Dagblaðið - 16.09.1975, Qupperneq 18
f, f
18
1 Búvöruverðið:
Fulltrúar neytenda
samþykktu hœkkunina
Fulltrúar neytenda í
verðlagsráði landbúnað-
arins samþykktu hækk-
unina, sem varð á búvör-
um í gær. Verð á landbún-
aðarvörúm er reiknað út í
svonefndum • verðlags-
grundvelli, sem er mat á
hækkun á kostnaði við bú-
rekstur, að meðtöldum
„launum fjölskyldu
bóndans". Tölur í þessum
grundvelli hafa hækkað
um milljón á einu ári.
Dagblaðið fékk þessar
upplýsingar hjá Agnari
Guðnasyni, blaðafulltrúa
Stéttarsambands bænda.
„Verðlagsgrundvöllurinn
var tvær milljónir tvö
hundruð f jörutíu og f imm
þúsund 1. september í
fyrra en er nú þrjár
milljónir tvö hundruð
sextíu og fimm þúsund
krónur," sagði Agnar.
„AAagnið, sem reiknað er
með í grundvellinum, er
óbreytt, en allar tölur
hafa hækkað. Hækkunin
er 45,4 prósent.
Síðan 1. júní í ár vegur
áburðarhækkunin einna
mest.
Helmingurinn af þess-
ari hækkun kom ekki
fram i verðhækkun á
landbúnaðarvörum í vor
heldur var hann geymdur
þar til nú. Bóndinn fékk
þessa hækkun því ekki
bætta fyrr en núna.
Kaup fjölskyldu bónd-
ans var 1. september í
fyrra rúm milljón, eða
1.140.000 krónur en er nú
talið eiga að vera hálf
önnur milljón, eða
1.593.000 krónur.
Þá hefur sláturkostn-
aður vaxið geysilega.
Hann var 40 krónur á
kílóið í hitteðfyrra, 62.40
krónur fyrir ári og nú 95
kr. á kíló.
AAat á verðlagsgrund-
vellinum byggist á reikn-
ingum Hagstofunnar og
var það samþykkt sam-
hljóða í verðlagsráði.-HH
VILJA HEIMAMANN SEM VARÐSTJÓRA LÖGREGLU
Bæjarstjórn Seltjarnarnes-
kaupstaðar hefur skorað á
dómsmálaráðuneytið að veita
Ingimundi Helgasyni stöðu lög-
regluvarðstjóra i kaupstaðnum.
Lárus Salómonsson hefur um
árabil gegnt þessari stöðu. Hefur
Ingimundur Helgason, lögreglu-
maður, verið honum til aðstoðar
og staðgengill hans. Lárus lætur
nú af starfi sakir aldurs. Var
staða hans auglýst. Sóttu tveir
menn um stöðuna, Ingimundur
Helgason og Ólafur Jóhannsson,
lögregluþjónn á Siglufirði. Þriðja
umsókn barst um almennt lög-
regluþjónsstarf.
I umsögn sinni um hæfni
umsækjenda, telur bæjar-
fógetinn, Einar Ingimundarson,
báða umsækjendur hæfa. Sem
fyrr segir, er það dómsmálaráðu-
neytið, sem veitir stöðuna, enda
um ráðningu rikisstarfsmanns að
ræða.
—BS—
Hohday Mag.c: „UNDARLEG - segja
SAMNINGAGERÐ" stúlkurnar
„Ég byrjaði að selja þessar
vörur”, sagði ein þeirra sölp-
stúlkna, sem eru liður i sölu- og
dreifingaraðferð „Holiday
Magic” fyrirtækisins. Hún
skýrði DAGBLAÐINU frá þvi,
að hún hafi i byrjun verið látin
skrifa undir „samning” um, að
hún fengi 20% i sölulaun. Eng-
inn undirritaði þennan samning
fyrir hönd „Holiday Magic”, og
ekkert eintak „samningsins”
gat hún þvi fengið i hendur.
„Fyrst átti óg að sækja
tveggja eða þriggja daga nám-
skeið i „sölutækni”. Mér leizt
svo á, að þetta námskeið gæti
alveg eins heitið eitthvað annað,
og tók raunar ekki þátt i þvi,
þegar ég komstað þvi, að ég átti
að greiða kr. 5 þúsund fyrir
„kennsluna,” sem einhver
finnsk hjón virtust eiga að ann-
ast.
„Til þess að geta hafið söluna
varð ég að kaupa tösku með
kremkrukkum og annarri vöru
fyrir kr. 9.500.00. Með þessum
kaupum var látið heita, að ég
hefði komið á fót eigin fyrir-
tæki”, sagði þessi sölustúlka.
Töskuna keypti hún af svoköll-
uðum umboðsmanni.
