Dagblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 4
4
Dagblaðið. Fimmtudagur 25. september 1975.
Nýja gjaMskrtun kann að vera ódkl
— birting gjoldskrárinnar talin ófullnœgjandi
Vafi þykir vera á þvi, hvort
nýjasta gjaldskrá Rafmagns-
veitu Reykjavikur er gild frá 1.
september að telja, eins og i
henni segir. Gjaldskrá þessi var
birt i B-deild Stjórnartiðinda,
sem gefin voruút hinn 9. septem
ber sl.
í lögunum um birtingu laga og
stjórnvaldaerinda segir að ekki
megi beita fyrirmælum fyrr en
birting þeirra hefur farið fram.
Raftækjaverksmiðjan hf.
höfðaði á sinum tima mál gegn
rafveitu Hafnarfjarðar vegna
ófullnægjandi birtingar á nýjum
rafmagnstaxta. Krafa Raf-
tækjaverksmiðjunnar var tekin
til greina i undirrétti, en Hæsti-
réttur hefur ekki dæmt i málinu.
„Við höfum skilið þetta þann-
ig að nýja gjaldskrá sé heimilt
að miða við staðfestingardag
iðnaðarráðuneytisins. Þessi
nýja gjaldskrá var staðfest af
iðnaðarráðherra hinn 29. ágúst
sl., en rafmagnsverðið hækkar
frá og með 1. sept. eins og gjald-
skráin segir,” sagði Steinar
Berg Björnsson, skrifstofustjóri
Rafmagnsveitu Reykjavikur, i
viðtali við DAGBLAÐIÐ. Hann
kvað allan gang þessara mála
vera þungan i vöfum. 1 stórum
dráttum er hann sá, að fyrst
leitar Rafmagnsveitan til
borgarstjórnar um heimild til
þess að sækja um hækkun. Að
þeirri heimild fenginni er siðan
sótt um til iðnaðarráðuneytis-
ins. Fáist jákvætt svar semjum
við gjaldskrá sem siðan þarf að
hljóta staðfestingu ráðuneytis-
ins. Loks þarf að birta gjald-
skrána lögum samkvæmt, en
þar er komið að ráðuneytinu.
Jóhannes Guðfinnsson,
deildarstjóri i iðnaðarráðuneyt-
inu, sagði I viðtali við DAG-
BLAÐIÐ, aði birtingarskyld er-
indi væru send útgáfu Stjórnar-
tiðinda þegar i stað eftir að þau
væru tilbúin til birtingar.
„Skiljanlegir annmarkar geta
verið á þvi að birting geti farið
fram svo til samdægurs,” sagði
Jóhannes. „A það getum við oft-
ast engin áhrif haft, ef það fellur
innan okkar verkahrings. Ég
held að útgáfa þeirra sé yfirleitt
eins hröð og þörf er á.”
Dagatalið segir okkur, að 29.
ágúst hafi verið föstudagur.
Þann dag er gjaldskráin stað-
fest af ráðherra. Hún fól I sér
10% hækkun á raforku til neyt-
enda. Samkvæmt framansögðu
var þessi gjaldskrá ekki birt i
Stjórnartiðindum fyrr en 9.
september.
Ýmiss konar raforkufrek
framleiðsla miðar verðlag við
kaupverð á raforku, enda þótt
leyfi þurfi til að koma. Meðal
annars þess vegna er eðlilegt og
nauðsynlegt að gætt sé vel lög-
boðinnar birtingarskyldu, hvað
sem verðlagi á rafmagni til
neytenda liður.
— BS-
Barnaf lokkar — unglingaflokkar. Flokkar fyrir fullorðna
einstaklinga. Flokkar fyrir hjón. Byrjendur og framhald.
Innritun daglega frá kl. 10-12 og 1-7.
Reykjavík
Brautarholt 3 simar 20345 og 24959.
Breiðholt. Kennt verður i nýju húsnæði
að Drafnarfelli 4 simi 74444.
Kópavogur
Félagsheimilið simi 84829.
