Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003
DV
Fréttir
Deilt um nýju húsnæðislánin
- frumhlaup hjá ráöherranum, segir Einar Oddur
„Ég hefði nú haldið það bæri
að kynna þetta fyrst í flokkunum
og síðan í ríkisstjórn. Ég lít svo á
að þetta sé frumhlaup hjá ráð-
herranum," segir Einar Oddur
Kristjánsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, spurður um
það, hvort þingmönnum flokks-
ins hafi komið á óvart að sjá til-
lögur nýs félagsmálaráðherra,
Árna Magnússonar, um hækkun
húsnæðislána á forsíðu Morgun-
blaðsins í morgun.
Tillögumar fela í sér að hámarks-
lán hækki í áfóngum úr 8 milljónum
króna upp í 18 milljónir árið 2007 og
lánshlutfallið upp í 90%. Meðfylgj-
andi súlurit sýnir hvað þetta þýðir
fyrir kaupanda sem nýtir sér lán
íbúðalánasjóðs til fulls. Hann þarf í
dag aö reiða fram 3,4 milljónir
króna til þess að geta keypt sér íbúð
fyrir 11,4 milljónir, enda er há-
markslánið 8 milljónir og lánshlut-
faUið 70% við kaup á fyrstu íbúð.
Nái hugmynd félagsmálaráðherra
fram að ganga þarf árið 2007 aðeins
að leggja fram 2 miUjónir króna tU
þess að kaupa íbúð fyrir 20 mUljón-
ir króna. Eigið framlag lækkar því
um ríflega 40% en verðið sem kaup-
andi getur greitt fyrir íbúðina
hækkar um 75%.
Ríkisvæðing
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maöur greiningardeUdar Lands-
bankans, segir ljóst að eftirspurn
eftir húsnæði muni aukast viö þetta,
einkum eftir meðalstóru og stærra
húsnæði. „Eins og við vitum tekur
tíma að laga framboð á húsnæði að
eftirspuminni og við vitum að
vinnuaflið er frekar upptekið á
næstu árum við að byggja virkjanir
og álver. Þarna er því ákveðin hætta
á að verð fasteigna muni hækka,
enda munum við bítast um jafn-
mörg hús á næstu árum með meira
lánsfé á mUIi handanna. Á móti
kemur að þetta verður gert í skref-
um; þeir sem hyggjast nýta sér
hæsta lánshlutfaUið munu hugsan-
lega bíða og draga þannig úr þenslu-
áhrifunum tU að byrja með. Aö
hluta tU yrði þetta líka tiifærsla á
lánum frá lífeyrissjóðunum."
Edda Rós leggur í þessu sambandi
áherslu á að nýbúið sé að einka-
væða bankana. „Með þessu er hins
vegar verið að ríkisvæða stærri
hluta húsnæðislánanna og ríkið í
rauninni að taka tU sín veðlán, sem
eru traustustu lán fjármálastofnana.
Önnur fjármálafyrirtæki hafa tak-
markaöa möguleika á að keppa við
þetta enda njóta þau lakara láns-
kjara en íbúðalánasjóður, sem nýt-
ur ríkisábyrgðar."
Eðlilegt
Ingólfur Geir Gissurarson, eig-
andi fasteignasölunnar ValhaUar,
telur að viðvaranir fjármálamarkað-
arins um hækkun fasteignaverðs og
þenslu markist af hagsmunagæslu
þeirra. „Það er ekkert verið að
hugsa um fólkið. Markaðsverð fast-
eigna hefur hækkað mörg hundruð
prósentum meira en hámarkslán
Ibúðalánasjóðs. Þetta hefur skapað
gat sem fólk á erfitt með að brúa.
Það gerir það með öðrum dýrum
lánum. Þetta er mjög óeðlUeg staða
en því eru verðbréfamarkaður og
bankar fegnastir," segir Ingólfur.
Á fjármálamarkaðnum er bent á
það á móti, að aUt eins megi líta á
ummæli sem þessi sem hagsmuna-
gæslu fasteignasala, sem sjái fram á
bjarta tíð og blómleg viðskipti með
snarhækkuðum húsnæðislánum.
-ÓTG
St. Jósefsspítali:
Sýknaður af
skaðabótakröfu
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur sýknað St. Jósefsspítala af
skaðabótakröfu manns upp á 33
milljónir króna en maðurinn
varð fyrir alvarlegu heilsutjóni i
kjölfar heilablóðfalls árið 1998.
