Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Side 25
LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST2003 DV HELGARBLAÐ 25 DV-myndir E.ÓI. Eins og Ágústa tekur fram í lok uppskriftarinnar má nota hvaða fisk sem er í súpuna og sjálf skellti hún nokkrum bitum af laxi út í hana ásamt ýsunni. Þar sem Ágústa ræktar sjálf sítrónumelissu þá skipti hún steinseljunni og sítrónunni út og setti melissuna i staðinn. Guðrún Gunnarsdóttir hjá Eðalvínum ehf. mælir með vínum með fiskisúpu: rt vaxtaríkt hvítvín og svalandi sérrí „Til að byrja með mæli ég með frábæm hvítvíni ffá Argentínu, Trivento Chardonnay. Þetta er algjört „nammi“- vín eins og Þorri Hringsson orðaði það eitt sinn,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir hjá Eðalvínum, en hún velur tvær vínteg- undir með matnum sem framreiddur er hér á opnunni. Guðrún segir marga þætti gera það að verkum að vínrækt í Argentínu er mjög vel heppnuð. „Jarðvegur og veðurfar er til dæmis eins og best verður á kosið fyrir vínrækt. Þess vegna var það að Concha y Toro fór að framleiða vín í Argentínu undir nafninu Trivento. Þeir völdu Mendoza-svæðið og hófu framfeiðslu 1996. Meðalhitastig þar er lágt og því þroskast þrúgumar hægt. Mikill munur er oft á hitastigi á nóttu og degi og þvíeru vínin tannínnk. Stefnt var að því að ffam- leiða bestu vínin í Argentínu og hefur það tekist," segir Guðrún. Trivento Chardonnay vann nýverið silfurverðlaunin í keppninni „Chardonnay du Monde“, en það er keppni sem haldin er í hjarta Chardonnay-þrúgunnar, þ.e Chaintré í Burgundy. Þar komu saman vínffamleið- endur frá 37 löndum og aðeins til að keppa í Chardonnay-þrúgunni. Það þykir mikill heiður að vinna til verðlauna í keppninni. Trivento-nafnið þýðir vindamir þnr. Fyrst ber að nefna hinn ískalda Polar- vind sem herjar á víngarðana á veturna. Kuldinn nær djúpt inn í vínviðinn og er honum hvatning að halda áfram áð vaxa. Zonda-vindurinn kemur á miklum hraða niður Andesfjöllin úr vestri. Þessi hlýi vindur umvefúr plöntumar og vekur þær af vetrardvala. Þriðji vindurinn, Sudestada, kemur úr austri, ftískur en rakur á sumrin. Hann lætur þrúgurnar þroskast ásamt sólinni. „Ávöxtur vindanna gefúr plöntunum tækifæri tif þroska í takti við náttúmna. Náttúran skaffar sálina en við búum bara til vínið," segir víngerðarmeistari Tri- vento. Trivento Chardonnay er mjög ávaxtaríkt og ljúft vín, frábært með fiski- súpu, ræður vel við kumminið, sítrónuna og tómatinn. Vínið fæst í öllum verslun- um ÁTVR og kostar 910 krónur. Sérrí með súpu „Fyrir þá sem þora mæli ég hiklaust með Tio Pepe-sérríi með súpunni. Tio Pepe er tvímælalaust eitt vanmetnasta vfn á íslandi. Það er þurrt, ferskt, fíngert, með keim af eplum. Það á alltaf að drekka vel kælt,“ segir Guðrún um Tio Pepe-sér- rfið. Þetta er Fino sérrí þar sem yngsta blandan í „Solera" er aldrei yngri en sjö ára, sem orsakar það að Tio Pepe er mjög „konsentrerað". Það er mikil fylling í keim og bragði og smávegis sveppakeim- ur getur verið í ilmi. „Tio Pepe er alveg ótrúlega fjölhæft vín þar sem það nýtur sín sem fordrykkur, sem svaladrykkur á heitum degi eða með öllum sjávarréttum og köldum kjötrétt- um, hvort sem það em bragðmiklar kryddpylsur eða kalt svína- eða fuglakjöt. Það hentar einstaklega vel með tapas- réttum," segir Guðrún um leið og hún óskar lesendum skemmtunar á Menn- ingamótt og minnir á þjónahlaupið sem hefst á Café Victor klukkan 15. Tio Pepe fæst í öllum verslunum ÁTVR og kostar 1.830 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.