Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Page 12
12 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Aðstöðuleysi
á Keflavíkur-
flugvelli
„Því er ekki að neita að
það er mikið púsl að koma
þessu heim og saman,"
segir Óskar Þórmundsson,
yfirlögregluþjónn á Kefla-
víkurflugvelli. Mjög þrengir
að lögreglu vegna þess
mikla fjölda fólks sem ann-
aðhvort sækir um hæli hér
á landi eða hefur verið
stöðvað fyrir brot af ein-
hverju tagi f flugstöðinni.
Lögreglan hefur hvorki
fangageymslur né aðrar
vistarverur upp á að bjóða
þann tíma sem það getur
tekið að fá niðurstöðu í mál
fólksins.
„Aðstaðan hér á vellin-
um er engin og margir
orðnir langþreyttir eftir
stjórnsýsluhúsi því sent
staðið hefur til að byggja,“
segir Óskar.
Lyfjaverk-
smiðja við
Húsavík
Byrjað verður að reisa
lyfjaverksmiðju á Húsavfk á
næsta ári, að því er At-
vinnuþróunarfélag Þingey-
inga greinir frá. Fyrirtækið
Glucomed AS frá Hauga-
sundi í Noregi hyggst fram-
leiða þar lyflð glucosamine
úr rækjuskel; lyf sem styrkir
brjósk og bandvefi líkam-
ans. Kjöraðstæður eru á
Húsavík til að vinna lyfið,
en Norðmennirnir ætla að
beita nýrri aðferð sem
sparar 15 til 20 prósent
vinnslukostnaðar. Fram-
leiðslan krefst 120 stiga
heits vatns og 4 stiga mjög
hreins vatns. Fyrirtækið
hefur þegar gert samning
við Orkuveitu Húsavíkur
um kaup á vatni. Gert er
ráð fyrir að verksmiðjan
verði tilbúin að fullu 2007
og þá starfí 20 manns við
að vinna lyf úr rækjuskel á
Húsavík.
Björn Bjarnason segir barnalegt að halda að Qármagnsleysi hamli því að hægt
sé að fylla þær 30 stöður sem heimild er fyrir hjá lögreglunni í Reykjavík.
FJðrskortur ekki
undirrðt vanda
lönreglunnaR
mikið þakklæti til nýútskrifaðra lögreglumanna.
Kvað hann þakkarvert að lögreglumennirnir
hefðu áhuga á að leggja sitt af ntörkum til að
gera íslenskt þjóðlíf öruggara en það væri.
Hann gat þess ekki að einhver hluti hópsins
sem útskrifaðist fær ekki tækifæri til þess, þar
sem engir peningar eru til hjá stærstu emb-
ættunum til að ráða nýja lögreglumenn.
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík,
svaraði ekki skilaboðum blaðamanns.
albert@dv.is
að
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráð-
herra, vísar því alfarið á bug að fjárskortur sé
undirrót vanda lögreglunnar í landinu og segir
barnalegt að halda slíku fram. Þetta kemur fram
í svari Björns við fyrirspum blaðamanns DV.
I ræðu sem Björn hélt við útskrift í Lögreglu-
skólanum kom fram að löggæsla yrði efld inn-
an tíðar og vísaði til verkefnisstjórnar sem
hann hefur sett á laggirnar til að koma
með tillögur um framtíðarskipulag og
móta löggæsluáætlun til
næstu ára. Verkefnis-
stjórnin, sem í sitja
Stefán Eggertsson skrif-
stofustjóri, Ragnheiður
Ríkharðsdóttir bæjar-
stjóri og Skúli Magnús-
son, dósent við Háskóla
íslands, var kynnt þann
11. nóvember og hefur
hist einu sinni hingað
til.
„Við fengum á
fyrsta fundinum talsvert af
skýrslum sem okkur var gert
kynna okkur og sú vinna er í gangi,“
segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir. „Það
mun líða ákveðinn tími áður en bera fer á
tillögum frá hópnum.“
Sú efling löggæslu í Reykjavík sem Björn talar
um, mun því taka talsverðan tíma þrátt fyrir að
íbúar og löggæslumenn sjálfir telji brýnt að úr-
lausn fáist hið fyrsta.
í ræðu Björns við útskriftina kom einnig fram
Svínabú
yfirtekið
Rekstrarfélagið Braut
ehf., sem er í eigu Kaup-
þings Búnaðarbanka, hefur
tekið yfir rekstur Svínabús-
ins í Brautarholti. í
tilkynningu frá
bankanum segir að
þessi ráðstöfun sé
hluti af samkomu-
lagi um uppgjör á
skuldum svínabús-
ins við bankann.
Með því að haida rekstrin-
um áfram er þess freistað
að hámarka verðmæti
þeirra eigna svínabúsins
sem veðsettar eru bankan-
um. Stjórnarmaður og
framkvæmdastjóri Rekstr-
arfélagsins Brautar ehf. er
Jakob Bjarnason. Bankinn
segir aðrar breytingar í
starfsmannahaldi ekki fyr-
irhugaðar.
Erfiðustu einstaklingar sendir úr landi
Tryggingastofnun borgar. Umerað
ræða einstaklinga sem þjást afgeðrænum
kvillum auk lyfja- eða áfengisvanda.
Fjórir í áfengis- og
lyfjameðferð erlendis
„Þetta eru vissulega fleiri tilvik en
venja er,“ segir Sigurður Tltorlacius,
tryggingayfirlæknir á Tryggingastofn-
un. Nefnd innan stofnunarinnar
sendi ijóra íslendinga utan á síðasta
ári vegna meðferðar við lyfja- og
áfengismisnotkun. Kostnaður samfé-
lagsins vegna þessa var 20 milljónir
króna.
„Þarna er um að ræða einstaklinga
sem stofnanir hérlendis ráða ekki við.
Enginn er sendur utan nema brýna
nauðsyn beri til og í þessum tilfellum
var um meira að ræða en eingöngu
áfengis- eða lyfjavanda. Miklir geð-
rænir kvillar koma þama einnig við
sögu."
Sigurður segir að í meðalári sé
þessi fjöldi einn til tveir á ári og
haldi þeim áfram að
fjölga sé ein-
sýnt að nota
beri féð til að
byggja upp með
ferðarúrræði hérlendis.
Kostnaður Trygginga-
stofnunar vegna læknisaðgerða
erlendis árið 2002 nam alls 444 millj-
ónum króna. Um 53 einstaklinga var
að ræða sem leituðu sér læknisað-
stoðar út fyrir landsteinana en þar af
voru 22 börn.
Mestur kostnaðurinn var vegna
aðgerða í tengslum við hjartasjúk-
dóma, alls 194 milljónir, og 144 millj-
ónir fóru til líffæra- og beinmergsí-
græðslna.