Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Page 10
7 0 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Vítisengill ís-
lands kærður
Jón Trausti Lútherson,
sem hefur ásamt félögum
sínum í mótorhjólaklúbbn-
um Fáfni sótt um inngöngu
í Hells Angels, var um helg-
ina kærður fyrir lfkamsárás.
Meint líkamsárás átti sér
stað aðfaranótt sunnudags.
Hún var að sögn fórnar-
lambsins gjörsamlega til-
efnislaus en Jón Trausti
vildi ekki tjá sig um málið
þegar DV hafði samband
við hann.
Áað hafa
lamið Snigil
Atvikið
sem um
ræðir
átti sér
stað á
skemmti-
staðnum
Amsterdam,
aðfaranótt sunnudagsins
en þetta kvöld höfðu Snigl-
arnir haldið árlegt jólaball í
Brautarholti. Þegar ballinu
lauk fóru nokkrir Sniglar á
Amsterdam. Þar virðist
hafa soðið upp úr á milli
Jóns Trausta og eins
Snigils. Þeim átökum lauk
með því að Snigillinn sat
eftir nefbrotin. Honum var
komið beint á bráðamót-
töku Landsspítalans þar
sem hann hlaut aðhlynn-
ingu. Umræddur Snigill
vildi ekki láta nafn síns get-
ið af ótta við hefndarað-
gerðir.
Uppþotá
Leifsstöð
Þetta er í annað skiptið
sömu helgina sem Jón
Trausti lætur til sín taka. Á
föstudaginn kom hann
ásamt félögum úr Hells
Angels í Noregi til Islands.
Við komuna til landssins
neitaði hann að sýna vega-
bréfið sitt og hrækti á lög-
reglumann. Það kom til
handalögmála og þegar
lögreglan ætlaði að hand-
taka Jón Trausta réðst hann
á lögreglumann sem nef-
brotnaði og var fluttur á
spítala með höfuðkvalir.
Segja sig
úrFáfni
Ekki er vitað hvort árás-
in á Snigilinn tengist átök-
um milli íslenskra mótor-
hjólagengja. Samkvæmt
heimildum DV hafa fjöl-
margir sagt sig úr Fáftii eftir
að þeir sóttu um inngöngu
í Hells Angels. Búist er við
tilkynningu frá Sniglunum
um málið á næstunni.
Hells Angels og Bandidos stýra glæpaheiminum á Norðurlöndunum og víðar í Evr-
ópu. Samtökin hafa sýnt tilburði til að starfa á íslandi og klúbbar hafa sýnt áhuga
á að byggja upp starfsemi hér. Yfirmaður flkniefnadreifingar Hells Angels í Norður-
Evrópu hefur komið til íslands. Lögregla og tollayfirvöld vinna náið með erlendum
kollegum til að koma í veg fyrir að samtökin skjóti rótum hér á landi. Lögreglu-
maður, sem hefur fylgst náið með Vítisenglum, segir að engin vettlingatök dugi.
Yfirmaður fíkniefna-
dreifingar Heljs
flngels var á Islandi
„Það má ekki sýna þessum mönnum neina lin-
kind,“ segir lögreglumaður hjá embætti Ríkislög-
reglustjóra sem hefur sérhæft sig í málefnum Vít-
isengla. „Það þarf að passa upp á að þessi samtök
nái ekki að skjóta rótum hér á landi." Það er sam-
hljóða álit þeirra þeirra sem DV ræddi við og
þekkja til Hells Angels að það sem ráðgjafar frá
hinum Norðurlöndunum hafi sagt við Islending-
ana: „Ekki gera sömu mistök og við. Það eina sem
dugir er „zero tolerance“.“
Heimildir DV herma að svo mikill sé áhugi Vít-
isengla á að komast að á íslenskum glæpamarkaði
að fyrir fáeinum misserum hafi yfirmað-
ur allrar fíkniefnadreifingar Hells Angels í
Norður-Evrópu komið til íslands. Þetta er
maður sein er til á skrám lögreglu og ger-
ir út frá Hollandi þar sem miðstöð fíkni-
efnadreifingar er í Evrópu.
DV hefur heimildir fýrir því að glerið í
móttökusal í Leifsstöð þar sem hægt var
að fylgjast með farþegum áður en þeir
fóru í gegnum tollinn hafi fyrst verið
skyggt vegna ábendinga um að fýrsta
stórsendingin af fíkniefnum væri á leið-
inni frá Hells Angels. Vísbendingar voru
það óljósar að gripið var til þess ráðs að
skyggja glerið strax. „Ekkert fannst í það
skiptið en skömmu síðar náði tollgæslan
í Leifsstöð fimm kílóum af hassi af komu-
farþega og bendir allt til þess að það hafi
verið sending frá Hells Angels.
„Við vitum að Hells Angels hafa áhuga
á að hasla sér vöU hér á landi, það hefur
verið ljóst í nokkur ár, og við vitum af því
að það eru klúbbar hér á landi sem vilja
tengjast þeim," segir heimildarmaður hjá
lögreglu. Hann segir mikilvægt að allir
vinni saman hér á landi, lögregla, tollayf-
irvöld, sveitarfélög og aðrir þeir sem búa
yfir upplýsingum og geta gripið til að-
gerða.
Oft komið til íslands
Níu norskum meðlimum HeUs Angels
var snúið við í Leifsstöð á föstudag og
flogið til baka tU Noregs. Þeir eru aUir á
sakaskrá og margir með alvarleg brot á
bakinu, ofbeldisbrot, ólöglegan vopna-
burð og fíkniefnamisferli. Flestir eru þeir
langt komnir í því ferli að gerast fuUgildir
Ekki gera sömu mistök og við.
