Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Page 4
4 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 29.ÁGÚST2003
j
Ferðamenn í Kættu
SLYS: Þýskirferðamenn, par
með ungt barn, lentu í miklum
hrakningum þegar þeir festu
bifreið sína í Jökulsá vestari í
gærdag. Jeppi fólksins festist
hálfur í kafi í ánni. Fólkið
komst fneð naumindum upp á
topp bílsins. Ferðafélagar
fólksins voru í nokkurri fjar-
lægð og sóttu þeir hjálp.
Björgunarsveitin Dalbjörg í
Eyjafjarðarsveit var kölluð út
og kom klukkan 16. Þá hafði
fólkið komist í land á báti sem
það hafði meðferðis. Um þrjár
stundir tók að ná jeppanum
upp úr jökulánni. Von vará
ferðamönnunum til Akureyrar í
nótt. Mildi þykir að fólkið
skyldi sleppa ómeitt úr hrakn-
ingunum en Jökulsá vestari er
ófær bílum.
ASI vill fund um Kárahnjúka
VIRKJUN: Fundur fulltrúa
landssambandanna í samráðs-
nefnd um virkjanasamninginn
með formönnum landssam-
banda innan Alþýðusambands
(slands, sem haldinn var sl. mið-
vikudag, fjallaði m.a. um virkjun-
arframkvæmdir á Kárahnjúka-
svæðinu. Á fundinum var gerð
grein fyrir stöðu mála á Kára-
hnjúkasvæðinu og samskiptum
samráðsnefndarinnar við fulltrúa
Impregilo og Samtaka atvinnu-
lífsins. Fram komu miklar áhyggj-
ur af þróun mála og hvert stefni.
Niðurstaða fundarins var að for-
ysta AS( óskaði eftir fundum með
forystu Samtaka atvinnulífsins
og ríkisstjórn vegna stöðu mála.
Þá var fjallað um málið á fundi
miðstjórnar AS( og gerð grein
fyrir þessari ákvörðun.
Framtíð Bonus Stores, dótturfyrírtækis Baugs, á valdi lánardrottna:
Búistervið tilboðií
reksturinn eftir helgi
LÁNADROTTNAR: Nefnd lánardrottna vinnur að því að gera tjónið eins lítið og unnt en búist er við formlegu tilboði í verslanir Bonus
Stores næstkomandi þriðjudag.
Framtíð þeirra 97 verslana sem
enn eru í gangi hjá Bonus Stores
Inc., dótturfyrirtæki Baugs í
Bandaríkjunum, er nú algjörlega
á valdi nefndar á vegum fimm
stærstu lánardrottna Bonus
Stores. Reyna þeir nú að gera
tjón sitt eins lítið og unnt.
Að undanförnu hafa forráðamenn
Baugs sagt að unnið sé að því að
draga saman seglin í rekstri fyrirtæk-
isins í Bandaríkjunum. Búið var að
loka stærstum hluta þeirra 410 versl-
ana sem í rekstri voru þegar best lét
vegna rekstrarörðugleika. Þá var
greint frá því fyrir skömmu að haldið
yrði áfram rekstri 97 verslana.
lacks Koegel, forstjóri Bonus
Stores Inc., sagði hins vegar í tO-
kynningu frá fyrirtækinu 29. júlí að
hann væri bjartsýnn á að greiðslu-
stöðvunin ætti að tryggja aukið fjár-
streymi til fyrirtækisins. „Þetta mun
veita tækifæri til að byggja upp hag-
kvæmar verslanir samkvæmt nýju
„dollar/food“-hugmyndinni sem
reynd hafi verið með góðum árangri
á tveim mörkuðum."
í samtali sem Sophy Buckley tók
við lón Ásgeir lóhannesson og birtist
í Financial Times 26. ágúst segir
hann rekstrarumhverfið allt annað í
Bandaríkjunum en Bredandi þar
sem Baugur keypti nýverið leik-
fangakeðjuna Hamleys. Rekur hann
vandræðin með BUl’s Dollar Stores
tU reynsluleysis og óheppilegs vals á
samstarfsaðUum. - „Við erum að
selja eignir og gíra okkur niður," seg-
ir hann. „Ég held að áætlun okkar
verði að hverfa þaðan út fyrir lok
þessa árs.“
í höndum lánardrottna
Nefnd (Creditors committee)
fimm stærstu lánardrottna fyrir-
tækisins hefur að undanförnu
stjórnað Bonus Stores Inc., að sögn
eins talsmanna Baugs. Þar með
hafa lánardrottnar allt um það að
segja hvað verður um þessar 97
verslanir sem eftir eru.
í vor var fyrst lokað 25 verslunum
af 336 sem þá voru í gangi. Síðan var
einnig lokað 214 verslunum sem
hugmyndir voru þó um að selja.
Samningatilraunir lán-
ardrottna nú snúast um
að lágmarka tjón sitt og
reyna að fá nýja aðila
inn í leigusamninga sem
fyrir hendi eru.
Samningartilraunir lánardrottna
nú snúast um að lágmarka tjón sitt
og reyna að fá nýja aðila inn í leigu-
samninga sem fyrir hendi eru.
