Dagblaðið - 16.09.1975, Qupperneq 7
7, !t.’ • T*MlniS>'({9<l .i)i líl{.U;bu[ðÍTl . ’ii G f í
Pagblaðið. Þriðjudagur 16. september 1975.
7
Erlendar
fréttir
FÆR HÚN
AÐ DEYJA?
V ill fá
að
skera á
líf -
taugina
Fylkisdómari i New Jersey i
USA skipaði i gær verjanda til
handa 21 árs gamalli stúlku,
sem legið hefur i dái siðan i
april. Kjörforeldrar hennar
hafa farið fram á, að hætt
verði að halda i henni lifi.
Stúlkan, Karen Ann Quinl-
an, missti meðvitund á dular-
fullan hátt i april og hefur ekki
komið til meðvitundar siðan.
Samkvæmt frásögn kjörföður
hennar, Jóseps, segja læknar
engar likur á að hún komi aft-
ur til meðvitundar og að stórir
hlutar heila hennar séu þegar
ónýtir.
Quinlan fór fram á það i sið-
ustu viku, að hann fengi um-
boð dómara til að fyrirskipa,
að tækjabúnaðurinn, sem
heldur Karen Ann á lifi, verði
tekinn úr sambandi.
í gær gerðist svo það, að op-
inber verjandi fylkisins vár
skipaður til að gæta hagsmuna
stúlkunnar, i réttarbaráttu
milli Quinlans og saksóknara
fylkisins. Saksóknarinn dreg-
ur i efa rétt kjörföðurins um
að láta stúlkuna deyja með
„tign og sæmd”.
Deilan snýst um, hvort ung-
frú Quinlan er lagalega á lifi.
Lög New Jersey skilgreina
dauða sem þá stundu, er
hjartað hættir að slá. Ýms
önnur fylki skilgreina dauða
sem þá stundu, er „heilinn
deyr”. Sú skilgreining gæti átt
við i þessu tilfelli, segir Reuter
i morgun.
Og þú
líka...
Hvíta húsið í Washington
sendi í gær út tilkynningu
frá Ford forseta, þar sem
hann lýsti 9. október dag
Leifs Eiríksssonar.
í tilkynningu forsetans
sagði meðal annars: „Með
því að heiðra þennan mikla
Norðmann heiðrum við
alla þá, sem komu til lands
okkar og hafa auðgað sögu
Bandaríkjanna."
"ÁRAMÓTASTíMMN-
ING" FYRIR FRAMAN
SíNDIRÁÐ EGYPTA
Atburðirnir i egypzka sendi-
ráðinu i Madrid á Spáni, sem
hefðu getað endað i skelfilegu
blóðbaöi, urðu 3000-4000 borgar-
búum til mikillar skemmtunar i
gærkvöldi og fram eftir nóttu.
Skarar lögreglumanna með
alvæpni gættu götunnar fyrir
framan sendiráðið og allt i
kring, en áhorfendurnir fylgd-
ust með frá gangstéttinni hinum
megin.
Þegar arabi'skir sendimenn,
sem stóðu i samningastappi við
skæruliðana, komu og fóru frá
sendiráðinu, blossuðu mynda-
vélaglampar og áhorfendahóp-
urinn klappaði ákaft og hróp-
aði: „Olé! Viva! ” í takt og með
jöfnu millibili. 1 fréttaskeyti frá
Reuter i morgun segir að
stemmningin á staðnum hafi
verið eins og á nautaati eða
gamlárskvöldi.
Veitingahúsaeigendur i ná-
grenninu gerðu skinandi góð
viöskipti i gærkvöldi. Stöðugur
straumur áhorfenda og frétta-
manna var um sali þeirra til að
fásér hressingu, kaffi og koniak
I kuli næturinnar.
Sendiráðstakan varhin fyrsta
Spáni Generalissimos
til Alsír
Francos, sem sloppið hefur til-
tölulega vel út úr skuggalegu
striði arabiskra og israelskra
skæruliða og leyniþjónustu-
manna. ísraelskur sendimaður
var þó skotinn til bana af ara-
biskum skæruliðum i Madrid i
janúar. Hann var jarðsettur
með viðhöfn sem háttsettur her-
maður i tsrael. Skæruliðahreyf-
ingin „Svarti september” tók á
sig ábyrgðina á morðinu.
Þá gerðist það 1972, að
króatiskir skæruliðar, sem
rændu SAS-flugvél i Malmö,
komu til Madrid og létu þar
lausa 77 gisla i skiptum fyrir 6
Króata, sem voru i fangelsum i
Sviþjóð. Þeir voru fangelsaðir á
Spáni en siðan náðaðir af
Franco.
EFTIR 16 TÍMA SPENNU í MADRID:
Skœruliðarnir komnir
Palestinsku skæruliðarnir,
sem i gær héldu sendiherrum
Egyptalands, Alsir og íraks i
gislingu I 16 klst. i sendiráði
Egyptalands i Madrid, komu til
Alsir snemma i morgun með
gisla sina.
Það var egypzka stjórnin sem
tók af skarið og féllst á að út-
vega skæruliðunum fjórum
flugvél, sem flytti þá til Alsir.
Upphafleg krafa skæruliðanna
var sú, að Egyptar segðu upp
Sinai-samkomulaginu við Isra-
el. Að öðrum kosti myndu þeir
sprengja sendiráðið i loft upp.
