Dagblaðið - 16.09.1975, Síða 11
Asgeir
HVAÐ
KOSTA
BÆKURNAR?
Þaö er alltaf vafasamt aö birta bókalista þann, sem nemendur
fá í hendurnar á haustin, þvi aö allan veturinn eru aö bætast viö
fleiri bækur til lestrar. Viö látum listann samt fljóta meö, aöal-
lega til aö gefa lesendum hugmynd um verö bókanna:
ISLENZKA:
Hrafnkels saga Freysgoöa kr. 720
Lesarkasöfn: Þórbergur Þóröarson kr. 200
Svava Jakobsdóttir kr. 200
Réttritun 2. hefti kr. 350
Lausnahefti viö réttritun kr. 150
Leikur aö stráum kr. 360
Lausnahefti viö Leik aö stráum kr. k*. 150
ENSKA:
English Commercial Practice... kr. 560
Developing Skills kr. 533
An Intermediate Practice Book kr. 533
ÞÝSKA:
Þýzkunámsbók Jóns Gislasonar — Leskaflar kr. 1440
Þýzkunámsbók Jóns Gislasonar — Málfræöi kr. 1200
Deutsche Lesestucke 1974 kr. 660
DANSKA:
Litteratur for niende kr. 530
Danmarksbilleder... kr. 1720
Gule Handsker kr. 900
STÆRÐFRÆÐI:
Stæröfræöi I ekki til.
BÓKFÆRSLA: Landspróf.
1. stig bókfærslu kr. 200
2 höfuöbækur kr. 150
1 dálkabók kr. 120
Gagnfræðapróf. II. stig bókfærslu kr. 200
2 höfuðbækur kr. 150
2 dagbækur kr. 240
HAGFRÆÐI:
Verkefnahefti I fyrirtækjarekstri kr. 550
Eyöublöð kr. 700
SAGA:
Landspróf. lslandss. eftir Egil J. Stardal kr. 1320
VÉLRITUN:
Kennslubók I vélritun kr. 1740
Vélreikningur kr. 350
Auk þess má bæta viðum 1500 kr. I stilabækur og ritföng. Sam-
tals nemur þvi byrjunarkostnaöurinn frá 15.500—16.500 kr.
AT-
Pagblaðið. Þriöjudagur 16. september J975.
„Uss, nei, — hann pabbi
borgar þetta allt saman"
— rœtt við skólafólkið með sumarhýruna, þegar það
gerir innkaup fyrir veturinn
Hvað kostar að hef j«
framhaldsskólanám? All
of mikið, segja vafalaus
þeir, sem eru að byrj<
núna, og staðreyndin er sú
að undirrituðum, sem ekk
hef ur fylgzt með verðbólg
unni sem skyldi nú á síð
ustu tímum, krossbrá, ei
hann kynnti sér bókaverð
ið.
DAGBLAÐIÐ brá sér á Bóka-
markað Verzlunarskólans til að
fylgjast með nemendum, sem
voru að birgja sig upp af skóla-
bókum til vetrarins. Verzlunin
virtist ganga vel. En svo sannar-
lega var enginn gleðisvipur á
fólki, er það dró upp stóran hluta
sumarhýrunnar og lét i hendur
kaupmannanna, sem reyndar eru
einnig nemendur skólans, sjöttu
bekkingar.
t dreifibréfi, sem fylgir inn-
kaupalistum nemenda, segir
m.a., að á bókamarkaðinum sé
samankomið allt það lesefni, sem
nemendur þurfi á að halda á kom-
andi vetri, — og sé það á ótrúlega
lágu verði miðað við verðbolfe-
una. Einnig selja sjöttu bekking-
ar glósur, sem þeir útbúa sjálfir
og eru þær að þeirra sögn á mjög
hagstæðu verði.
Til að athuga málin nánaf náð-
um við tali af tveimur ungmenn-
um, sem eru að hefja skólagöngu,
og spurðum þau, hvernig pep-
ingamálin stæðu hjá þeim. 1 leið-
inni forvitnuðumst við um, hvern-
ig þeim litist á Verzlunarskólann
eftir eins dags kynni af honum.
Linda Runólfsdóttir var nýbúin
að kaupa bækur fyrir rúmlega Þarna eru glósurnar fjölritaöar.
8.000 krónur, er við drógum hana
afsiðis til viðræðna. Hún sagðist
vera að byrja að verzla og ætti
vafalaust eftir að kaupa bækur og
annað slíkt fyrir 7.000 i viðbót.
,,Og þetta er ekki allt,” sagði
hún, „skólagjöldin eru 12.500
krónur og auk þess bý ég i Kefla-
vik og þarf að borga 620 krónur i
ferðir daglega.”
Þriöjubekkingar birgja sig upp af skólabókum til vetrarins.
DB-myndir: Björgvin Pálsson.
En hafði hún ekki þurft að fata
sig eitthvað upp fyrir veturinn?
„Jú, jú, ég er búin að kaupa föt
fyrir 20.000 krónur og á sennilega
eftir að leggja út 40.000 i viðbót.”
Linda vann i sumar i frystihúsi
i Ytri-Njarðvik og hafði 180.000
kr. i laun. Við spurðum hana,
hvort hún væri ekkert hrædd um
að verða gjaldþrota á miðjum
vetri.
„Uss, nei,” svaraði hún, „pabbi
borgar þetta allt saman.”
Linda fór i Verzlunarskólann
bara til að gera eitthvað, og svo
haföi hún heyrt að alltaf væri gott
að fá vinnu þegar maður hefði
verzlunarpróf. Henni leizt ekkert
sérstaklega vel á skólann eftir
eins dags veru þar.
Aron Styrmir Sigurðsson hafði
verzlað fyrir 7.000 krónur, þegar
við hittum hann að máli. Hann
gat ekki keypt meira þann dag-
inn, þvi að hann var orðinn blank-
ur.
Aron vann á eyrinni i sumar og
hafði um 100.000 kr. i kaup. Hann
bjóst við að það myndi endast út
veturinn, ef spartyrði á hlutunum
haldið. Ekki sagðist hann þurfa
að kaupa allar námsbækurnar
nýjar, þvi að hann þekkir nokkra
gamla Verzlunarskólanemendur
og ætlar að fá gamlar bækur hjá
þeim.
Aron var ekki byrjaður að fata
sig upp fyrir veturinn, en bjóst við
að eyða 20.000 krónum til þeirra
hluta.
Og hvernig leizt honum svo á
skólann eftir eins dags veru þar:
„Bara vel. Þetta verður sjálf-
sagt ágætt, þegar allt er komið i
gang.”
—AT— Linda Runólfsdóttir
„Það er náttúrlega alltaf erfitt
að skipta um skóla. Ég hef verið i
sama skólanum, frá þvi að ég
byrjaði. Svo finnst mér húsnæðið i
það þrengsta, og kennararnir eru
ekkert sérstakir svona við fyrstu
sýn, — sérstaklega fannst mér
þýzkukennarinn skritinn!” sagði
hún að lokum.
Aron Styrmir Sigurðsson