Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Side 26
26 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003
Sport DV
.5»
Boca vann í
vítakeppni
Argentínska liðið Boca
Juniors bar sigur úr býtum í
Álfukeppni félagsliða í gær
en liðið vann Evrópu-
meistara AC Milan í úrslita-
leik í Japan. Úrslitin réðust
í vítaspyrnukeppni eftir að
staðan hafði verið 1-1 eftir
venjulegan leiktíma og
framlengingu. Danski
framherjinn Jon Dahl
Tomasson skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir AC
Milan eftir 24 mínútur en
Boca Juniors jafnaði metin
fimm mínútum síðar og var
þar að verki Matias
Donnet. Þessi sigur Boca
var kærkominn en liðið
tapaði fyrir Bayern
Múnchen í sama leik fyrir
tveimur árum.
Matthaus
tekurvið
Ungverjum
Þjóðverjinn Lothar
Matthaus hefúr verið
ráðinn landsliðsþjálfari
Ungverja, sem eru með
íslendingum í riðli í
undankeppni HM 2006.
Matthaus sagði starfi sínu
sem þjálfari serbneska
liðsins Partizan Belgrad
lausu fyrir helgi og var nær
samstundis ráðinn til að
taka við ungverka lands-
liðinu. Matthaus er í
tygjum við ungverska konu
og hyggst flytja til Búda-
pest. Hann skrifaði undir
tveggja ára samning við
ungverska knattspyrnu-
sambandið og vonast til að
koma liðinu á HM.
Paliostrúir
að Eriksson
verði áfram
Mark Palios, fram-
kvæmdastjóri enska knatt-
spyrnusambandsins, trúir
því að Svíinn Sven Göran
Eriksson muni skrifa undir
nýjan samning um að þjálfa
enska landsliðið fram til
ársins 2008 eins og sam-
bandið hefur boðið honum.
Fréttir þess efnis að honum
hefði verið boðinn nýr
samningur láku í blöðin og
mislíkaði Eriksson það.
Palios telur hins vegar að
það muni ekki hafa áhrif á
endanlega ákvörðun Svíans.
Fyrstu verðlaun íslendinga á EM í sundi í Dublin litu dagsins ljós í gær
í 100 metra baksundi
Örn Amarson hafnaði í öðru
sæti í 100 metra baksundi á
Evrópumeistaramótinu í 25 metra
laug í Dublin á írlandi í gær og náði
þar með að koma í veg fyrir að hann
færi tómhentur heim af mótinu.
öm synti á tímanum 51,74
sekúndum og setti íslands- og
Norðurlandamet en hann bætti sig
um 17/100 úr sekúndu. Örn var
rúmri sekúndu á eftir Þjóðverjanum
Thomasi Rupprath sem hefur borið
höfuð og herðar yfir aðra
baksundsmenn á þessu móti.
Uppskera Arnar á þessu móti er
ívið rýrari en undanfarin ár en hann
náði þó að tvíbæta íslandsmetið í 50
metra baksundi, jafna og bæta
Norðurlandametið í sömu grein og
setja síðan íslands- og Norður-
landamet í 100 metra baksundi í
gær.
Er á réttri leið
Steindór Gunnarsson landsliðs-
þjálfari var mjög sáttur við
frammistöðu Arnar á mótinu þegar
DV Sport ræddi við hann í gær.
„Eg er mjög ánægður með örn og
það er ekki hægt að segja annað en
að hann sé á réttri leið. Hann synti á
betri tíma í 200 metra baksundi
núna heldur en þegar hann vann í
fyrra og setti íslands- og
Norðurlandamet í 50 og 100 metra
baksundi. Það vantaði ekki mikið
upp á að hann tæki heims-
meistarann í 100 metra baksundi í
dag og ég er klár á þyí að hann hefði
unnið ef sundið hefði verið fimm
metrum lengra. Hann er að bæta sig
mikið í stuttu vegalengdunum enda
höfum við unnið í þeim að
undanförnu. Vonbrigðin eftir HM
eru á bak og burt eftir þetta og nú
stefnum við af krafti á
ólympíuleikana," sagði Steindór um
Örn Arnarson.
Misjafnt hjá öðrum
Spurður hvort hann væri sáttur
við árangur annarra keppenda
íslenska liðsins á mótinu svaraði
Steindór því til að hann vildi alltaf
meira.
„Sumir voru að bæta sig en aðrir
ekki og það er yfirleitt raunin á
svona mótum. Ég hefði viljað sjá
Jakob Jóhann fara lengra en það
hafa orðið gífurlegar framfarir hjá
öllum þjóðum frá því í fyrra og því er
við ramman reip að draga. Hann
synti á 3/100 lakari tíma í ár en í
fyrra en þá var hann annar inn í
úrslitin Nú dugði það aðeins til
fjórtánda sætis. Annars fer þetta mót
í reynslubankann hjá krökkunum og
síðan þarf að vinna úr því.“ oskar@dv.is
Henry verður ekki setdur Arsenal ætiar ekki að seija Thierry Henry, sama hvað boðið verður
í hann.
Arsenal vill ekki selja Thierry Henry
Höfnuðu 50 milljóna
punda tilboði Chelsea
Arsenal hefur hafnað 50 milljóna
punda tilboði Chelsea í franska
framherjann Thierry Henry.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum
mætti rússneski milljarða-
mæringurinn Roman Abramovich,
eigandi Chelsea, á Highbury í
síðustu viku og afhenti tilboðið
formlega.
David Dein, stjórnarformaður
Arsenals, staðfesti þetta en sagði
jafnframt að Henry væri ekki til sölu.
- sama hvað boðið væri í hann.
Enginn líkur Henry
„Hann er ekki til sölu og það
skiptir engu máli hversu há upphæð
er boðin í hann. Peningar koma
einungis að gagni ef það er hægt að
kaupa leikmann sem er janfgóður og
Thierry en það er enginn honum
lfkur til í knattspyrnuheiminum.
Hann er sá besti og það er ekki hægt
að finna staðgengil fyrir hann. Ef við
seldum hann myndum við veikja
liðið okkar, styrkja andstæðinga og
eyðileggja andann hjá knattspyrnu-
stjóranum, þjálfurunum og leik-
mönnum liðsins," sagði Dein.
Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenals, tók í sama
streng.
„Markmið okkar er ekki að eiga
fullt af peningum í banka heldur
góða leikmenn á vellinum. Ef félag á
mikið af peningum en lítið af góðum
leikmönnum koma þeir að litlu
gagni. Stuðningsmenn okkar
myndu aldrei skilja það ef við
seldum okkar besta leikmann og
það myndi sýna að við hefðum ekki
metnað til að ná árangri," sagði
Wenger.
oskar@dv.is
*