Dagblaðið - 26.09.1975, Blaðsíða 3
Dagblaðið. Föstudagur 26. september 1975.
3
Á 12. hundrað manns starfar
í 30 bankadeildum í Reykjavík
Bankafólk að störfum i Múlaútibúi Landsbankans.
A tólfta hundrað manns
starfar að bankastörfum i
Reykjavik og bankar og útibú
þeirra eru alls 27 i borginni, auk
þriggja sparisjóða og gjald-
eyrisdeildar og veðdeildar sem
eru sjálfstæðar stofnanir innan
Landsbanka íslands. Dagblaðið
gerði skyndikönnun á starfs-
mannafjölda bankanna og kom
eftirfarandi i ljós:
Ari Guðmundsson, starfs-
mannastjóri Landsbanka
Islands, sagði að Landsbankinn
ræki bankastarfsemi á 7 stöðum
i borginni og samtals starfaði
við þær 441 starfsmaður. Auk
þess störfuðu 33 samtals hjá
Veðdeildinni og gjaldeyrisdeild
bankanna.
Reynir Jónasson, starfs-
mannastjóri útvegsbankans,
kvað 175 manna starfa i aðal-
bankanum og útibúum hans á
Hlemmtorgi og i Glæsibæ. Þar
af störfuðu 25 manns hjá Fisk-
veiðasjóði, en þeir fengju greidd
laun frá aðaibankanum, sem
Fiskveiðasjóður endurgreiddi
siðan.
1 VerzlunarbankanUm og úti-
búum, sem eru tvö auk af-
greiðsludeildar i Umferðarmið-
stöðinni, starfa 58 manns að
sögn Árna Bjarnasonar sem
annast starfsmannahald.
1 Búnaðarbankanum sem
starfar alls á 5 stöðum i
borginni, unnu um sl. áramót
alls 148 manns og sagði Stefán
Pálsson starfsmannastjóri að
starfsmannafjöldinn hefði verið
svipaður sl. 2-3 ár.
Iðnaðarbankinn rekur starf-
semi sina á 4 stöðum og vinna
alls á vegum bankans 53 i fullu
starfi og 7 i hálfsdagsstarfi, að
sögn Vals Valssonar aðstoðar-
bankastjóra.
Alþýðubankinn rekur ekkert
útibú, en það mál mun þó vera
komið til umræðu, en i bank-
anum starfa alls 29 manns og er
þá meðtalið sumarfólk að sögn
Gisla Jónssonar starfsmanna-
stjóra.
Stefán Þórarinsson i Seðla-
bankanum sagði að þar væru 96
fastráðnir starfsmenn og 17
lausráðnir, en þeir lausráðnu
vinna þar að staðaldri og verða
á næstunni meðal fastráðinna.
Seðlabankinn rekur ekkert
útibú og er að þvi leyti á sama
báti og Alþýðubankinn, enda
skiptir Seðlabankinn ekki við
einstaklinga heldur aðeins
banka.
Auk þessara banka, sem nú er
getið, rekur Samvinnubankinn
tvær bankadeildir i Reykjavik.
Útilokað var að ná simasam-
bandi við starfsmannastjóra
bankans i gær, en við gizkum á
að þar vinni um 40 manns. Með
þvi er talan i öllum banka-
deildum höfuðborgarinnar
komin upp i 1100.
Þá eru ótaldir sparisjððir
þrir, Sparisjóður Reykjavikur
og nágrennis, Sparisjóður
vélstjóra og Sparisjóðurinn
pundið, svo bankastarfsfólk i
Reykjavik er nokkuð á tólfta
hundrað. I þeirri tölu eru aðpins
þeir, sem að beinum banka-
störfum vinna, allt annað fólk,
sem á vegum bankanna starfar,
s.s. mötuneytisstarfsfólk og t.d.
hreingerningafólk, er þar fyrir
utan.
—ASt.
