Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2003, Síða 39
I
I
I
I
1
FÖSTUDAGUR 18.JÚLI2003 DVSPORT 39
Cook áfram hjá Tindastóli
Bárður áfram með Snæfell
KÖRFUKNATTLEIKUR:
Bandaríkjamaðurinn Clifton
Cook mun leika með Tindastóli
í Intersport-deildinni í
körfuknattleik næsta vetur.
Kristinn Friðriksson, þjálfari
Tindastóls, sagði í samtali við
DV-Sport í gær að Cook væri
búinn að gera munnlegt sam-
komuleg við félagið og að
hann byggist við því að hann
myndi skrifa undir samning á
næstu dögum. Cook lék mjög
vel á síðasta tímabili og skor-
aði 24,3 stig og tók 7,6 fráköst
að meðaltali.
Kristinn sagði jafnframt að það
væri mjög ólíklegt að Rússinn
Michail Antropov myndi spila
meðTindastóli á næsta ári en
að hann væri að leita að
mönnum erlendis.
Cook spilar áfram með Tindastóli.
KÖRFUKNATTLEIKUR: Bárð-
ur Eyþórsson mun þjálfa lið
Snæfells í Intersport-deildinni í
körfuknattleik næsta vetur en
eins og kom fram í DV mið-
vikudaginn 9. júlí síðastliðinn
þá hafði blaðið heimildir fyrir
því að Bárður væri hættur
störfum.
GissurTryggvason, formaður
körfuknattleiksdeildar Snæ-
fells, sagði í samtali við DV-
Sport í gær að Bárður hefði
verið endurráðinn í vor, æfing-
ar væru byrjaður og að Bárður
stjórnaði þeim.
Gissur sagði að tveir Banda-
ríkjamenn myndu spila með
liðinu á komandi tímabili. Ann-
ar þeirra er bakvörðurinn Cor-
ey Dickerson en hann lék tvo
leiki með Grindvíkingum í úr-
slitakeppninni í vor, í fjarveru
Darrells Lewis. Hinn leikmaður-
inn er Joe Ransom, tveggja
metra hár miðherji, sem lék %
með Brimingham South Col-
lege, sama skóla og Jakob Sig-
urðsson og Helgi Margeirsson
leika nú með. Ransom skoraði
19,1 stig og tók 7,9 fráköst síð-
asta ár sitt í skólanum og var
stigahæsti maður liðsins.
Opna breska meistaramótið hófst í gær með látum:
Erfiður fyrsti dagur
TOPPMAÐUR: Hennie Otto, kylfingur frá Suður-Afríku, lék best allra á fyrsta degi Opna
breska meistaramótsins í golfi. Hér slær hann högg á 18. braut. Reuters
---- —— ---j----—--------
Veiddi maríulaxinn
á maðk í Hvolsá
Á hverju ári veiða veiðimenn
maríulaxinn sinn og það eru
mikil tímamót, veiðiugginn er
bitinn af og rennt er fyrir fleiri
fiska. Þannig gengur veiðiskap-
urinn fyrir sig.
Hann Hjörvar Gísli Valgeirsson,
10 ára, veiddi maríulaxinn sinn í
Hvítadalsstrengnum í Hvolsá fyrir
fáum dögum og var að vonum
ánægður með fenginn.
, -^að var skemmtilegt að strákur-
inn skyldi veiða maríulaxinn sinn
þarna en fiskurinn var 5 pund og
veiddist á maðkinn," sagði faðir
hans, Valgeir Ólafur Guðmunds-
son, í samtali við DV-Sport en hann
var á svæðinu þegar sonur hans
veiddi laxinn.
Núna eru komnir 2 laxar úr
Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum, en
ríflega 150 bleikjur hafa veiðst og
eru þær stærstu um 4 pund.
Veiðimenn, sem voru við veiðar í
„Það var skemmtilegt
að strákurínn skyldi
veiða maríulaxinn sinn
þarna en fiskurinn var
5 pund og veiddist á
maðkinn."
Fáskrúð í Dölum, voru lítið að fá
fyrir fáum dögum, enda áin vatns-
lítil. Mikið líf var fyrir utan ósinn en
kannski ekki af fiski. Krossá á
Skarðsströnd hefur geflð laxa en
ekki mikið ennþá. G. Bender
Það var heldur vindótt á hinum
konunglega St. George golfvelli
á Englandi í gær þar sem Opna
breska meistaramótið í golfi
hófst í gær. Kári í jötunmóð lét
til sín taka og þeytti mörgum
frægum kylfingum heldur aft-
arlega á skorlistann.
Fyrstan ber að nefna sigurvegara
síðasta árs, Suður-Afríkumannin-
um Ernie Els sem náði sér engan
veginn á strik og lauk keppni á 7
höggum yfir pari. Þá lenti stór-
stjarnan Tiger Woods í miklum
vandræðum strax á fyrstu braut
þegar hann týndi boltanum eftir
teighöggið. Hann lauk holunni á
þreföldum skolla.
Það var hins vegar annar golfari
frá Suður-Afríku, Hennie Otto, sem
gerði sér lítið fyrir og spilaði best
manna f gær, á þremur undir pari.
