Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 4
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003
DV
Eskfirskt gteðibros
Dagný Jónsdóttir, sem fékk örugga kosningu í Noröausturkjördæmi, var á
þjóölegum nótum viö þingsetninguna og þrosti sínu breiöasta. Hér er hún
ásamt flokksbræörum sínum, þeim Magnúsi Stefánssyni, Árna Magnússyni
og Hjálmari Árnasyni.
Heili forseta vorum og fósturjörð ...
Davíö Oddsson hyttir forsetann eftir aö sá síöarnefndi haföi sett Alþingi úr ræöustól ígær.
DV-MYNDIR GVA
Alþingi sett
Alþingi íslendinga, 129. löggjafar-
þing, var sett viö hátíölega athöfn í
gær. Hófst þingsetning að venju meö
messu í Dómkirkjunni þar sem séra
Hjálmar Jónsson, fyrrverandi alþing-
ismaður, prédikaði og þjónaði fyrir
altari ásamt Karli Sigurbjömssyni,
biskupi íslands.
Að því loku héldu þingmenn aftur
í Alþingishúsið þar sem Olafur Ragn-
ar Grímsson, forseti íslands, setti AI-
þingi. í ræðu sinni gat forseti þess að
aldrei fyrr hefðu jafn margir ungir
þingmenn sest á Alþingi í einu og
fróðlegt yrði aö sjá hvaða áhrif ný
kynslóð hefði á störf þingsins.
Samfara þingsetningu varö ljóst
hveijir mundu fara með formennsku
í hinum ýmsu nefndum þingsins.
Þannig þykir teljast til tíðinda að
Hjálmar Ámason verður þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins í stað
Kristins H. Gunnarssonar en Krist-
inn hefur gegnt þingflokksfor-
mennsku undanfarin ár. Sólveig Pét-
ursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra, verður formaður utanríkis-
málanefndar í stað Sigríðar Önnu
Þórðardóttur sem verður umhverfis-
ráðherra í september á næsta ári.
Sigríður Anna verður hins vegar for-
maður umhverfisnefndar. Þorgerður
Nýllöa heilsaö
Gunnar Örn Örlygsson, nýliöi á þingi, tekur hér brosandi í hönd
Björns Bjarnasonar dómsmálaráöherra.
Sæll, Ossur
Dorrit Moussaieff, eiginkona forsetans, heitsar hér Össuri Skarphéöinssyni,
formanni Samfylkingarinnar.
í gær
Katrín Gunnarsdóttir verður formað-
ur allsherjamefndar og Pétur Blön-
dal formaður efnahags- og viöskipta-
nefndar.
Jónina Bjartmarz, sem mun hafa
eygt ráðherrastól, verður formaður
heilbrigðis- og trygginganefndar og
varaforseti Alþingis. Magnús Stefáns-
son verður formaður fiárlaganefndar
og varaformaður þingflokksins.
Kristinn H. Gunnarsson verður for-
maður iðnaðamefndar og Hjálmar
Ámason formaður félagsmálanefnd-
ar.
Ámi Ragnar Ámason verður for-
maður sjávarútvegsnefndar, Guð-
mundur Hallvarðsson formaður sam-
göngunefndar, Gunnar I. Birgisson
formaður menntamálanefndar og
Drifa Hjartardóttir formaður land-
búnaðamefhdar.
Loks má geta þess að við þingsetn-
inguna minntist Halldór Ásgrímsson,
starfsaldursforseti Alþingis, Halldórs
E. Sigurðssonar, fyrrum ráðherra, en
Halldór lést í fyrradag á 88. aldursári.
-hlh
Gamlir félagar glaöir á svip
Hjálmar Jónsson dómkirkjuþrestur þrédikaöi í heföbundinni messu viö setn-
ingu Alþingis. Hér heilsar hann Geir H. Haarde fjármálaráöherra og flokks-
bróöur. Guöni Ágústsson landbúnaöarráöherra og Valgeröur Sverrisdóttir fylgj-
ast kankvís meö.
Hlýtt á ræöu forseta
Fjarvera Guörúnar Ögmundsdóttur varö til þess aö Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var viö þingsetninguna í gær. Hér hlýöir
hún á ræöu forsetans ásamt flokksformanni sínum og svila, Össuri Skarphéöinssyni, og Margréti Frímannsdóttur,
varaformanni Samfytkingarinnar. Fyrir aftan sitja þeir Einar Kristinn Guöfinnsson og Jóhann Ársælsson.