Það eina sem dugir er„zero
tolerance
meðlimum Fáfnis. Fáfnir hefur sótt um inngöngu
í Hells Angels og það hefur komið fram í vitna-
leiðslum yfir HeUs Angels-liðum í Danmörku. Þeir
sem koma hingað til lands frá samökunum eru yf-
irleitt Danir eða Norðmenn. Þegar Hells Angels
komu til Islands í febrúar 2002, hélt Brynjólfur Þór
Jónsson, talsmaður Fáfnis, því fram að
þeir væru komnir tfl að sjá GuUfoss og
Geysi, fara í Bláa lónið, skoða Perluna og
fara á Langjökul með Ævintýraferðum.
Þetta eru svipaðar skýringar og Vítiserigl-
arnir gáfu í Leifsstöð á föstudag. Brynjólf-
ur var annar þeirra sem var með Norð-
mönnunum í Leifsstöð. ITann sagði við
DV í fyrra að liðsmenn Fáfnis hefðu átt í
samskiptum við Hells Angels í Danmörku
og ættu þar marga góða vini.
Þekktir fyrir glæpi
Frásagnir Brynjólfs og Norðmannanna
um tilgang ferðanna stangast á við kenn-
ingar lögreglu á íslandi og víðar á Norður-
löndum en félagar í HeUs Angels eru fyrst
og fremst þekktir fyrir morð, fjárplógs-
starfsemi, fíkniefnasölu og það að þeir
keyra um á mótorhjólum. Lögreglumað-
urinn segir mikflvægt að rugla ekki saman
þeim vélhjólaklúbbum þar sem meðlimir
hafa fyrst og fremst áhuga á að aka um á
mótorhjólum og þeim sem tilheyra einu
prósenti þessara klúbba, þar sem stunduð
er skipulögð glæpastarfsemi. Skilyrði fyrir
inngöngu í HeUs Angels og Bandidos er að
eiga Harley Davidson mótorhjól.
Allt bendir til þess að Vítisenglar ætli
að standa við það sem þeir hótuðu þegar
þeim fyrstu var vísað úr landi. Þá sögðu
meðlimirnir við lögregluna: „Þið munuð
aldrei stoppa okkur - við komum aftur, og
aftur og aftur og aftur." Jóhann R. Bene-
diktsson sýslumaður á Keflavíkurflugvelli
sagði við DV á föstudag að þar væru menn
tUbúnir að mæta englunum um hverja
helgi ef það þyrfti. kgb@dv.is
meðlimir í Hells Angels. Með þeim í för voru tveir
íslendingar sem tengjast vélhjólaklúbbnum Fáfni,
vélhjólaklúbbi sem starfar í Hafnarfirði en var
áður í Grindavík. Þeir voru í jökkum merktum
„support group 81“ er hægt að lesa f þá stafi með
því að áttundi stafur staffófsins sé H og sá fyrsti sé
A. Annar íslendinganna, Jón Trausti Lúthersson
var handtekinn eftir að hafa ráðist á lögreglu-
menn og hrækt að sýslumanninum á Keflavíkur-
flugvelli.
Meðlimir Hells Angels hafa sést hér á landi
nokkrum sinnum áður og í síðustu tvö skipti með
Lögregla tekur á Hells Angels. Öllum Norðmönnunum niusem stöðvaðir voru
I Leifsstöð var visað úr landi. Þeir voru allir á sakaskrá og iangt komnir I þvi að
verða fullgildir meðlimir f Hells Angels.
Mistök að grípa ekki strax til aðgerða
Ríkislögreglustjórinn á Islandi
starfar náið með Interpol, Europol
og öðrum ríkislögreglustjórum á
Norðurlöndunum. Samvinnan felst
meðal annars í því að miðla upplýs-
ingum um félaga í alþjóðlegum
mótorhjólagengjum, einkum Vít-
isenglum og Bandidos.
Lögreglumaðurinn sem DV
ræddi við sagði að þau mistök hefðu
verið gerð víða að reyna ekki strax í
upphafi að koma í veg fyrir að mót-
orhjólagengi næðu fótfestu. Margir
innan lögreglu hafi ekki talið það
skipta máli þótt nokkrir mótorhjóla-
menn stofni með sér klúbb og fái í
heimsókn félaga í alþjóðlegum mót-
orhjólagengjum. Hins vegar hafi
reynslan leitt í ljós annars staðar að
það gerist að skyndilega verði til Vít-
isengladeild sem hafi leitt til þess að
lögreglan þurfi að fást við mun fleiri
og alvarlegri brot en áður. Þetta hef-
ur legið til grundvallar þeirri ákvörð-
un íslenskra stjórnvalda að stöðva
sem fyrst þá sem hugsanlega ætla að
koma hingað til að setja upp starf-
semi Hells Angels hér á landi.
í upplýsingum frá lögreglunni
kemur ffarn að hún geti ekki ein
komið í veg fyrir að alþjóðleg mótor-
hjólagengi nái fótfestu hér á landi.
Suðningur almennings skipti miklu
máli og þess vegna fagnar lögreglan
því að Sniglarnir hafi tekið harða af-
stöðu gegn Vítisenglum.
Leifsstöð á föstudag Tveir Islendingar
fylgdu norsku vítisenglunum merktir
samtökunum. Support 81 = stuðningur við H
A (áttunda og fyrsta staf stafrófsins)