Alþýðublaðið - 20.04.1969, Qupperneq 6
FLUTTI
HELGARBLAÐIÐ
Finnst ykkur ekki gaman að flytja,
krakkar? Nú erum við flutt úr venjulega
Alþýðublaðinu í Helgarblað Alþýðublaðsins
þar sem við eigum að fá tvær síður alveg
fyrir okkur á hverjum sunnudegi. Og það
er hún Trína frænka, sem ætlar að sjá
um þessar síður — en helzt með ykkar
hjálp. Þið skrifið kanrrski fyrir mig sög-
ur og sendið mér skrítlur og teikningar,
sem við getum svo birt á síðunni. Það
" miklu skemmtilegra, ef þið takið þátt
ö'lu með mér. Og hver veit, nema stund-
um fylgi þessu einhver verðlaun?
Ykkar Trína frænka.
TINA FRÆNKA
OG BÖRNIN
HESTUM STOLIÐ
Það var stolið nokkrum ágætis hestum nýlega úr hesthúsinu, og nú er leyni-
lögreglumaðurinn frægi. hann Sherlock Holmes, kominn á sporið. En það eru
býsna margar slóðir, sem hann þarf að rekja-
Kannski eruð þið alveg eins dugleg og'hann eða meira að segja ennþá dug-
legri. Reynið að leita að hestunum hérna á myndinni, og þegar þið eruð búin að
finna þá, litið þið þá alla, hvern með sínum litnum.
6 AlþýðublaðiS — Helgarblað