlega fyrir leik og stilla bílum sínum upp við endann á vell- inum og við aöra hlið hans, þaðan sem þeir fylgjast með leiknum. Að mati DV-Sport er þetta afar leiðin- legur siður og komið hefur fyrir að vallarstarfsmenn þurfa að ganga á bílana til að fá ökumenn til að slökkva ljósin. Aðstaða fyrir leikmenn er viðun- .HNDSBRNKR DEILDIN Hástensvöllup andi. Búngingsklefar mættu vera stærri og þá er gangurinn fyrir freman frekar þröngur. Leikmenn og dómarar þurfa að ganga yfir bíla- stæði og niður brekku til að komast til leiks. Þessi leið er alltof löng inn- an um almenning og þrátt fyrir ör- yggisgæslu er of auðvelt fyrir þá sem sér það ætla að hafa afskipti af leikmönnum og dómurum á þessari leið. Aðstaða blaðamanna- er ekki nægilega góð en hún er þó i skjóli fyrir veðrum og vindum. Þokkalega sést úr henni en hún er of þröng og mætti standa hærra. Völlurinn sjálfur er í ágætu ásig- komulagi og hefur verið það í nokk- ur undanfarin ár eftir að hann var byggður upp frá grunni. Vatnsskort- ur í Eyjum hefur þó gert vallaryfir- völdum lífið leitt þar sem þeir hafa ekki náð að vökva völlinn sem skyldi. Þaö skal tekið fram að Há- steinsvöllur er yfirleitt með bestu knattspymuvöllum landsins en í þetta skiptið eru það utanaðkom- andi áhrif sem koma í veg fyrir að hann sé upp á sitt allra besta. Til þess að uppfylla kröfur um leikvöllinn þurfa Vestmannaeying- ar að leggja út í talsverðar fram- kvæmdir. Þeir eru að vísu með sæti fyrir um 550 manns í stúku en þurfa 150 sæti í viðbót. Það er því ljóst að byggja þarf við núverandi stúku, en einnig hafa verið uppi hugmyndir um að byggja stúku sunnan megin vallarins. Þá vantar að byggja yfir stúkuna. Einkunnargjöfin Aðstaða áhorfenda m Leikvöllurinn gi Aðstaða leikmanna Staða gagnvart staðli 0 Aðstaða blaðamanna ð Heildarstigin 19 Gríndavíkurvölur Ðnkunnargjöfín Aðstaða áhorfenda Leikvöllurinn ö Aðstaða leikmanna © Staða gagnvart staðli Í0 Aðstaða blaðamanna Heildarstigin 26 LRNDSBHNKR OSIL-DtM Það eru eflaust fá bæjarfélög i veröldinni í sama stærðarflokki sem hafa þá keppnisaðstöðu sem Grindvíkingar hafa í dag. Stúkan sem þessir framsæknu knatt- spyrnuáhugamenn eiga rúmar rúmlega hálft bæjarfélagið og set- ur hún punktinn yfir i-ið á þess- um glæsilega knattspymuvelli þar sem þegar hefur verið leikiðí Evr- ópukeppninni í knattspymu. Aðstaða fyrir áhorfendur er mjög góð í Grindavík og eins og áður sagði byggðu þeir nýlega fallegt stúkumannvirki sem rúm- ar 1500 manns í sæti og er stúkan yfirbyggð. Önnur áhorfendaað- staða er ekki til staðar þó að ein- hverjir áhorfendur geti staðið við grindverk við hina hlið vallarins. Salemisaðstaða mætti vera betri, sérstaklega í fjölmennum leikjum, og næsta skref hjá þeim Grindvík- ingum hlýtur að vera að bæta markatöflu og vallarklukkuna. Markataflan er ekki nægilega greinileg fyrir áhorfendur í stúkunni hinum megin við völl- inn og þá er skífuklukka ekki nægilega nákvæm. Aðstaða leikmanna er til fyrir- myndar. Búningsklefar eru í húsi við suðvesturhom vallarins og eru þeir stórir og rúmgóðir. Það er þó smágalli að leið leikmanna liggur yflr annarri af tveimur leið- um áhorfenda að stúkunni en það kemur þó ekki mikið að sök þar sem leið leikmanna er mjög stutt og auðvelt að verja hana. Aöstaða blaðamanna er til fyrir- myndar en hún er rúmgóð og björt og það er gott útsýni yfir leikvöllinn úr blaðamanna- stúkunni sem er yfirbyggð. Leikvöllurinn sjálfur er af- bragðsgóður. Grindvíkingar áttu í vandræðum með grasið á vellin- um í fyrrasumar en virðast hafa náð að ráða bót á þeim vanda. Grasið sem lagt var á völlinn í upphafi var alls ekki nógu gott og réðust heimamenn í það verkefni i fyrra að skipta um grasið á stór- um hluta vallarins og virðist það hafa heppnast með ágætum. Völl- urinn er í finu ásigkomulagi eins og staðan er núna. Grindavíkurvöllur gerir meira en nóg í því að uppfylla þær kröf- ur sem UEFA og KSÍ gera til að- stöðunnar á vellinum. Grindvík- ingar þurfa að vera með 600 sæti en eru eins og áður sagði með 1500 sæti. öll eru þau undir þaki sem er til fyrirmyndar. Það vart hægt að hrósa knatt- spymuyfirvöldum og bæjarfélag- inu í Grindavík nægilega fyrir þessa aðstöðu sem boðið er upp á þar á bæ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.