Dagblaðið - 25.09.1975, Side 13
meistarar Vík-
efna í úrslitin
þaö síöara aðeins 30 sekúndum fyrir
leikslok — Vikingssigur i höfn og Vals-
menn sátu eftir með sárt ennið.
Islandsmeistarar Víkings eru með
mjög skemmtilegt ungt lið — lið, sem
aðeins getur orðið betra. Páll Björg-
vinsson er potturinn og pannan i öllu
spili liðsins. Hann skoraði 4 mörk.
Markhæstur Vikinga var þó Viggó Sig-
urðsson með 5. Magnús Guðmundsson
skoraði 4, Jón Sigurðsson, Stefán
Halldórsson og Þorbergur Aðalsteins-
son skoruðu eitt mark hver.
Hjá Val var Jón Karlsson drýgstur
með 4 mörk — en hann var tekinn úr
umferð i fyrri hálfleik og skoraði ekk-
ert eftir það. Guðjón, Jón P., Þorbjörn
og Bjarni Gunnarsson skoruðu eitt
mark hver.
„Gamla Fram seiglan er horfin,”
sagði hallargestur i gærkvöldi eftir að
Framarar höfðu misst sex marka for-
skot niður i jafntefli gegn IR, 16-16.
Framarar eru nú búnir að tapa
þremur stigum og litlar likur á að
þeim takist að verja Reykjavikur-
meistaratitilinn i ár.
Nú, en leikurinn i gærkvöldi bauð
ekki upp á nein tilþrif — sér I lagi var
fyrri hálfleikur lélegur. Mistök á mis-
tök ofan. ÍR-ingar byrjuðu vel, komust
I 4-1 en Framarar jöfnuðu 4-4 og kom-
usU 8-6 i hálfleik.
Siðari hálfleikur var mun betur leik-
inn — meiri yfirvegun og boltanum
haldiðlengur. Framarar héldu áfram
aðauka forskotsitt og um miðjan hálf-
leikinn voru þeir komnir meö sex
marka forskot — 13-7. Pálmi Pálma-
son var drýgstur Framara, ógnandi og
hélt spilinu gangandi. En þær 15 min-
útur, sem eftir voru, fór allt i baklás
hjá Fram, neistinn i leik liðsins hvarf.
Tóku IR-ingar að saxa á forskotið og
var þar drýgstur Vilhjálmur Sigur-
geirsson. Skoraði hvert markið á fætur
öðru — og staðan orðin 13-14. Þegar
aðeins 30 sekúndur voru eftir höfðu
Framarar eitt mark yfir, einum
manni fleiri og með boltann i þokka-
bót! En á mjög klaufalegan hátt
misstu þeir boltann — ÍR-ingar brun-
uðu upp. Dæmt viti og Villi jafnaði, 16-
16. —h.h
um í vandrœðum"
r
Celtic í gœr. Oskar Tómasson'mikið í skozku blöðunum
hélt Jóhannes áfram. En leikur
okkar var slakur — munar miklu
að McGrain getur ekki leikið vegna
meiðsla. Jock Stein er byrjaður að
mæta á æfingar. Hann er miklu
bctri og ég er viss um, að hann
breytir miklu.
Ég sá i blöðunum I morgun
myndir og greinar um Óskar Tóm-
asson — sagt frá þvi, að hann hafi
komið með Dundee Utd i gær. Það
héfur vakið talsverða athygli hér.
Við leikum við Dundee Utd. á laug-
ardag, sagði Jóhannes að lokum.
Óvænt úrslit urðu i deildarbik-
arnum I gær. Montrose sló Hiberni-
an út. Vann 3-1 eftir framlengingu
og 3-2 samanlagt. 2-1 stóð eftir
venjulegan leiktima. Queen of the
South og Rangers gerðu jafntefii 2-
2, einnig eftir framlengingu. 2-1 eft-
ír venjulegan leiktima, en
McDonald jafnaði fyrir Rangers i
framlengingunni. Rangers vann
þvi samanlagt 3-2. Clydebank vann
Partich 1-0, en það nægði ekki.
Ekki hefur verið dregið um, hvaða
liö leika i undanúrslitum „vona að
viö sleppum viö Rangers”, sagði
Jóhannes „fáurn þá i úrslitaleikn-
#• V f •• IE•
Yfirgafu vollinn
með tór í augum
eftir að Alec Stepney hafði „gefið" Englandsmeisturunum
Derby bœði stigin í gœrkvöldi. Derby vann Manch. Utd. 2-1
og QPR nóði við það efsta sœti í 1. deild
Reyndasti leikmaður Manch.
