Alþýðublaðið - 20.04.1969, Síða 9
Bandaríska leikkonan Bette Davis er
nú að leika í 87. kvikmynd sinni- Myndin
er tekin í Englandi og nefnist ,,Connect-
ing l?oom.“ Bette leikur þarna mikilhæfan
kvenmann, sem spilar á selló — og hefur
götuna fyrir konsertsal! Bette Davis, sem
hóf leiklistarferil sinn með talmyndunum,
telur, að hún eigi enn mikið ólært sem
leikkona. Um það hefur hún komizt svo
að orði:
— IViaður hættir aldrei að reyna að
bæta sig, — alveg án tillits til þess, hve
gamall maður er! Og ég er alls ekki orð-
in svo gömul, að tímabært sé að draga
sig í hlé!
Bette Davis veit áreiðanlega, hvað hún
syngur í þessum efnum- Hún reyndi nefni
lega að draga sig í hlé fyrir rrokkru,
keypti sér hús úti á landi og hugðist taka
lífinu með ró. Þau áform fóru öll út um
þúfur, og áður en Bette vissi af, var hún
búin að stilla sér upp fyrir framan kvik-
myndavélarnar á nýjan leik.
Já, það er hægara sagt en gert að segja
skilið við „sviðsljósin"!
300 meðöl við hrotum
Um 20 milljónir bandarískra eiginkVenna
verða fyrir miklu óþægindum af hrotum
bænda sinni, að því er bandarískur „svefn
sérfræðingur'1, Sally Aimes, heldur fram
Skoðun sína byggir frú Aimes á fjölmörg-
um samtölum, er hún hefur átt við gift-
ar konur á síðustu árum-
Enn munu vísindin ekki hafa ráðiö þá
gátu til fullnustu, hvers vegna það eru
fyrst og fremst karlmenn, sem hrjóta
En hvað, sem því líður, er ekki um það að
villast, að hrotur eru alvarlegra vandamál
en menn hefur grunað tU þessa', að
minnsta kosti á það við, ef rannsóknfl
frú Aimes eru teknar alvarlega — en
frúnni mun ekki vera neinn hlátur í hug!
— Mér hefur nú tekizt að hafa upp á
um 300 meðölum við hrotum, segir frú
Aimes, þar ,á meðal sjálfvirkum rúmdýn-
um. er snúa manninum á hlið, ef hann
liggur upp í loft og hrýtur! Þá er og ann.
að „apparat”, sem gefið hefur alveg sér-
staklega góða raun í baráttunni við hrot-
urnar, en það er eins konar beizli, sem
heldur höfði manns í þeim stellingum, að
hvorki er ,;hætta“ á, að hann hrjóti eða
tali upp úr svefni!
BISKUPINN FÉKK
HLÁTURKAST
Háæruverðugur erkibiskupinn af Kant-
araborg, doktor Ramsey, fékk snert af
hláturkasti nú fyrir skömmu, er hann var
staddur við opnun kirkjulegrar listaverka-
sýrringar í Oxford. Enskur teiknari, John
Bratby, hafði nefnilega tekið sér fyrir
hendur að skreyta Gamla testamentið með
nýstárlegum hætti — en meiningin var
að nota myndir hans í sérstaka æskulýðs-
útgáfu hinnar helgu bókar. Þegar erki-
biskupinn kom auga á þessa skemmtilegu
mynd af dætrum Jobs (talið frá vinstri eru
rröfn þeirra Jemima, Kesja og Keren),
greip hann fyrir nef og munn og umlaði
á milli hláturhviðanna:
— Heh — anzi er — heh — þetta
— heh — skemmtileg—heh — mynd !
AlþýöublaðiS — Helgarblað 9