Árið 1991 fékk hann mjög svæsið
mígrenikast og var þá skoðaður
af lækni á spítalanum. Læknirinn
taldi að ekki væri ástæða til sér-
stakra viðbragða.
Þann 9. febrúar 1993 fékk
maöurinn síðan heilablóðfall,
fertugur að aldri. Hann var lagð-
ur inn á spítalann til fyrrnefnds
læknis. Læknirinn kvaðst hafa
rætt við aðra lækna spítalans
hvort ástæða væri til þess að láta
fara fram frekari rannsóknir en
niðurstaðan hefði verið sú að
veikindi hans gæfu ekki tilefni til
annarra rannsókna.
Árið 1998 fékk hann síðan ann-
að heilablóðfall, en í þetta skiptið
mun alvarlegra en áður og er
hann nú algjörlega lamaður á
hægri handlegg og málstirður.
Dómurinn taldi að manninum
hefði ekki tekist að sýna viðhafð-
ar hefðu verið óvenjulegar vinnu-
reglur við rannsóknir á heilablóð-
falli hans þannig að því yrði um
kennt að hann fékk aftur heUa-
blóöfall fimm árum síðar. -EKÁ
DV-MYNDIR GVA
Þingflokkur Frjálslyndra
Frjálslyndir tvöfölduöu þingmannafjölda sinn úr tveimur í fjóra. Hér sést þingflokkurinn fara til messu. Sigurjón Þóröar-
son goöi er lengst til vinstri, þá Magnús Þór Hafsteinsson, Gunnar Örn Örlygsson og loks foringinn sjálfur, Guöjón Arn-
ar Kristjánsson.
Helgi Hjörvar sem áminntur var af forseta Alþingis um aö fara aö kurteisisreglum:
Ottalega gamaldags
„Mér finnst þetta óttalega gam-
aldags og óþarfa viðkvæmni for-
seta fyrir gagnrýni á forsætisráð-
herra," sagði Helgi Hjörvar, þing-
maður Samfylkingarinnar, við DV
í morgun.
Helgi sat sinn fyrsta þingfund á
Alþingi í gær og fór í ræðustól þar
sem hann gagnrýndi þingmenn
stjórnarflokkanna fyrir að nenna
ekki að taka þátt í umræöum um
framkvæmd kosninganna og for-
sætisráðherra fyrir að nenna ekki
að flytja stefnuræöu sína. Þau orð
fengu Halldór Blöndal, forseta Al-
þingis, til að slá í bjöUuna og
áminna Helga um að fara að kurt-
eisisreglum.
Síðla dags í gær þótti ljóst að
umræðu um afgreiðslu kjör-
bréfanefndar á Alþingi
mundi ekki ljúka í tíma fyr-
ir stefnuræöu forsætisráð-
herra um kvöldið. Stefnu-
ræðunni var því frestað og
verður hún haldin í kvöld.
Aðdragandi þessa var að níu
manna kjörbréfanefnd, sem
kosin var samkvæmt venju
tU að prófa kjörbréf og kosningu
nýkjörinna þingmanna, klofhaði í
afstööu sinni. Meirihluti nefndar-
innar lagði til að kjörbréf þing-
manna yrðu samþykkt en minni-
hluti lagði til aö samþykkt bréf-
anna yrði frestaö þar til skýrslur
frá yfirkjörstjómum allra kjör-
dæma um meðferð kjörgagna og
Helgl Hjörvar.
framkvæmd kosninganna
hefðu verið fengnar. Stóðu
úmræður um þessi mál
fram á tíunda tímann í gær-
kvöld.
Helgi segir að sér hafi þótt
undarlegt að einungis eirrn
stjómarþingmaður hefði tek-
ið þátt í umræðum aUan dag-
inn. „Síðan frétti ég í sjón-
varpi að það væri hætt við að flytja
stefhuræðuna. Þetta var nú fyrsti
dagurinn í nýju vinnunni og fannst
mér stjómarliðið sýna heldur lítinn
áhuga á innræðunni. Þá þótti mér
einkennUegt að boðað væri tU þings
og umræðna um stefnuræðu forsæt-
isráðherra og frétta síðan að það
væri búið að fresta henni. Ég geröi
eðlilega athugasemdir við þessi
vinnubrögð. Forseta þótti það hins
vegar óvirðing við forætisráðherra
aö segja að hann nennti ekki að
halda ræðuna.“
Helgi segir það sérstaka tilfinn-
ingu að flytja jómfrúrræðu sína
áður heldur en kjörbréf var sam-
þykkt eða að hann hefði undirritað
drengskaparheit. Það hefði ekki
gerst í áratugi.