Reynt er að selja leigurétt á versl-
anahúsnæði og þann vörulager
sem fyrir hendi er, en með miklum
afslætti. Mun þar vera talað um allt
að 50% afslátt.
Fullyrt hefur verið af forsvars-
mönnum Baugs, síðast í frétt um
Bonus Stores í DV sl. mánudag, að
nægar tryggingar væru fyrir 40
milljóna dollara (um 3,2 milljarða
króna) birgðaláni frá Fleed Bank í
Boston. Það lán væri að fullu tryggt
með veði í vörubirgðum.
Þegar Bonus Stores fékk
greiðslustöðvun samkvæmt
„Chapter 11 of the Bankrupcy
Code,“ þá munu hafa staðið eftir af
þessu láni um 18 milljónir dollara.
Talsmaður Baugs taldi í samtali við
DV í gær að ef þau tilboð gengju
eftir sem nú séu í farvatninu þá
greiðist upp þessar 18 milljónir
dollara frá Fleed Bank. Eftir standa
kröfur annarra, m.a. birgja fyrir-
tækisins, sem tapa þá trúlega um
80 til 90% af sínum kröfum.
Fyrir skömmu var Hilco Real
Estate falið að koma eignum Bonus
Stores í verð. Sýndu nokkur fyrir-
tæki áhuga á að koma að málinu,
þar á meðal Duckwall-Alco, Variety
Wholesale, Dollar General, Family
Dollar og Freds. Viðræður hafa ver-
ið í gangi á milli lánardrottna og
Variety Wholesale um að það fyrir-
tæki taki yfir þessar 97 verslanir
ásamt dreifingarmiðstöð fyrirtæk-
isins sem lokað var fyrr í sumar. Bú-
ist var við formlegu tilboði þar um
næstkomandi þriðjudag. hkr@dv.is
Viðbrögð við skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna:
Ótrúleg dýfa Framsóknar
„Þetta er ótrúleg dýfa og veldur
mér vonbrigðum," sagði Guðni
Ágústsson, vara-
formaður Fram-
sóknarílokks, um
niðurstöður nýrr-
ar skoðanakönn-
unar DV á fylgi
stjórnmálaflokk-
anna. „Það sýnist
rólegt yfir pólitík-
inni núna og að
okkar mönnum gangi vel. Þetta
veldur mér því vonbrigðum.”
Heldur magurt
„Þetta er nú heldur magurt og ég
væri ekki sáttur við þetta ef þetta
væru úrslit í kosningum,” sagði
Steingrímur J. Sigfússon formaður
Vinstri hreyfing-
arinnar-græns
frctmboðs. „En við
höfum upplifað
miklar sviptingar
í skoðanakönn-
unum í okkar
stuttu sögu og
lært að taka þeim
með ró.
Það er dapur-
legt að sjá Sjálfstæðisflokkinn rjúka
svona upp. Þá sýnir könnunin hve
óverðskulduð útkoma Framsóknar
var í kosningunum, því þetta sýnir
hve veikur fylgisgrunnurinn er. Hjá
stjómarandstöðuflokkunum er
þetta innan skekkjumarka, en stóra
sveiflan hins vegar hjá ríkisstjómar-
flokkunum.”
Ánægjuleg niðurstaða
„Þetta er mjög
ánægjuleg niður-
staða fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og
innsiglar það
traust sem þjóðin
hefur á honum,“
sagði Einar K.
Guðfinnsson for-
maður þingflokks
Sjálfstæðisflokks-
ins. „Ég tel að þetta sé sönnun þess,
Steingrímur J.
Sigfússon.
Einar K.
Guðfinnsson.
að fólk vildi hafa flokkinn áfram í
stjómarforystu um landsmálin og
hefur jafnframt mikla trú á því að
hann muni koma því í verk sem
heitið var í kosningunum í vor. Þetta
er árétting á því að fólk kann að
meta þann góða árangur sem er að
koma ffarn í efnahagslífinu undir
traustri stjóm Sjálfstæðisflokksins.”
Athyglisverð sveifla
„Mér líst ekki vel á það ef við emm
að tapa fylgi í skoðanakönnun en ég
veit ekki hvað
veldur. Samfylk-
ingin hefur verið í
sviðsljósinu þessa
dagana og nýtur
þess, þótt þeir nái
ekki 30% múrn-
um, sem og Sjálf-
r ... . stæðisflokkurinn.
Kristjánsson. ES veit ekkl hvað
. veldur þessari
höfnun á Framsóknarflokknum en
þetta er athyglisverð sveifla, segir
Guðjón Amar Kristjánsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins.”
Fagnaðarefni
„Ég fagna þessu með Samfylking-
una en við emm að uppskera í sam-
ræmi við ábyrga stjómarandstöðu í
allt sumar. Niður-
staða Ingibjargar
Sólrúnar í for-
ystumálum hefur
líka sitt að segja.
Það hefúr hvert
málið af fætur
öðm verið að
koma upp að
undanfömu, alls
konar spillingar-
mál, eins og
mannaráðningar, samráð olíufélag-
anna og það er verið að svíkja kosn-
ingaloforð eins og með Héðinsfjarð-
argöngin og lfnuívilnun.” segir Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir þing-
maður Samfylkingar.
-GG/-JSS
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir.
H