Dagblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 24
V-þýzkur ráðherra:
„Afléttum löndunarbanni
fáist viðunandi skilyrði"
— fyrir framhaldi samninga
Útfærslan i 50 milur hefur
valdiö minnkun á afla Þjóöverja
viö Island, segir vestur-þýzki
matvælaráðherrann. Aflinn var
.aö meöaltali 120 þúsund tonn á
ári á árabilinu 1962—1971. Árið
1972 fór aflinn niður i 94 þúsund
tonn og alit niður i 90 þúsund
tonn i fyrra.
Ráðherra kallaði aðgerðir ís-
lendinga ólöglegar. Þær hefðu
valdið mikilli kostnaðarhækkun
fyrir vestur-þýzka togaraút-
gerð, sem berðist i bökkum. V-
þýzka rfkið mundi áfram
styrkja veiðarnar með fjár-
framlögum.
Þá minnti hann á, að eftirlits-
skipin „væru togurunum til
hjálpar gegn árásum islenzkra
varðskipa”. Vestur-þýzku tog-
aramir hefðu að meiri hluta
fengið afla sinn við ísland innan
50 milna. Veiðar, sem væru að-
eins á svæðinu milli 50 og 200
mflna væri óhagkvæmar. Með
útfærslu i 200 milur mundu Is-
lendingar hins vegar rjúfa þá
„keðju veiðisvæða”, sem væri
Þjóðverjum nauðsynleg. Rikis-
stjórnin i Bonn stefndi sem fyrr
að þvi, að eigin togarar öfluðu
nægilegs magns til að fullnægja
eftirspurn i V-Þýzkaiandi.
Rikisstjómin hefði áhuga á, að
Islendingar kæmu með fisk til
V-Þýzkalands til að bæta upp
það, sem tapaðist, en til þess
þýrfti samninga. Löndunar-
bannið yrði þegar i stað afnum-
ið, ef sæmileg skilyrði fengjust
fyrir framhaldi samningavið-
ræðna milli V-Þjóðverja og
lslendinga, sagði ráðherra.
V-Þýzka rikið mun halda
áfram að styrkja útgerð til að
endurnýja skip.
Ráðherra ræddi um mögu-
leika á, að riki almennt mundu
færa út efnahagslögsögu i 200
mflur innan tiðar. —HH
SJÖ ARA,-
MÁLAR OG
SELUR Á
GÖTUNUM
Ef þið rekizt á ungan mann,
á að gizka sjö ára gamlan,
niðri I bæ að selja málverk, þá
er það að Ölium likindum
Sverrir Heiðarsson.
Sverrir hefur fengizt við það
undanfarna 2—3 mánuði að
selja verk eftir sjálfan sig og
einnig eftirprentanir, sem
hann fær hjá nágranna sinum,
sem starfar við innrömmun.
Er við ræddum við hann fyrir
skömmu sagðist hann vera
búinn að selja allnokkur verk.
Hann fær 2-300 krónur fyrir
hverja eftirprentun, sem hann
selur, og einnig hefur hann
fengið um 200 kr. fyrir mynd-
irnar sinar. — Hvað hann
gerði við peningana? Jú, hann
keypti sér flugdreka. —ÁT—
Sverrir Heiöarsson fyrir framan vinnustofu sfna. Meö á myndinni er skóiabróöir hans úr isaksskóla
DB-mynd: Björgvin Pálsson.
öwi&tfa
R*iknlnaúf nr.
2509-2
086 7-í.m’
lil.-'l •Í.IBMó'fDSr.
(A«»< Við fimoaJ b»r t>b Af«f{a<i ffamviounai
IroUinnar I Raykjayllí
i* AGUST 1915
Raltur fyrir tölvmkrKt — Hér lyfir neSan roi hvorkt skrlla né ttimpla
Upph«ð
TékktnV.
lUnki-Hb
Tollreglur og
ðryggi í bílum
fer ekki saman
0804454+ 20< 000126> 025092 +
Eins og sjá má á myndinni er þannig gengiö frá giugganum að járn
plata er sett yfir hliðarrúöuna fyrir aftan ökumann og farþega.
Hvers vegna mega ekki vera
gluggar á skilrúminu, sem skil-
ur að bilstjóraplássið og
farangursrýmið á sendibilum?
Þessa spurningu lögðum við
fyrir einn af starfsmönnum
Bifreiðaeftirlits rikisins. Hann
svaraði þvi til, að veittur væri
300.000krónááfsláttur á aðflutn-
ingsgjöldum þeirra bila, sem
ekki hefðu glugga. Hvers vegna
það væri gert, vissi hann ekki,
en taldi vist, að þetta væri ein-
hver gömul og úrelt klausa i
tollalöggjöfinni.
Viða erlendis er það skylda að
hafa glugga sem þessa á bilun-
um, en nú sem endranær virðist
landinn vera i seinna lagi til að
átta sig.