„Nú hófst snyrtivörusala min
með þvi, að ég bauð heim til min
nátengdum konum og kunningj-
um. Notaði ég þetta „fyrirtæki”
mitt til þess að láta þær reyna
snyrtivörurnar. Þær útfylltu
siðan pöntunarseðla fyrir vör-
um að kaupverði um kr. 8 þús-
und”.
„Þegar ég kom með þessa
pöntun, varmér sagt að ég fengi
ekki nema 15% i sölulaun. Þeg-
ar ég samþykkti það ekki orða-
laust, og vitnaði til „samnings-
ins”, þá var mér bent á, að ég
hefði engan samning og, að auð-
velt væri að rifa eintakið, sem
ég hafði undirritað og einhliða
gengizt inn á 20% sölulaun.”
„Þessi kynni min af „Holiday
Magic” voru mér alveg næg. Ég
var búin að kaupa töskuna með
snyrtivörum, sem ég átti að
nota við söluna. Gat ég þvi ekki
skilað henni aftur. Ég get vel
notað það, sem i henni er, en
verðið á innihaldinu er hátt,
ekki sizt, þegar haft er i huga,
ab ég fékk töskuna á „heildsölu-
verði”.”
Þessi frásögn er studd af
mjög samhljóða lýsingum fleiri
stúlkna, sem höfðu samband við
DAGBLAÐIÐ í gær.
—BS—
„ALLT A
HREINU"
„Þaðerekkirétt, að „Holiday
Magic” sé landrækt úr Dan-
mörku,” sagði Ágúst Jónsson,
framkvæmdastjóri Vlkingavers
hf„ sem flytur inn „Holiday
Magic”-snyrtivörurnar hér á
landi. „Hins vegar er verið að
breyta sölukerfinu i
Skandinaviu,” sagði Ágúst.
Agúst kvað eiganda fyrirtæk-
isins i Danmörku ætla að stefna
Extra-blaðinu út af skrifum
þess, ef það birti ekki leiðrétt-
ingu á þeim.
Varðandi gæði vörunnar,
benti Agúst á, að hún hefði feng-
ið Oscar-verðlaun i „Turin-
Italy”. Er sú viðurkenning,
vægast sagt, ekki sannfærandi.
Eftir stendur sú staðreynd, að
skipulagning dreifingar og sölu
þessa vörumerkis, hefur verið
gerð útlæg úr mörgum löndum
fyrir stórkostleg svik.
„Vikingaver hf. kaupir „Holi-
day Magic”-vörurnar af „Tara
Enterprizes A/S” i Kaup-
mannahöfn,” sagði Agúst Jóns-
son, talsmaður snyrtivörusöl-
unnar, sem DAGBLAÐIÐ
skýrði frá i gær. Hann kvað 15
umboðsmenn hafa með höndum
sölu vörunnar og dreifingu.
„Þeir leggja sina löglegu smá-
söluálagningu á vöruna”, sagði
Ágúst. „Hún er frá 29% til
34,7%”.
Umboðsmennirnir kaupa vör-
una á heildsöluverði, að sögn
Ágústar. Hver þeirra um sig má
siðan hafa allt að 10 sölustúlk-
um. Þessar stúlkur fá siðan á-
kveðinn hundraðshluta af sölu.
Hver hann er, fer eftir sölu-
dugnaði.
t stuttu máli kveður Agúst
þessa sölu ganga þannig fyrir
sig, að neytandinn gerir pöntun
hjá sölustúlkunni. S.ölustúlkan
kaupir vöruna hjá umboðs-
manni. Umboðsmaðurinn kaup-
irvöruna hjá „Vikingaveri hf.”,
en „Vikingaver hf.” kaupir
beint frá „Tara Enterprizes
A/S” i Kaupmannahöfn. „Þetta
fyrirkomulag heldur verðinu
niðri,” sagði Agúst, „vegna
þess, að enginn einn sölumaður
getur selt dýrara en annar. Vik-
ingaver hf. gefur út pöntunar-
seðla með skráðu verði á öllum
vörutegundum. Þetta er ekki
eins og I verzlunum, þar sem
verðið getur verið mjög mis-
munandi á sömu vörutegundum
i hinum ýmsu sölubúðum,”
sagði Ágúst.
Ágúst kvað sölustúlkurnar fá
námskeið i meðferð vörunnar.
Þar er þeim kennt að láta við-
skiptavininn prófa vöruna áður
en hún er keypt. .bs-
-3 J.f @1 f ,lg jfiri >'1 éié BldjjhU
Dagblaðið. Þriðjudagur 16. september 1975.
Tilkynningar
Orlof að Laugum
Orlofskonur, sem dvöldu að
Laugum 2.-9. júli sl., eru beðnar
um að mæta á Hallveigarstöðum
fimmtudaginn 18. september, kl.
20.30.
Opinber háskólafyririestur.
