Alþýðublaðið - 20.04.1969, Síða 10
KASSABILL
Þarna er farkostur, sem hentar yngsta
barninu. Efniviðurinn er trékassi frá kaup-
manninum. máske undan appelsínum
(sterkastir eru þó púrtvínskassarnir frá
ÁTVR). Stýrið getur allt eins verið pott-
hlemmur. '
kvennaþáttur
Kasabotninn er styrktur með tveimur
tommu þykkum listum, sitt hvoru megin,
og á listarra eru fest fjögur teboröshjól-
Þau fást í járnvöruverzlunum. Stærri hjól
eru heppilegri, ef nota á bílinn úti, og
þau hafa stundum fengizt í Fálkanum a
Laugavegi. Þar fást einnig flautur, en
mæður með takmarkaðan viðnámsþrótt
gegn hávaða, gera rétt í að sleppa þeim.
Þarna er komið ódýrt leikfang, sem
barnið getur dundað sér mikið við, hvort
sem það vill sitja sjálft eða ferja í þvi
brúður og kubba-
MATUR
Óvæntir gestir, en lítið í buddunni, æ, hvað er nú til ráða, krabbi sæll?
ítalir eru slyngir að gera einfalda, lystuga rétti. Sá alþekktasti er spaghetti
með kjötsósu, og hefur bjargað margri húsmóður á neyðarsturrdu. Sá kostur
fylgir þessum rétti, að harrn er mjög vinsæll hjá börnum, en hókus pókus( berðu
með honum eina rauðvínsflösku, og samstundis er komin veizlumáltíð fyrir
fullorðna.
Til matreiðslunnar þarf einn pott og eina góða pönnu- í pottinum sýðurðu
tvo pakka af spaghetti. Á pönnunni hitarðu svo sem fjórar matskeiðar af matar.
olíu; sú íslenzka er ágæt, stóran saxaöan lauk og pund af nautahakki, má vera
meira eða minna eftir vild- Kryddað með salti og pipar og hvítlauk eða hvítlauks-
mjöli, og allra bezt er að hafa líka ítalska kryddið oregano (eða leaf oregano),
en það fæst hér stundum hjá Silla og Valdá og öðrum búðum, þar sem krydd-
vara er fjölbreytt. Út á kjötið er hellt tveimur 70 gramma dósum af tómat-
krafti (puree), og gildir einu, hvort hann er ítalskur, amerískur eða kínverskur!
Flestar stærri verzlanir hafa einhverja tegundina- Einum eða tveim bollum af
vatni er bætt á og allt látið malla í hálftíma við lágan hita. Bætið vatni á, ef
með þarf.
Spaghettið er kælt í sigti og hitað aðeins aftur í olíu eða smjöri, og nú er
hvort tveggja borið inn ásamt rifnum osti, mjúku hveitibrauði og helzt ein-
hverju hrásalati. Þetta nægir handa fjórum-
í eftirrétt mundu ítalir hafa ís eða ávexti. í
10 Alþýðublaðið — Helgarblað