Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Page 29
29 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003
Fóír^
Þjóðleikhúsið frumsýnir í vor nýtt íslenskt leikrit byggt á ævi Edith Piaf. Aðalhlutverkið verður í hc
um Brynhildar Guðjónsdóttur, sem er sláandi lík henni í útliti en hefur blessunarlega átt betri ævi e—
hún. Brynhildur fór á slóðir Piaf.
húsið frumsýnir nýtt íslenskt leikrit
í vor, byggt á ævi spörfuglsins, eins
og hún var stundum kölluð. Sig-
urður Pálsson vinnur nú að hand-
riti verksins, en aðalhlutverkið
verður í höndum Brynhildar Guð-
jónsdóttur. Leikstjóri er Hilmar
Jónsson, en Jóhann G. Jóhanns-
son verður tónlistarstjóri.
Brynhildur fór í haust ásamt Sig-
urði á slóðir þessarar dáðu söng-
konu. Þá stóð yfir sýning í París í til-
efni af 40 ára ártíð hennar. „Það var
svo gott að gefa sér tíma til að horfa,
hlusta og finna andrúmsloftið sem
tengist þessari stórfenglegu konu,“
segir Brynhildur. Hún segist þó ekki
hafa fundið neina sérstaka nálægð
viðhana. „Hún talaði ekki til mín og
sagði mér hvernig ég ætti að leika
hana, ef það er það sem þú átt við,“
segir hún og hlær. „Ég er frekar jarð-
bundin manneskja," bætir hún við.
Brynhildur er sláandi lík söngkon-
unni. „Jú, mér finnst ég vera lík
henni í útliti, en blessunarlega hef
ég lifað betra lífi en ltún. Ég veit ekki
alveg enn þá hvernig ég mun nálg-
ast þessa persónu. Ég hef fyrst og
fremst áhuga á að finna manneskj-
una í henni, ekki klisjuna eða stjór-
stjörnuna. Hvað var það sem gerði
það að verkum að allir vildu sjá
hana og heyra í henni? Það var eitt-
Á slóðum Piaf í París Brynhilduren lOcm
hærri en Edith Piafvar, og gæti passað i fötin
hennará myndinni.
„Edith Piafvarmikið partídýr
og það hefði sko ekki verið
leiðinlegt að vera í partíum
Þúsundir koma á ári hverju að
leiði Edith Piaf í Pere Lachaise
kirkjugarðinum í París, þar sem
hún hefur hvílt í þau 40 ár sem lið-
in eru síðan hún lést. Ævi hennar
var þyrnum stráð og átakamikil, en
um leið hetjusaga konu sem reis
upp úr öskustó fátæktarinnar og
varð ein af þessum ógleymanlegu
röddum 20. aldarinnar. Þjóðleik-
Edith Piaf Ævi hennarvarþyrnum stráð og átakamikil, en um leið i
konu sem reis upp úr öskustó fátæktarinnar.
hvert ljós innra með henni. Það er
auðvitað útilokað að túlkun mín á
henni verði nákvæmlega eins og
hún var, það er ekki hægt en ég hef
áhuga á að finna einhverja náttúru-
lega og fallega leið til að finna þessa
manneskju. Þetta er nýtt íslenskt
leikrit sem við erum að fara að fást
við og við byrjum því á núllpunkti
hvað verkið og túlkunina varðar."
Edith Piaf er sögð hafa fæðst á
götum Parísarborgar; mamma
hennar var kabarettsöngkona og
fyllibytta en pabbinn götulista-
rnaður. Hún ólst upp hjá ömmum
sínum, en önnur þeirra vann á
vændishúsi og eyddi Edith Piaf
æsku sinni þar. Hún fór snemma
að syngja á götum og í klúbbum
Parísarborgar með pabba sínum,
og það var þar sem umboðsmaður
kom auga á hana.
Ferill hennar náði hæstu hæð-
um með ógnarhraða, og þrátt fyrir
uppruna sinn höfðaði hún til allra
stétta, og varð brátt heimsþekkt.
Það var rnikill karakter í röddinni
og hún lagði áherslu á að segja sög-
ur í lögum sínum, sem flestar fjöll-
uðu á harmrænan hátt um ástina.
„Ég myndi ekki kalla sjálfa mig
söngkonu. En ég get sungið í gegn-
um karakterana rnína í leikhúsi.
Þetta er í raun sami hluturinn fyrir
mér, ef hlutverkið krefst þess þá
syng ég, þetta tengist hvað öðru og
verður þar af leiðandi einn og sami
hluturinn."
„Edith Piaf var ekki mjúka
týpan. Hún var mjög ákveðin, al-
gjör nagli, og með frekar grófa
rödd. Hún var ekki mikið fyrir sam-
skipti við konur og átti fáar vinkon-
ur en haug af ástmönnum," segir
Brynhildur. „En hún var ákaflega
gjafmild og mikil velgjörðarmann-
eskja margra. Hún var miki
dýr, og það hefði sko ekl
leiðinlegt að vera í partíu
henni. Hún var lítil og m
1,47 á hæð, en þeim mun
karakter og meiri ntanne
margur með rneiri og stærri
Þetta verður stórfenglegt o;
legt í senn. Ég vil takast á v
frábæra verkefni með opnu
og stóru hjarta og hlakka tii^-
í ferðalag með öllurn þei
koma að sýningunni."
Árið 1951 lenti Edith Piai
legu bflslysi. Hún fékk mo
læknum og byrjaði að drek
ið. Stuttu seinna varð húi
fyrir að fara um bari Parsía
og ná sér í ókunna menn. H
ist þó undir það síðasta
manni sem studdi hana m
um og dáð, en lést aðeins 4
hr
með henni."
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★
M Tilboð 1. Rafmagnsgítartilboð.
Rafmagnsgítar, magnari, ól og
★
★
★
★
★
★
★
snura.
Tilboðsverð
27.900,-
stgr.
★★★★★★★
Opið alla daga til jóla til kl. 22
Tilboð 2. Kassagítc'
Tilboðsverð 15.900,- stc
Gítarinn ehf.
Stórhöfða 27
sími 552-2125 og 895 9376
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★