- Nú byrjar þingmennskan svolít-
ió bratt. Hvernig leggst framhaldió í
Þig?
„Þingið á reyndar eftir aö kjósa
sér forseta en það kæmi mér ekki á
óvart þó við mundum eiga einhver
oröaskipti þegar fram líða stundir,"
sagði Helgi. -hlh
Ungur nemur...
Endurnar á Tjörninni fjötga sér
þessa dagana svo unun er á að
horfa í blíöskaparveöri Skerplunnar.
Anna Kristine:
Hætt milli mjalta
ogmessu
' JJ taka þáttinn minn
r ^ út af dagskrá," segir
j l 'c . Magnúsdóttir blaða-
jÆ hvers vegna hún
hafi kvatt útvarps-
AhnáKH^inT hlustendur svo há-
tíðlega síðasta
sunnudag. Hér er vitaskuld átt við
þáttinn MiUi mjalta og messu sem
hún hefur verið með á Bylgjunni á
sunnudagsmorgnum síðustu árin og
áður á Rás 2. Þar hefur hún haft
einn viðmælanda hveiju sinni og
fengið hann tU að segja ftá lífs-
hlaupi sínu.
Þessa stundina er Anna Kristine
stödd úti í Tékklandi, hvaðan hún
er upprunnin. Er hún þar á bama-
kvikmyndahátíð í Zlim sem stendur
í 9 daga og situr í dómnefnd. Ein ís-
lensk mynd er á hátíðinni, það er
tölvuteiknimyndin Litla lirfan ljóta
eftir Gunnar Karlsson. En hvað tek-
ur svo viö hjá Önnu Kristine? „Það
er aUt óráðið. Ég er bara eins og
PáU Pétursson, verð að fara að leita
mér að vinnu,“ segir hún. -Gun.
Harður árekstur í gær:
Barnshafandi kona
í öörum bílnum
Harður árekstur varð á gatnamót-
um Reykjanesbrautar og Grindavík-
urvegar um klukkan tvö í gær. Far-
þegi í öðrum bílnum var fyrst flutt-
ur á HeUbrigðisstofnun Suðumesja
en eftir nánari skoðun var hann
fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.
Ekki er enn ljóst hversu mikiö slas-
aður hann er. Farþegi í hinum bUn-
um var bamshafandi kona og var
hún einnig flutt á heUbrigðisstofn-
unina. Fékk hún að fara heim að
skoðun lokinni. BUamir eru mikið
skemmdir og þurfti að fjarlægja þá
með dráttarbUum._____-EKÁ
Tilraun til innbrots:
Þpíp handteknip
Lögreglan í Reykjavik handtók
þrjá menn á fertugsaldri um
fimmleytið í nótt eftir að þeir
höfðu reynt að brjótast inn í hús
í Skipholtinu. Þeir náðu ekki að
stela neinu og voru tveir þeirra
handteknir í nágrenninu. Þriðji
maðurinn var síðan handtekinn
skömmu síöar. Þeir eru aUir í
haldi lögreglunnar sem mun
væntanlega yfirheyra þá innan
skamms. -EKÁ
Eldur í húsi hjá Húsavík:
Allt Innbú nánast ónýtt
Eldur kom upp í íbúðarhús-
næði í Reykjahverfi sunnan við
Húsavík um klukkan tvö í gær.
Enginn var í húsinu þegar eldur-
inn kom upp en húsráðendur
voru þá nýlega farnir út. Vel
gekk að ráöa niðurlögum eldsins
sem oUi þó miklum skemmdum.
Allt innbúið er nánast ónýtt og
töluverðar skemmdir urðu á hús-
inu sjálfu. Málið er enn i rann-
sókn en talið er að kviknað hafi í
út frá rafmagnstæki, hugsanlega
brauðrist. -EKÁ