Alþýðublaðið - 20.04.1969, Blaðsíða 8
„GETNAÐARVARNAR-
ÚR"...
Þýzkur uppfinningamaður, Walter Thiele
að nafni, hefur nú í samráði við þekktan
sérfræðing í kvensjúkdómum og fæðingar
hjálp í Munchen, dr- Hermann Knaus,
fundið upp svonefnt „Anti-Baby-Cycle“-
úr eða eins konar „getnaðarvarna-úr“. Úr-
ið er meö dagavísi og gefur til kynna,
hvaða dagar séu ,-hættulegir“ viðkom-
andi konu og hverjir ekki- Rauður litur
merkir hættu, en grænn hins vegar, að
engin hætta sé á ferðum. Úr þetta er tal-
ið líklegt til að ná mikilli útbreiðslu í
löndum, þar sem „pillan" er bönnuð, —
og ku raunar þegar hafa gert það! — Á
myndinni hér að ofanr sjáum við Thiele
með úrið góða-
YNGSTI HÁSKÓLA-
BORGARI HEIMSINS
Sasha Dvorak er yngsti háskólaborgari
heimsins! Hann er aðeins 12 ára gamall,
en hefur rrýlega hafið nám við háskólann
í Kiev í Rússlandi, þar sem hann legg-
ur stund á stærðfræði og vélfræði. Svo
einkennilega vill til, að í þessum sama
háskóla er og yngsti háskólaborgari heims
af kvenkyni: hin 14 ára gamla Marina
Burik-
Sovétmenn hafa fengið orð fyrir að
skipa málefnum æðstu menntastofnana
sinna á töluvert annan hátt en við Vest.
urlandabúar eigum að venjast. Til dæm-
is er alveg sérstakur háskóli fyrir börn
með afburðagáfur við Vísindaakademíuna
í Novosibirisk í Síberíu. Og séu margir
sovézkir borgarar af yngri kynslóðinni á
borð við Sasha Dvorak er sanrrarlega ekki
vanþörf á slíku fyrirkomulagi!
MINNSTA BIFHJOL
í HEIMI
Carl Crouch í Kaliforníu á heiðurinn af
því að hafa smíðað minnsta ^mannbæra"
bifhjólið í heimi. Það er aðeins 25 sentí-
metrar á hæð og fer með 45 kílómetra
hámarkshraða á klukkustund. Það þolir
allt að 100 kílóa þunga — og sannast
þar, að „margur er knár, þótt hann sé
srnár"! Það tók Carl Crouch fimm mánr-
uði að setja hjólið sitt saman, enda var
það erfitt verk, sem krafðist bæði þolim
mæði og fingrafimi, svo sem að líkum
lætur. Á myndinni til vinstri sjáum við
bifhjól Crouch á baki bifhjóls af venju-
legri stærð — og hægra megin er verið
að hjóla á því-
B Alþýðublaðið — Helgarblað