Hann er ekki mjög þekktur í golf-
heiminum og þurfti að spila sig inn
á mótið í forkeppnum.
Hvíta hákarlinum, Greg Norman,
líkar greinilega vel á St. George og
Tiger Woods lenti í
miklum vandræðum á
fyrstu braut þegar
hann týndi boltanum.
spilaði á tveimur undir pari en
hann vann mótið þegar það fór síð-
ast fram á þessum velli, fyrir 10 ár-
um. Sá gerði sér lítið fyrir og fékk
örn á hinni löngu 4. braut.
Hinn 53 ára gamli Tom Watson,
sem hefur unnið mótið 5 sinnum á
ferlinum, var í góðu formi og hefði
vel getað verið á toppnum ef ekki
hefði verið fyrir skolla á næstsíð-
ustu braut og tvöfaldan skolla á
þeirri síðustu. Hann lék á pari.
Tiger Woods náði að redda deg-
inum eftir slæma byrjun með 4
fuglum. „Ég er ennþá með í þessu
móti,“ sagði Tiger. „Maður þarf
bara að hafa þolinmæði og einbeita
sér því það er mjög auðvelt að falla
úr leik á þessu móti.
„Maður þarf bara að
hafa þolinmæði og
einbeita sér, því það er
mjög auðvelt að falla
úr leik á þessu móti."
Helsta von heimamanna, Colin
Montgomerie, hrasaði yfir morg-
unverðarborðinu áður en keppnin
hófst og varð fyrir meiðslum í
hönd. „Það var mjög sárt að spila í
dag. Ég reyndi sem ég gat að ná til
boltans með almennilegum högg-
um en sársaukinn bar mig ofur-
liði,“ sagði Montgomerie sem hætti
keppni á 7. braut, fjórum höggum
yfír pari.
Hann var ekki sá eini sem hætti
því Bandaríkjamennirnir Paul Azin-
ger og Jerry Kelly hættu lika. Sá síð-
arnefndi var sérstaklega seinhepp-
inn - fór fyrstu holuna á 11 höggum
og hætti svo keppni á þeirri 17. þeg-
ar hann slasaði sig á vinstri hönd.
eirikurst@dv.is
STAÐAN EFTIR FYRSTA DAG
Efstu menn:
Hennie Otto, Suöur-Afrlku 68
Davis Love III, Bandaríkjunum 69
Greg Norman, Ástrallu 69
S.K. Ho, Suður-Kóreu 70
Fredrik Jacobson, Svíþjóö 70
Fred Couples, Bandarlkjunum 71
Gary Evans, Bretlandi 71
Mathias Gronberg, Svíþjóð 71
Charles Howell III, Bandaríkjunum 71
Thomas Levet, Frakklandi 71
Scott McCarron, Bandaríkjunum 71
Tom Watson, Bandarikjunum 71 m
Þessir helstu:
Jesper Parnevik, Svíþjóð 72
Thomas Bjorn, Danmörku 73
Sergio Garda, Spáni 73
Retief Goosen, Suður-Afríku 73
Sandy Lyle, Bretlandi 73
Mark O'Meara, Bandaríkjunum 73
Tiger Woods, Bandarikjunum 73
lan Woosnam, Bretlandi 73
Jim Furyk, Bandarikjunum 74
Justin Leonard, Bandarikjunum 74
Phil Mickelson, Bandaríkjunum 74
Jose-Marie Olazabal, Spáni 74
Nick Price, Zimbabwe 74 ••
Mike Weir, Kanada 74
Stuart Appleby, Ástrallu 75
Darren Clarke, Bretlandi 75
Padraig Harrington, (rlandi 75
Vijay Singh, Fídji-eyjum 75
Nick Faldo, Bretlandi 76
Bernhard Langer, Þýskalandi 76
Lee Westwood, Bretlandi 76
Tom Lehman, Bandaríkjunum 77
Ernie Els, Suður-Afrlku 78
Justin Rose, Bretlandi 79
David Toms, Bandaríkjunum 80
Paul Lawrie, Bretlandi 81
David Duval, Bandaríkjunum 83
Bretinn Colin Montgomerie hætti
keppni á 7. braut, þá 4 yfir pari.
Við höfum veiðileyfin handa þér!
i
Bjarnafjaröará, Blanda, Brynjudalsá, Eldvatn, Eystri Rangá, Ferjukotseyrar, Galtalækur, Grenlækur sv. 3,
Hafralónsá, Kráká, Langadalsá, Laugardalsá, Laxá í Aðaldal - Árbót, Múlatorfa og Staðartorfa, Laxá á Ásum,
Litlá, Miðfjarðará, Sog - Tannastaðatangi og Þrastarlundur, Svartá, Straumarnir, Tungufljót, Vatnasvæði Lýsu,
Vesturbakki Hólsár, Ytri Rangá o.fl. ^
STANGVEIÐIFELAGIÐ
Vatnsendabletti 181
203 Kópavogi
Sími 557 6100
lax-a@lax-a.is
www.lax-a.is