Alþýðublaðið - 20.04.1969, Side 2
©g mér án þeirra, segir lénas fyrrum söngv-
ari Flowers
Þar sem liðinn er nokkur tími frá því, er
Jónas, fyrrum söngvari Fiowers, hætti með
þeim félögum, og Björgvin, núverandi
söngvari, tók viö, áttum við spjall við
Flowers, svo og Jónas.
-— Gunriar, telur þú. að hljómsveitin
standi betur að vígi með Björgvin heldur
en þegar Jónas söng með ykkur?
— Músíklega séð tel ég, að svo sé,
en hvað viðkemur vinsældum veit ég
ekki- Að vísu höfum við haft mikið að
gera upp á síðkastið, en forvitni fólks
kann að ráða miklu þar um.
★ ÞAÐ KEMUR FÓLKI
EKKI VIÐ
— Hver var raunverulega ástæðan fyr-
ir því, að Jónas hætti?
— Ósamkomulag og margt fleira, sem
aldrei verður dregið fram I dagsljósið,
því það kemur fólki ekki við.
— Gunnar, nú er haft eftir Jónasi að
drykkjuskapur og æfingarleysi hljómsveit-
armeðlima hafi átt stóran þátt í því, að
hann hætti.
— Að vísu skemmtum við okkur nokk-
uö mikið, eri Jónas átti sinn þátt í æfing.
arieysinu-
— Arnar, sérð þú eftir Jónasi úr hljóm
sveitinni?
— Ekki í sambandi við músíkkina, en
sem persónu og félaga sé ég eftir hon-
um. Hann átti megnið af þeim hugmynd-
um, sem sköpuðu hljómsveitirra sem
heild., þannig, að við eigum honum enn
mikið að þakka-
— Ég er sammála Arnari, en ég get
bætt því við, að þegar Gunnar ákvað að
fara yfir til Hljóma, þá ræddum við Björg-
vin saman um stofnun hljómsveitar. Þa
gerði ég mér grein fyrir því, að ég gæti
ekki fengið mann, sem væri eins sterkur
út á við og Jónas.
* GAT GERT BETUR
— Teljið þið, að Jórras hefði getað
gert betur á plötunni?
— Ég veit, að Jónas hefði getað gert
betur í sambandi við sönginn, en hann
hugsaði of mikið um hljóðfæraleikinn í
stað þess, sem hann hefði helzt átt að
snúa sér að- En margar hugmyndir varð-
andi útsetnirrgu voru Jónasar, og á þann
hátt átti hann mikið í plötunni.
En þrátt fyrir alla gagnrýni finnst mér
Jónas komast nokkuð vel frá söngnum
og hefði ég ekki treyst Björgvin til að
gera sumt' það, sem Jónasi tókst.
2 AlþýðublaðiS — HelgarblaS