Hafnarf jörður
Góðtemplarahúsið simi 84829.
Seltjarnarnes
Félagsheimilið simi 84829.
Unglingar
Allir nýjustu táningadansarnir — svo
sem Hustler, Bump (Boom), Kung Fu,
El Bimbo, Brazilian Carneval, Harlem
og margir fleiri.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
Kvik
myndir
SKAMMBYSSAN, - UND-
ANTEKNINGIN SEM
SANNAR REGLUNA
Austurbæjarbió. Skammbyss-
an. (The revolver) +
110 min. frönsk, itölsk, þýzk.
Litir.
Leikstjóri: Sergio Soilima.
Ég ætla ekki að reyna að
rekja efni þessarar myndar. Til
bess er hún allt of ruglingsleg og
yfirborðskennd. En þrátt fyrir
allan ruglinginn hef ég það á til-
finningunni að upphaflega hug-
myndin bak við handritið hafi
verið nokkuð góð. Þvi miður
hefur sú hugmynd týnzt i
vinnslu myndarinnar og má
kannski rekja það til þess að það
eru of margir aðilar sem standa
að myndinni og vilja ráða. Satt
bezt að segja skil ég ekki hvern-
ig Oliver Reed fékkst I aðalhlut-
verkið. Hann er það eina i
myndinni sem er einhvers virði.
En þrátt fyrir góðan leik og heil-
lega persónusköpun megnar
hann ekki að lyfta henni upp úr
skitnum. Mér finnst það hrein-
asta skömm hvernig bió, sem er
yfirleitt með gott myndaval,
getur fengið það af sér að bjóða
áhorfendum upp á svona sam-
sull. En vonandi er þessi mynd
einungis undantekningin sem
sannar regluna I myndavali
kvikmyndahússins. Upphaflega
ætlaði ég að gefa þessari mynd
minus en eftir að hafa hugleitt
málið ákvað ég að gefa henni
eina stjörnu fyrir leik Olivers
Reed og smáviðleitni sem örlar
á öðru hvoru.
Að lokum langar mig, að
gefnu tilefni, að minnast á þann
leiða sið kvikmyndahúsa að
sleppa þvi að sýna titla i enda
mynda. Af titlum fær maður oft
upplýsingar sem nauðsynlegar
eru til að hægt sé að fjalla um
mynd af sanngirni.
AFÞREYINGARMYND: EN
SKRAMBI ER
Nýja bió. The seven-ups. + + +
100 mín., bandarisk, gerð 1974,
TVC, de Luxe litir.
Leikstjóri: Philip D’Antoni.
Sérstök deild innan lögregl-
unnar, kölluð seven-ups, fæst
við að handtaka og draga fyrir
rétt glæpamenn sem eiga yfir
höfði sér 7 ára fangelsisdóma
eða meir. Tveir smáglæpa-
menn, sem þykjast vera lög-
reglumenn, fara að ræna stór-
glæpamönnunum og heimta fyr-
ir þá lausnargjald. Yfirmaður
seven-up deildarinnar (Buddy,
sem Roy Scheider leikur) kemst
að þvi hver stendur á bak við
ránin og myndin endar á þvi, að
höfuðpaurinn á yfir höfði sér
hræðilega refsingu.
Þéssi mynd er gott dæmi um
afþreyingar- eða skemmtimynd
og þar að auki skrambi vel gerð.
Atburðarásin er ágætlega upp-
byggð (eftir tilganslausan for-
mála I antfkverzlun) og flest
brögð notuð til að ná fram
stemningu. Það sem einna mest
er notað eru hraðar klippingar
og úthugsuð myndhorn. Einnig
er hljóðrásin tiltölulega vel unn-
in. Fyrir bilaáhugamenn er einn
herjans mikill kappakstur á
götum New York. Félagar i
Kvartmiluklúbbnum sækja
sjálfsagt mikinn lærdóm i það
atriði. Annars er kappaksturinn
sérstaklega vel útfærður tækni-
lega. Þetta er góð afþreyingar-
mynd og vel þess virði að sjá
hana.