Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Fagnaðaralda fór um heimsbyggðina í gær þegar fregnir bárust af því að Saddam
Hussein hefði verið handtekinn níu mánuðum eftir að Bandaríkjamenn hófu
sprengjuárásir á írak. Saddam hafði örlög Gísla Sigurðssonar læknis í hendi sér fyrir
rúmum áratug. Jóhanna Kristjónsdóttir fékk hann lausan og talaði við Saddam sjálfan
sem var ánægður með að geta glatt Islendinga.
Dreninn
Fréttin um að Saddam Hussein, fyrr-
verandi forseti íraks, væri tekinn hönd-
um flaug um heimsbyggðina í gærmorg-
un. Hann fannst í holu nálægt heimabæ
sínum, Tikrit. DNA-rannsókn staðfesti
að umræddur maður væri Saddam
Hussein. í hádeginu í gær héldu Banda-
ríkjamenn svo blaðamannafund og Paul
Bremer, landstjóri í írak, tilkynnti heim-
inum að Saddam hefði náðst með orð-
unum, „we got him“.
Atburðarásin hófst á laugardaginn
þegar bandarískum sérsveitarmönnum
bárust upplýsingar um hvar Saddam
héldi sig. Hann var f felum á sveitabýli í
bænum Adwar sem er í nágrenni Tikrit.
Talið er að hofan sé einn af 20 - 30 felu-
stöðum sem Saddam hefur flakkað á
milli síðan stríðinu lauk. Handtakan átti
sér stað klukkan hálf níu á laugardags-
kvöldið og veitti Saddam enga mót-
spyrnu. A myndum sem bárust af
Saddam sást hann alskeggjaður og
nokkuð tekinn. í felustaðnum fundust
tveir AK-47 rifflar, ein skambyssa og
750.000 dollarar.
249 dagar eru fiðnir frá því Íraksstríð-
ið hófst þann 20. mars 2003. Þá var gerð
árás á hugsanlegan verustað Saddams
án árangurs. Þann 7. apríl var aftur gerð
tilraun til að ráða hann af dögum en
Saddam slapp. Fátt gerðist þar til Uday
og Qusay voru drepnir þann 22. júlí í
byssubardaga í bænum Mosul. Sú árás
kveikti von í brjósti bandamanna um að
handtaka Saddams væri á næsta leiti en
Fögnuður í frak Landsmenn loksins lausir við
skugga einræðisherrans.
þrátt fyrir 25 milljón dafa fundarlaun
fannst hann ekki. Það var eins og jörðin
hefði gleypt hann. Sem segja má að hún
hafi gert, miðað við felustað hans.
Talið er að Saddam bíði dauðadóm-
ur ef réttað verði yfir honum í Irak.
Helstu leiðtogar heims fögnuðu hand-
töku Saddams í gær. Hún þykir marka
tímamót í átökunum f írak.
Hola Saddams Einræðisherrann var
dreginn úr greni slnu fúiskeggjaður og
minnti meira á umrenning en
stórhættulegan harðstjóra.
Saddam var í símanum
ánægður með það. Ifann talaði
frönsku sem er ekki mín sterkasta
hlið þannig að samtalið varð stutt."
Tilefni samtals þeirra var að Jó-
hanna hafði verið tengiliður við
írösk stjórnvöld til að liðka fyrir því
að Gísli yrði leystur úr haldi en
hann var tekinn í gíslingu haustið
1990 eftir innrás fraka í Kúveit. jó-
hanna hafði fengið þau skilaboð frá
æðstu mönnum í írak um að hann
yrði að komast til Bagdad frá Kúveit
og að mál hans yrði athugað þar.
„írakar vildu fá einhvern íslenskan
tengilið og ég var eini íslendingur-
inn sem þeir þekktu þannig að ég
fór með bréf til Saddams Husseins
sem vinur minn kom til hans. Það
skilaði sér og Saddam hafði milli-
göngu um það að Gísla yrði sleppt."
Áttu sameiginlegan vin
Jóhanna fór og hitti vin sinn
Harnid Said, sem var ljóðskáld og
ritstjóri stærsta dagblaðsins í Irak,
A1 Þára, og ætláði að koma þökkum
_—á framfæri
frösk kona með börnin flokksstarfi
sín Jóhanna tók myndina Baath-flokks-
ÍBagdad 1996.Börnin dóu jns 0g hann
bæði úr næringarskorti. tjáði mér að
Jiann hefði
trúnað Saddains," segir Jóhanna.
„Hann hringdi og rétti mér svo sím-
ann. Þá heyrði ég þessa grófu rödd
sem ég man enn þann dag í dag.“
Hamid, vinur Jóhönnu, féll í
ónáð hjá Saddam og var síðast í
fangelsi þegar hún frétti af honum.
„Hann hafði einliverjar aðrar skoð-
anir en Saddam Hussein og var
stungið inn en þegar ég kom til
íraks 1996 tókst mér að hafa sam-
band við hann, en nú veit ég ekki
hvemig hann hefur það,“ segir hún.
írakar klárir náungar
Jóhanna telur að handtaka
Saddams sé mikill áfangi þótt hún
verði ekki endilega til þess að allt
falli í ljúfa löð. „Þetta dregur mátt úr
Baath-flokks mönnum sem hafa
reynst tryggir Saddam. Það verður
samt ekki hlaupið að því að koma á
lýðræði í frak. Þetta er fólk sem hef-
ur mátt búa við harðstjórn og þekk-
ir ekki lýðræði, en írakar em klárir
náungar," segir hún.
Hún talaði við vini sína í Irak
þegar fréttirnar bámst af handtöku
Saddams í gær. „Nú em allir að
dansa en hvað gerist þegar dansin-
um lýkur? Þau segja að sorp sé ekki
hreinsað og þau fái rafmagn í
klukkutíma á dag og ekkert hreint
Jóhanna Kristjónsdóttir „Þá heyröi ég þessa grófu rödd."
„Hann var ánægður með að hafa
getað glatt íslendinga," segir Jó-
hanna Kristjónsdóttir blaðamaður
sem talaði við Saddam Hussein í
síma í desember 1990. „Ég þakkaði
honum kærlega fyrir afskipti hans
af því að Gísla Sigurðssyni lækni
yrði leyft að fara heim frá Bagdad og
að íslendingar væru ánægðir með
þá niðurstöðu. Hann sagðist vera