Magnús Ulleland, prófessor við
Oslóarháskóla, flytur opinberan
fyrirlestur I boði heimspekideild-
ar H.t. fimmtudaginn 18. septem-
ber n.k. kl. 20.30 i stofu 201, Arna-
garði. Fyrirlesturinn verður
fluttur á norsku og nefnist: „Gio-
vanni Boccacio sex hundruð ár-
um siðar.” öllum er .heimill að-
gangur að fyrirlestrinum.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar.
Fótsnyrting fyrir aldraða er
byrjuð aftur. Upplýsingar hjá
Guðbjörgu Einarsdóttur á
miðvikudögum kl. 10-12 árdegis i
sima 14491.
Handknattleiksdeild Fram
Æfingatafla, gildir frá 15.
september 1975.
íþróttahús Alftamýrarskóla
Sunnudagar:
kl. 10.20-12.00. Byrjendaflokkur
pilta
kl. 13.00-14.40. 4. fl. stúlkna.
i
Mánudagar:
kl. 18.00-18.50 3. fl. kvenna
kl. 18.50-19.40 2. fl kvenna
kl. 19.40-21.20. M.fl. og 1 fl.
kvenna
Þriðjudagar:
kl. 18.00-19.40. 5. fl. karla.
kl. 19.40-20.30. 4. fl. karla
20.30- 21.30 3. fl. karla
21.20-22.10 2. fl. karla.
Fimmtudagur:
kl. 18.00-18.50 3. fl. kvenna
18.50-19.40 4. fl. karla
19.40-20.30 2. fl. kvenna.
20.30- 21.20. M. fl. og 1. fl.kvenna.
21.20-22.10 3. fl. karla
22.10-23.00 2. fl. karla.
Þann 26. júli sl. voru gefin saman
i hjónaband af sr. Ragnari
Fjalari Lárussyni i Hallgrims-
kirkju Sigriður Eiriksdóttir og
Kristinn Sveinbjörnsson. Heimili
þeirra er að Grundarbraut 12,
Ólafsvik.
Nýja Myndastofan.
Þann 23. ágúst voru gefin
saman I hjónaband af sr. Þóri
Stephensen i Dómkirkjunni Sig-
rlður Steinarsdóttir og Einar Kr.
Þórhallsson. Heimili þeirra er að
Blönduhlið 26.
Nýja Myndastofan.
Laugardalshöll
Miðvikudagar:
"kl. 18.50-20.30 M. fl. og 1. fl. karla
Föstudagar:
kl. 18.50-19.40 M. fl. og 1. fl. karla
kl. 20.30-21.20 Mfl. og 1. fl.
kvenna.
K.R. hús
Þriðjudagar:
kl. 22.10-23.50M. fl. og 1. fl. karla.
Fwtdir
Kristniboðsfélagið
í Keflavík
Fyrsti fundur á þessu hausti
verður i Kirkjulundi, i kvöld kl.
20.30. Gunnar Sigurjónsson hefur
Bibliulestur. Allir velkomnir. —
Stjórnin.
Samkomur
Frá íþróttafélagi
fatlaðra Reykjavík:
Iþróttasalurinn að Hátúni 12 er
opinn sem hér segir, mánudaga
kl. 17.30—19.30, bogfimi, miðviku-
daga kl. 17.30—19.30 borðtennis og
curtling, laugardaga kl. 14—17,
borðtennis, curtling og lyftingar.
- Stjórnin.
Árnað heilla
Filadelfía
Almennur Bibliulestur i kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Einar Gisla-
son.
Sýningar
Kjarvalsstaðir. Ljós ’75. Stendur
til 16. september.
Loftið.Kjartan Guðjónsson sýnir.
Stendur til 19. september. Opið á
verzlunartima.
Mokka. Gunnar Geir sýnir til 27.
september.
Þann 19. júli voru gefin saman I
hjónaband af sr. Þorsteini
Björnssyni Gréta Hrönn
Ebenesardóttir og Páll Isaksson.
Heimili þeirra erað Njálsgötu 15.
Nýja Myndastofan.
Um þessar mundir sýnir Kristján
Guðmundsson verk sin I Galleri
Súm, Vatnsstig 3B. A sýningunni
eru 23 verk, flest teikningar og
bækur, unnin á sl. fjórum árum.
Sýningin er opin daglega frá kl.
16-22. Henni lýkur 28. september
nk.
Unuhús, Veghúsastig 7: Grafik-
myndir eftir Einar Hákonarson
við Timann og vatnið eftir Stein
Steinarr. Stendur til föstudags-
kvölds, 19. sept.
Hamragarðar: Hörður Haralds-
son sýnir. Stendur til 21. septem-
ber.
MAÐUR GETUR
ALLTAF VIÐ SIG
BLÓMUM
BÆTT
BLOMABUÐIN
FJÓLA
GOÐATUNI 2
GAHOAHREPPI
SIMI 44160