Að sögn gislanna, sem töluðu
við fréttamenn, stjórnir sinar og
eiginkonur frá sendiráðinu,
voru skæruliðarnir mjög vel
vopnaðir og höfðu komið fyrir
sprengjum um allt sendiráðið.
Egypzka stjórnin fékk frest til
kl. 11 i gærkvöldi að isl. tima til
að segja upp samkomulginu, en
áður höfðu sendiherrarnir fall-
izt á að undirrita yfirlýsingu, er
fordæmdi samkomulagið og
taldi það á engan hátt þjóna
hagsmunum Palestinumanna.
Fjórmenningarnir lýstu mikilli
ánægju sinni með sendiherrana,
spænsk yfirvöld og spænska
fjölmiðla. „Heiðarlega hefur
verið komið fram við okkur,”
sagði einn skæruliðanna i sim-
tali við fréttamann Reuters i
Madrid, „og þá munum við
einnig koma heiðarlega fram.”
1 samtali við spánskan frétta-
mann sagði einn skæruliðanna,
að þeir hefðu notið góðs matar
og liði prýðilega.
Þegar flugvél Egyptalands-
stjórnar, af gerðinni Iljushin-18,
lenti á flugvelli i Algeirsborg i
Egyptar undirrita samkomulagið i Genf á dögunum.
Palestinsku skæruliðarnir vildu það ógilt — en fengu „aðeins”
fordæmingu á þvi.
morgun voru gislarnir þegar skæruliðana né heldur hvar
látnir lausir en ekki er vitað um gislarnir eru nú.
Stjórnin í Líbanon
setur úrslitakosti
Stjórn Libanon hefur sett
strangar öryggisreglur i tveimur
róstusömustu úthverfum Beirút. t
tilkynningu stjórnarinnar i morg-
un sagði, að ef nauðsyn krefði, þá
myndi stjórnin senda herlið inn i
hverfin til að koma i veg fyrir á-
tök.
Það var innanrikisráðherra
landsins, Camille Chamoun, sem
tilkynnti um þessar öryggisráð-
stafanir. Viðvörun hans um
mögulega beitingu hervalds var
birt um leið og leyriiskyttur og
sprengjutilræðismenn héldu upp-
teknum hætti i tveimur úthverf-
um borgarinnar. 1 þessum sömu
hverfum létu rúmlega 100 manns
lifið i átökum fyrr á þessu ári.
Chamoun sagði ekkert mann-
fall hafa orðið i átökunum undan-
farna daga, en bætti þvi við, að
leyniskyttur hefðu skapað mikla
spennu.
I siðustu viku sendi stjórn
Libanons herlið til noröurhluta
landsins eftir vikulanga bardaga
milli múhameðstrúarmanna i
Tripóli og kristinna manna i
fjallabænum Zghorta. Þar létu
tugir manna lífið.
Samkvæmt lögreglufréttum
hafa minnst 130 manns fallið á
undanförnum tveimur vikum i
Tripóli. Þar af eru 12 vinstrisinn-
aðir byssumenn, sem féllu i átök-
um við herflokk á ströndinni milli
Beirút og Libanon á sunnudaginn.
Óeirðarseggir sátu um nokkrar
lögreglustöðvar i og um Tripoli til
að hefna félaga sinna.
Um leið og innanrikisráðherr-
ann birti tilkynningu sina var birt
áskorun frá forsætisráðherra
landsins, Rashid Karami, þess
efnis, að ibúar landsins tækju
höndum saman viö yfirvöld um
aö koma aftur á lögum og reglu i
landinu.
Moskva
viðurkennir
Papúa Nýju-
Gíneu
Sovétstjórnin hefur viður-
kennt hina nýju stjórn Papúa
Nýju Gineu, sem fékk sjálf-
stæði um helgina. Tassfrétta-
stofan skýrði frá þessu i
morgun.
Þá er i dag i Prövdu, mái-
gagni kommúnistaflokksins,
yfirlýsing frá Aleksei
Kosygin, þar sem viðurkenn-
ingin er formlega staðfest og
forsætisráðherrann óskar eftir
stjórnmálalegum tengslum
við hiná nýju stjórn.
Yfirlýsingu Kosygins var
beint til Michaels Somares,
forsætisráðherra Papúa Nýju
Gineu. Segir þar, að
viðurkenningin sé til komin
vegna staðfastrar leitar
hinnar nýju stjórnar eftir
„jafnrétti og vináttu allra
Skæruliðar fara um götur Beirút I Libanon á sunnudaginn. Þá féllu 12
úr þeirra hópi Alls hafa 130 manns fallið þar á liðinni viku.
ÓVÆNT STUÐ
Ungt par i London henti óvænt atvik þar i gær, þegar þau lögðust
á götuna og hófu innilega ástaleiki. Drukkinn ökumaður ók yfir
þau. Bæði misstu meðvitund, rifbrotnuðu og skárust hér og þar.
Þá skemmdi ökutækiö einnig lifur mannsins.
ökumaðurinn, sem er 36 ára, hefur verið sviptur ökuleyfi 1 eitt
ár og sektaður um 34000 islenzkar krónur. Hann var ákærður fyrir
að hafa ekið undir áhrifum áfengis.