Utd., enski landsliðsmarkvörður-
inn Alec Stepney, lét sig falla
niður á hnén — byrgði andlitið i.
höndum sér, algjörlega bugaður,
I lok leiks Manch. Utd. við Eng-
landsmeistara Derby á Baseball
Ground i Derby i gærkvöldi. Rétt
áður höfðu honum orðið á mestu
mistök i litrikum leikferli. Hafði
varið knöttinn frá Kevin Hector —
kastaði honum út beint til mót-
herja, Charlie George, sem þakk-
aði gott boð og sendi boltann i autt
markið. Það var sigurmarkið I
leiknum og fjölmargir aðdáendur
Manchesterliðsins gengu af leik-
velli með tárin I augunum. Stig
hafði glatazt á ótrúlegan hátt og
um leið forusta i 1. deildinni
ensku.
Stepney var „brotinn” maður
eftirleikinn — en áður hafði hann
staðið sig frábærlega vel. Beinlin-
is haldið liði sinu á floti. Hið unga
lið United byrjaði leikinn með
miklum hraða, sem kom hinum
reyndu leikmönnum Derby úr
iafnvægi. Fyrstu 20 min.
máttu þeir hafa sig alla við aö
halda marki sinu hreinu. En siðan
jafnaðist leikurinn og Derby náði
forustu á 31. min. með marki
George af 25 metra færi. Sókn
Derby varð þung eftir markið —
en Stepney varði hvað eftir annað
snilldarlega. United náði aftur
tökum á leiknum og 8 min. fyrir
leikslok jafnaði Gerry Daly. Jafn-
tefli virtist i höfn — en svo komu
mistökin miklu.
Heimatap
í UEFA-
bikar
Sliema Wanderers, lék á
heimavelli i gær við Sporting,
Lissabon, og tapaði 1-2. Það var
fyrri leikur liðanna i UEFA-
keppninni. Ahorfendur 5000.
Marinho skoraði fyrsta mark
leiksins á 36. min., en Azzopardi
jafnaöi fyrir Sliema á 66. min. A
lokaminútu leiksins skoraði
Fernandez sigurmark
portúgalska liðsins.
Sviss hélt
Tékkunum!
Vítaspyrna fimm minútum fyr-
ir leikslok gerði að verkum, að
Sviss náði jafntefli i landsleik við
Tékkóslóvakiu i Brno i gær. Risi
skoraði úr vitinu og úrslit urðu 1-
1. Ahorfendur voru 18 þúsund og
voru afar óánægðir með leik tékk-
neska liðsins — Marian Masny
skoraði eina mark þess á 52. min.
' Við sigur Derby skauzt QPR
upp i efsta sæti 1. deildar á betri
markatölu en Manch Utd. og
West Ham — sem leikið hefur ein-
um leik minna. öll liðin hafa 13
stig. Derby er í fjórða sæti með 12
stig, Einn leikur annar var háður
i 1. deild. Manch. City vann Stoke
á Maine Road í Manchester 1-0 og
skoraði Rodney Marsh markið á
66, min. Leik Tottenham og
Everton var frestað. I deilda-
bikarnum á þriðjudag vann
Everton Arsenal 1-0 i Lundúnum.
Tveir leikir voru i deilda-
bikamum i gær. West Ham átti i
vök að verjast iBristol gegn City,
sem lék mjög vel i f.h. Cheesley
skoraði i hálfleiknum, en Pat Hol-
land, með snilldarleik kom WH á
sporið i þeim siðari. Lundúnaliðið
skoraði þá 3 mörk á 6 minútum —
öll eftir undirbúning Hollands.
Trevor Brooking, Clyde Best og
Alan Taylor skoruðu og WH vann
3-1. Leikur við Darlington heima i
næstu umferð. Þá vann Fulham
WBA 1-0 og skoraði Alan Mullery
markið úr viti tveimur min. fyrir
leikslok. Leikur heima gegn
Peterbro i næstu umferð — en
Everton heimaleik gegn Carlisle.
1 2. deild urðu úrslit þessi:
Blackburn-Blackpool 0-2
Luton-Plymouth 1-1
Nottm.For.-Charlton 1-2
Bobby
Charlton
sölustjóri!
Bobby Charlton, sem ný-
lega hætti sem fram-
kvæmdastjóri Preston eftir
deilur við félagsstjórnina,
réðist i gær sem sölustjóri
hjá ferðaskrifstofu — ákveð-
inn i að hætta afskiftum af
knattspyrnu.
Risinn I Vlkingsliöinu, Magnús Guðmundsson, kastar sér inn á Llnu og
skorar úrslitamark leiksins. „Gamli” Vikingurinn Guðjón og Jón
Karlsson horfa agndofa á. Ljósmynd DB — Bjarnleifur.
Viö þurfum að skipu’
Þetta var gott, Bommi
-------, næsti. ^
Og auka ^ sjáum hvort þiö.
hraðann,Þjálfi getið ekki aukiö
deggja nýja leikaðferð
hraðann
© Kmg Feature* Syndicate. Inc., 1974. World right* reeerved.