Dagblaðið - 16.09.1975, Blaðsíða 14
Pagblaðið. Þriðjudagur 16. september 1975.
íþróttir
Iþróttir
t)
14
I
fþróttir
fþróttir
Það var hátíð hjá FH-
ingum i Kaplakrika á
sunnudaginn — á íþrótta-
svæði féiagsins. Axel
Kristjánsson, formaöur
FH, og Stefán Jónsson,
forseti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar, lögðu þá
siðustu þökurnar á hinn
nýja grasvöll félagsins þar
— og nú er stefnt i miklar
framkvæmdir. Næsta
sumar geta FH-ingar því
leikið heimaleiki sina á
grasvelli í 1. deildinni og
innan fjögurra ára er fyr-
irhugaðað framkvæmdum
verði lokið við reisulega á-
horfendastúku á vellinum,
sem á að rúma 3500 áhorf-
endur i sæti. Teikningin að
ofan er af henni — og undir
stúkunni búningsherbergi,
skrifstofur og ýmisleg fé-
lagsaðstaða fyrir FH.
Vinna á svæði FH i Kaplakrika
hófst 1968 og miðaði vel i fyrstu.
en brást vegna iramkvæmda-
galla. Þetta tafði, en i sumar hef-
ur verkinu fleygt áfram og nú er
lokið við að tyrfa völlinn. Hins
vegar var malarvöllur þar tilbú-
inn i júli 1973 og heíur verið keppt
á honum siðan. Völlurinn er tal-
inn einn bezti malarvöllur hér á
landi. Þá hefur og bygging
hlaupabrautar heppnazt mjög
vel. Blaðamannastúka hefur
verið byggð við malarvöllinn og
frjálsiþróttasvæðið, sem er eins-
dæmi hér á landi við iþrótta-
mannvirki utan Reykjavikur —
og næsta skrefið er að byggja á-
horfendapalla við vesturhlið vall-
arins. Það verður gert næsta
sumar. Áhorfendastúkan verður
að austanverðu.
Þegar rætt er um framkvæmdir
á iþróttasvæði FH i Kaplakrika
er nauðsynlegt að gera sér ljóst,
að varðandi byggingu iþrótta-
mannvirkja á svæðinu skiptist
það i tvennt. Annars vegar efri
hluti svæðisins og hins vegar
neðri hluti svæðisins. Efri hlut-
inn, þ.e.a.s. malar-knattspyrnu-
völlur með hlaupabraut og ann-
arri frjálsiþróttaaðstöðu og bún-
ingsklefar, er byggður sam-
kvæmt sérstökum samningi við
Hafnarfjarðarbæ og er Hafnar-
fjarðarbær jafnframt leiguaðiii
að nefndum iþróttamannvirkjum
frá 1973 til næstu 10 ára, og hafa
þvi iþróttafélög i Hafnarfirði af-
notarétt til æfinga að þessum
mannvirkjum, samkvæmt þar til
gerðum reglum.
'Neðri hluti svæðisins og þau i-
þróttamannvirki, sem þar er ráð-
gert að reisa eru aftur á móti reist
án leiguaðildar bæjarins þ.á.m.
110 mx75m grasvöllur, sem er
stærsta leyfilega stærð fyrir al-
þjóðlega og millirikja knatt-
spyrnukappleiki og mót.
FH-stúlkur náðu jöfnu á Ítalíu
Fll-stúlkurnar, sem siðustu
þrjú árin hafa orðið islandsmeist-
arar í knattspyrnu, eru nú i
kcppnisför til ítaliu. Þar stendur
kvennaknattspyrna I Evrópu með
mestum blóma — þegar komnar
þar atvinnukonur i iþróttinni,
meira að segja frá Norðurlönd-
um.
A laugardaginn léku FH-stúlk-
urnar sinn fyrsta leik i keppnis-
förinni og léku þá við það lið, sem
sigraði i 2. deild á Italiu. Jafntefli
varð i leiknum án þess að mark
væri skorað. Stúlkurnar munu
leika tvoaðra leiki i förinni, 18. og
23. september og mæta þá meðal
annars ítaliu-meisturunum. Þær
eru einnig efstar i keppninni þar
nú og hafa sex „landsliðskonur” i
liði sinu.
Fararstjóri i förinni er iþrótta-
konan góðkunna Guðlaug
Kristinsdóttir, en þjálfari Helgi
Ragnarsson. Þessi för komst á,
þegar borgarstjóri Lingano var
hér i sumar — Albert Guðmunds-
son samdi þá við hann um mót-
tökur fyrir FH-stúlkurnar.
VIÐ TEPPALEGG JUM
STIGAHUSIÐ
—«j ,»® "n
MARGRA ARA
REYNSLA
TRYGGIR GÓÐA
PJÓNUSTU
NÍÐSTERK TEPPI I
MÖRGUM GERÐUM
OG LITUM.......
STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR
GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR,
GERUM TILBOÐ EF ÓSKAÐ ER,
LEITIÐ UPPLÝSINGA HJÁ INNRÉTT-
INGABÚÐINNI GRENSÁSVEGI 3
1••••••
Sigurvegari I nýliðakeppni Golfklúbbs Reykjavikur meö glæsileg 'verö-
laun. Verðlaunaafhending var hjá Golfklúbbnum á laugardag —og við
munum birta fleiri myndir siöar. Ljósmynd Bjarnleifur.
Spenna í golfi
Um heigina fór fram á
Grafarhoitsvellinum hin svo-
nefnda Bacardi keppni. Þátttak-
endur voru alls 70. Úrslit voru
óvenjuleg, að ekki sé meira sagt.
Ragnar Ólafsson og Jóhann
Eyjólfsson deiidu meö sér efsta
sætinu og verða þvi að fara aðrar
18 holur.
Keppnin um þriðja sætið var
ekki siður skemmtileg, þar voru
einnig jafnir, þeir Hörður
Magnússonog Helgi V. Jónsson.
Nr. 1-2 Ragnar Ólafsson, fór á 73
höggum, forgjöf 4 = 69.
Nr. 1-2 Jóhann Eyjólfsson, fór á 80
höggum, forgjöf 11 = 69,
Nr. 3-4 Hörður Magnússon, fór á
92 höggum, forgjöf 22 = 70
Nr. 3-4 Helgi V. Jónsson, fór á 92
höggum, forgjöf 22 = 70.
Einnig fór fram Chrysler-opin.
Þátttakendur voru 55. Einnig þar
verður að fara fram annar 18 holu
leikur.
Nr. 1-2 Sveinn Sigurbergss. fór á
83, forgjöf 14 = 69
Nr. 1-2 Jón Carlsen fór á 93,
forgjöf 24 = 69
Einnig fór fram keppni i kvenna- |
flokki. Þar sigraði Kristin
Pálsdóttir, fór á 92 höggunli, for-
gjöf 20 = 72. Jakobina
Guðlaugsdóttir fór á beztu skori,
90 höggum.
hh