Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Side 16
16 Magasín Fimmtudagur 18. september 2003 Fræga fólkið Salma Hayek leitar að þeim rétta Leikkonan fagra, Salma Hayek, segist enn vera ólofuð vegna þess að hún hafi ekki enn fundið mann sem sé meiri harðjaxl en hún. Salma, sem er þrjátíu og sjö ára og leikur eitt af aðalhlutverkunum í mynd- inni Once Upon a Time in Mexico, sem nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir, sagði í blaðaviðtali fyrir skömmu að hana langaði til að stofna fjölskyldu og eignast böm en að hún hefði bara ekki fundið rétta manninn. „Mamma sagði alltaf að ef ég ætl- aði að gifta mig þá yrði ég að finna mann sem væri mikill harðjaxl og ég hef bara ekki hitt hann enn." Leik- konan segist reyndar hafa verið komin nærri því að gifta sig fjórum sinnum. „Það er samt ótrúlegt hvað karlmenn geta verið veikgeðja og miklir aular. Þeir þykjast bara vera töff vegna þess að þeir eru svo brot- hættir að innan. Karlmenn eru hræddir við að sýna tilfinningar og þess vegna byggja þeir í kringum sig vegg til að þurfa ekki að kljást við þær." Salma er þessa stundina að „deita" Hulk-leikarann Josh Lucas og segir að hann sé bæði karl í krap- inu og nái að tengjast sínum kven- legu eiginleikum. Nýtt veitinga og kaffihús Hádegistilboð: íslenskur matur Snakk réttir - Léttir réttir Klassískir réttir - Rómantfk og skeljar Heitt súkkulaði - Kaffi - Kökur - Smurt brauð - mm EN RICO'S Laugavegi 3 Sími: 552-0077 Opið 11.30-22.30 föstud. /laugard. 11.30 til 23.30 Undur veraldar Tvö hlutverk Johnny Depp hafði svo gaman af því að vinna að gerð myndarinnar Once upon a Time in Mexico að hann bað leikstjórann um að fá að leika annað hlutverk til viðbótar. Leikstjórinn, Robert Rod- riguez, er þekktur fyrir að taka myndir sínar á stuttum tíma. Það tók Depp aðeins átta daga að ljúka við sitt hlutverk í myndinni og hafði hann aldrei verið jafn fljótur. Hann var ekki á því að fara heim strax og spurði því leik- stjórann hvort hann gæti ekld fengið hlutverk í viðbót. Eftir að hafa talað saman komst Depp að því að enn hafði ekki verið valinn leikari í hlutverk prestsins í myndinni. Depp sómdi sér vel í því. Stjörnu- parið sundrað Sambandi stjörnuparsins Jennifer Lopez og Bens Af- flecks er lokið. Ben sást um síðustu helgi með dularfullri döldchærðri stúlku í miðborg Las Vegas. Á sama tíma sást Jennifer á sundi við strönd Miami. Heyrst hafði að þau hygðust halda brúðkaup sitt um sl. helgi. Að sögn vinanna þeirra hef- ur parið færst í sundur eftir að myndin Gigli, sem skartar parinu í aðafhlutverki, hafði heldur betur floppað í kvik- myndahúsum í Bandaríkjun- um. Myndin og leikararnir fengu lélega dóma og var myndin illa sótt. Ráðist á erótíska síma- dömu Kona sem ljær erótískri símaþjónustu í Rúmeníu rödd sína lenti í því að einn af fastakúnnum línunnar þekkti rödd hennar þegar hún var í verslunarleiðangri. Konan segist hafa unnið fyrir þjón- ustuna í nokkur ár og aldrei lent f vandræðum áður. Hún sagðist í samtali við rúmenskt dagblað ekki vera falleg kona og annar fóturinn sé mun styttri en hinn. „Fyrir vikið hef ég átt erfitt með að fá vinnu. Loksins fann ég þetta því að ég hef rödd sem kveikir í karlmönnum. í vinnunni vita viðskiptavinir ekki hvernig ég lít út. Þeir gera kannski ráð fyrir því að hin fullkomna kona sé á hinum enda línunnar." Maðurinn sem réðst á kon- una var einn af fastakúnnum línunnar og spurði ávallt um hana þegar hann hringdi. Hann þekkti hins vegar rödd hennar í stórmarkaðinum. Hann sagði að sér hefði brugðið, fundist hann svikinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.