Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 33
LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003 B¥HBJ&MtBLAB 37 I Jr Kylie kynþokka- fyllst enn á ný Kylie Minogue: Ástralska söngkonan hugljúfa er kná,þótt smá sé og sexí. Ástralska söngdúfan Kylie Minogue hefur eina ferðina enn verið kjörin kynþokkafyllst allra kvenna. Og lái hver sem vill þeim sem greiddu um það atkvæði. Valið I var í raun ekkert og kvölin þar með j ekkiheldur. Reyndar varð Kylie í fyrsta sæti í kosningu um kynþokkafyllsta tón- listarmanninn, þar sem bæði kon- ur og karlar voru tilnefnd, sem tón- listarsjónvarpsstöðin VHl stóð fyr- ir. Kylie skaut ekki ómerkari tónlist- armönnum og -konum en Britney Spears, Robbie Williams, Jennifer Lopez og Enrique Iglesias aftur fyr- ir sig. Alls voru eitt hundrað manns á listanum. Emma Bunton, fyrrum kryddpía, lenti í áttunda sæti en varð engu að síður efst aflra breskra söngkvenna. „Ég er virkilega upp með mér yfir að hafa verið valin kynþokkafyllsta kona Bretlands af áhorfendum VHl. Ég er ánægð með að ávalar línur skuli aftur eiga upp á pall- borðið," sagði Emma, eða krydd- j krakkinn, eins og hún var alltaf kölluð, í viðtali við Sky sjónvarps- I stöðina. Hvort breska flugfélagið British Airways hefur haft eitthvert veður af könnuninni og úrslitum hennar skal ósagt látið. En hitt er þó víst að þar á bæ eru menn þefnæmir með afbrigðum. Kylie Minogue hefur nefnilega verið ráðin til að lokka Tjallann í ferðalög með flugfélag- inu sínu. Já, bikiníklædd á Kylie að hafa í frammi freistandi slagorð fyrir frí- þyrsta Breta sem þrá sól. ÁfeuÉjbur Hr«ÍÖur fugla Utanhússkiæbnlngar Garbhús og gró&urhús 11 III # Fæst á næsta blaðsölustað Áskriftarsími 586 8005 • www.rit.ls

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.