Bifreiðaeftirlitsmaðurinn
lýsti sig sammála blm. um að
þessir gluggar væru i rauninni
öryggistæki, og þessu máli
þyrfti að kippa i liðinn fyrr en
seinna. —AT
LÁTIN FYRIR ÞREM ÁRUM, -
FÆR NÚ ENDURGREIÐSLU
Henni er ekki alls varnað,
Gjaldheimtunni okkar bless-
aðri. Hún lætur sér ekki nægja
að senda Iátnu fólki reikninga,
heldur dreifir hún einnig inn-
eignum eftir álagningu til
löngu liðinna gamalmenna.
DAGBLAÐINU barst i
hendur ein slik ávisun, sem út-
gefin er 1. ágúst siðastliðinn.
Konan, sem átti að leysa út
peningana, lézt fyrir þremur
árum og er þvi ekki alveg til-
búin að veita þeim .viðtöku.
Hún hafði, að sögn furðu lost-
inna aðstandenda, engar tekj-
ur siðustu árin, sem hún lifði,
nema ellistyrkilnn sinn og éft-
irlaun frá starfsmannasjóði
Reykjavikur. Hún átti engar
eignir.
Aðstandendur konunnar
segjast ekki hafa gott sam-
band við riki hinna liðnu, og
póstþjónustan vildi ekki taka
ábyrgð á að bréfið kæmist til
skila. Þess vegna leituðu þeir
til umboðsmanna himnarikis
á jörðunni, en þeir þvoðu
hendur sinar af soddan gern-
ingum, — sögðust bara visa
veginn. — AT—
UNNAR KJÖTVÖRUR HÆKKA
Unnar kjötvörur munu senni-
lega hækka i' næstu viku. Verð-
hækkunin leiðir af þeirri miklu
'hækkun, sem varð á kjöti fyrir
skömmu, en verður vafalitið eitt-
hvað minni.
Verðlagsstjóri sagði I morgun,
að enn hefði ekki verið reiknað,
hve mikil þessi hækkun mundi
verða. —HH
frjálst, nháð dagblað
Fimmtudagur 25. september 1975.
Á 80 km hraða
ó Akureyrar-
strœtum
20 teknir fyrir of
hraðan akstur
Þeir óku nokkuð hratt bil-
eigendur á Akureyri i gær.
Lögreglan þar var með radar-
mælingar á fjórum götum,
Þórunnarstræti, Þingvalla-
stræti, Glerárgötu og
Tryggvagötu og voru 20 öku-
menn kærðir fyrir að aka of
hratt.
Reyndar telur lögreglan að
sumir þeirra að minnsta kosti
hafi stigið bensinið i botn, þvi
þeir sem hraðast óku mældust
vera á 80 km hraða á klst. en
hinir óku á 68—72 km hraða á
klst. Það þykir lögreglumönn-
um á Akureyri allt of mikið á
þröngum strætum Akureyrar.
„Hér eru engar breiðgötur
eins og i Reykjavik,” sagði
lögreglumaðurinn sem við töl-
uðumvið. —ASt
VILJA EKKI UNA
90 DAGA
VARÐHALDI
Annar mannanna sem lög-
reglan i Kópavogi handtók i
Apóteki Kópavogs i byrjun
vikunnar var mikill „vinur”
lögreglunnar i Reykjavik.
Hann.var i gær úrskurðaður i
90 daga varðhald fyrir sibrot i
Reykjavik. Þennan úrskurð
hefur maðurinn nú kært, en sú
kæra mun ekki hafa áhrif á
gang mála hjá rannsóknarlög-
reglunni varðandi meint eldri
afbrotmannsins. —ASt.
Játuðu
innbrot
sem
lögreglan
vissi
ekki um
Rannsóknarlögreglan i Kefla-
vik hefur upplýst tvö innbrot,
sem framin voru i kaupstaðnum
fyrir og um siðustu helgi. Hafði
annað innbrotanna ekki verið
tilkynnt lögreglunni þegar
rannsóknarlögreglan var með
játningu pilta er höfðu framið
það.
Á fimmtudagskvöldið var
brotizt inn i Kaupfélagið og það-
an stolið 19-20 þús. kr. og nokkru
af vindlingum. Það innbrot var
þegar tilkynnt lögreglunni.
Á sunnudagskvöld var brotizt
inn I verzlun Nonna og Bubba og
stolið þaðan um 15 þús. kr. og 20-
30 lengjum af vindlingum. Það
innbrot var ekki tilkynnt, þó
þess hefði orðið vart.
Rannsóknarlögreglan hand-
tók tvo unga pilta vegna fyrra
innbrotsins og hafa þeir játað
sekt sina — og einnig játuðu þeir
siðara innbrotið, sem lögreglan
vissi þó ekki um. —ASt.