Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2003, Síða 6
6 FRÉTTIR FÚSTUDAGUR 18.JÚÚ2003
norðan
Bikarmót fyrir
HESTAMENNSKA: Bikarmót
Norðurlands í hestaíþróttum
verður haldið við Hringsholt í
Svarfaðardal um helgina. Þar
etja kappi norðlenskir eðalreið-
menn; húnvetnskir, skagfirskir,
eyfirskir og þingeyskir. Um er að
ræða sveitakeppni, þar sem
keppt er í helstu greinum hesta-
íþrótta. (unglingaflokki er keppt
í tölti og fjórgangi og í fullorð-
insflokki er keppt í tölti, fjór-
gangi, fimmgangi, gæðinga-
skeiði og 100 m skeiði með fljót-
andi starti. Keppni í fjórgangi
hefst í fyrramálið en klukkan 13
mun Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra setja mótið form-
lega. Að því loknu verður
keppni í fimmgangi, tölti og 100
m skeiði. Annað kvöld er öllum
boðið til grillveislu í Hringsholti.
HESTAMAÐUft Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra með stóð-
hestinn Dag frá Strandarhöfða.
Baugur tryggir
VHDSKIPTI: Baugur hefur tryggt
sér 41,2 prósent hlutafjár í leik-
fangafyrirtækinu Hamleys í Bret-
landi en keppinautur Baugs,Tim
Waterstone, dró sig til baka í
gær. Stjórn Hamleys hefurtil-
kynnt hluthöfum að yfirtökutil-
boði Baugs verði tekið.Tilboð
Baugs er upp á 59 milljónir
punda eða sem samsvarar um
7,3 milljörðum króna. Haft var
sér Hamleys
eftir Waterstone í breskum fjöl-
miðlum í gær að það væri ekki
lengur hagkvæmt að bjóða bet-
ur en Baugur en síðasta tilboð
Baugs hljóðaði upp á 254 pens á
hlut. Upphafleg tilboðs Baugs
hljóðaði upp á 205 pens á hlut.
Tilboðið nú er hins vegar tvöfalt
hærra en gengið var áður en
kapphlaupið um Hamleys hóftt
og er hefur ekki verið hærra í 5 ár.
Afskriftir á eignum Landsbankans miklar:
Kaupverð bankans mun lækka
Meiri afskriftir verða af eignum
Landsbankans en gert var ráð
fyrir þegar 45,8% hans voru
seld Samson-hópnum í fyrra.
Það mun væntanlega leiða til
þess að kaupverð bankans
verði lægra en áætlað hafði ver-
ið.
Ekki er enn ljóst hversu mikið
kaupverðið muni lækka en í samn-
ingum íslenska ríkisins og Samson
er gert ráð fyrir því að lokaverð
bankans geti breyst verði afskriftir
meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir
þegar samið var um kaupin. Samið
var uni að munurinn á áætluðu
kaupverði Samson-hópsins og
raunverulegu kaupverði gæti orðið
allt að 700 milljónum króna vegna
þessa.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, staðfesti þetta
í yfirlýsingu í gær. Kaupverðið mun
því væntanlega verða endurskoðað
þegar samið verður um loka-
greiðslu Samson fyrir bankann, en
það verður gert í desember. Upp-
SAMSON-HÓPURINN: Björgólfur Guðmundsson, Magnús Þorsteinsson og BjörgólfurThor Björgólfsson.
Íl-fa 9 ’ 'Wt- 9 \ ' ' fS‘E HH t í'- jf f'i, tfi ’ m H
Á
haflega hafði verið gert ráð fyrir því
að Samson borgaði 12,3 milljarða
króna fyrir hlutinn í bankanum.
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri
helming ársins mun ekki liggja fýrir
Kaupverðið mun því
væntanlega verða end-
urskoðað þegar samið
verður um lokagreiðslu
Samson fyrir bankann.
fyrr en í ágúst og því er ekki hægt að
segja með fullri vissu nú hversu
miklu mun muna á áætluðum og
raunverulegum afskriftum. Jafn-
framt þarf að hafa í huga að þriðji
fjórðungur ársins mun einnig
skipta máli þegar kemur að ákvörð-
un lokagreiðslunnar.
Ákvæðið um aðlögun kaupverðs
Landsbankans var sett inn í kaup-
samninginn vegna þess að óvissa í
áætlunum íslenska ríkisins á af-
skriftum eigna Landsbankans var
umtalsverð. kja@dv.is
SELTJARNARNtS: Rannsóknir sýna að lítil jarðskjálftahætta er á Nesinu.
Bæjarstjórínn á Nesinu um „jarðskjálftaparadísina":
Seítjarnarnesið
stöðugt og traust
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, segir
ánægjulegt að mat vísinda-
manna skuli vera að hvergi sé
jarðskjálftahætta minni en þar.
„Hingað til höfum við talað fyrir
því að Nesið sé traust og stöðugt
samfélag og þá hefur verið vimað til
ágætrar fjárhagsstöðu bæjarins. Nú
virðist hins vegar ljóst að þessi orð
eiga við í fleiri en einum skilningi,"
segir Jónmundur.
Fjarlægur möguleiki
Eins og DV greindi frá í gær hafa
þrír prófessorar í verkfræði við Há-
skóla íslands með nákvæmum hætti
greint hver jarðskjálftahætta á höf-
uðborgarsvæðinu sé. Er hún reikn-
uð út frá hugsanlegri yfirborðshröð-
un jarðar og hröðunarlínum. Ljóst
er að hætta væri mest á Heiðmerk-
ursvæðinu en eftir því sem norðar
og vestar dregur fer hættan dvín-
andi - og er nánast engin orðin þeg-
ar kemur út á Seltjamarnes.
Jómundur Guðmarsson segir að
mat sem þetta á jarðskjálftahættu á
Nesinu hafi ekki áður verið unnið
svo hann þekki til.
„Sú hætta af völdum náttúm-
hamfara sem menn hafa helst séð
fyrir sér er jarðskjálfti eða hlaup úr
Snæfellsjökli sem færi í sjó ffam.
Þannig gæti myndast flóðbylgja sem
síðan bærist yfir Faxaflóa og brotn-
aði við strönd á Seltjarnamesi. Þetta
er þó fjarlægur möguleiki."
Metum Júlíus mikils
Júlfus Sólnes bjó fyrr á ámm á Sel-
tjarnarnesi og er því bæjarbúum að
góðu kunnur. „Við metum hann
mikils, bæði sem vísindamann en
ekki síður sem einstakling," segir
Jónmundur bæjarstjóri. Spurður
um hvort ekki sé líklegt að þetta mat
verkfræðiprófessoranna þriggja sé
til þess fallið að hækka fasteigna-
verð segir hann það ekki ótrúlegt.
Minnir hins vegar á að óvíða á höf-
uðborgarsvæðinu sé verð fasteigna
hærra og komi þar fjölmargar
ástæður til.
sigbogi@dvJs