SNYRTIAÐSTAÐA Á HLIMMTORGI
— og biðskýlið stœkkað
Rannsókn lokið —
mólið til saksóknara
„Biðskýli verður stækkað og
snyrtiaðstaða komin á Hlemm-
torgi fyrir miðjan næsta mán-
uð,” sagði Eirikur Ásgeirsson,
forstjóri Strætisvagna Reykja-
vikur I viðtali við DAGBLAÐIÐ.
„Lokið er við að hanna gler-
húsið, sem þar á að koma.
Lokaathugun á þvi verður gerð
mjög bráðlega og bygging gæti
hafizt á útmánuðum,” sagði
Eirikur ennfremur.
Þriðji nýi Volvo-vagninn, sem
yfirbyggður var i Belgiu, fer á
leið 12 innan tiðar. Þá eru þrir
slikir komnir i umferð, en tveir
eftir óleystir út úr vörugeymsl-
um hér. Þá er von á 5 nýjum
Mercedes-Benz bllum um mán-
aðamótin október—nóvember.
Þeir eru einnig yfirbyggðir I
Belgíu. Hafa þessar yfirbygg-
ingar reynzt mjög vel.
„Vonandi verður þetta og
annað,sem er I undirbúningi, til
þess að fólk ferðist meira með
strætisvögnum. Bæði er það
peningasparnaður fyrir alla
Bill og ljósastaur lentu saman i
fyrrakvöld kl. rúmlega 8. Slysið
varð á Vogatungu og viðskiptun-
um lauk með miklum skemmdum
Kvenstúdentafélag Islands
hefur nú um árabil beint starf-
semisinni aðfjáröflun til styrktar
námskonum og hefur allriflegum
upphæðum verið úthlutað til
einstakra námskvenna. Nú hefur
verið ákveðið að hverfa frá
þessari hefð en i staðinn verður
stefnt að þvi að festa kaup á ibúð,
sem leigð yrði stúdinu á vægu
verði.
Aðalfjáröflunarleið félagsins
hefur verið hin árlega tizku-
sýning. 1 ár verður hún haldin
sunnudaginn 19. okt. i.Súlnasal
Hótel Sögu, kl. 3e.h. Einnig hefur
verið efnt til flóamarkaðar að
Hallveigarstöðum. Einn slíkur
verður þ. 4. októbern.k. Skorað er
neytendur og styrkir rekstrar-
grundvöll Strætisvagna Reykja-
vikur,” sagði Eirikur.
Gamla B.P. skúrnum, sem nú
er eina afdrepið fyrir farþega á
Hlemmtorgi, verður breytt að
hluta i salerni og snyrtiaðstöðu.
Gamia Hreyfilshúsið, sem nú er
bækistöð fyrir stjórnun vagn-
anna og bifreiðastjóra, verður
að hluta tekið undir biðskýli.
Verða settar dyr á vesturhlið
hússins fyrir það, en i skrif-
stofuhúsið við Rauðarárstig fer
sá hluti starfseminnar sem úr
Jlreyfilshúsinu flytur.
Þessar breytingar á húsnæði
gerir Ahaldahús borgarinnar.
Vegna anna, m.a. við skólahús-
næði og húsbúnað, hefur ekki
unnizt timi til þessara fram-
kvæmda fyrr en nú.
Hér er um að ræða bráða-
birgðaráðstafanir, þar til unnt
er að flytja skrifstofur Strætis-
vagnanna inn á Kirkjusand. Þá
fæst allt Hreyfilshúsið undir
á bilnum. Hér var ekki um ölvun
að ræða eða aðrar annarlegar á-
stæður, heldur hreint óhapp.
á allar konur að bregðast skjótt
við og kanna geymslur sinar og
hver þau húsakynni, þar sem
leynast kynnu föt og munir sem
ekki er lengur brúk fyrir. Allar
frekari upplýsingar um
markaðinn má fá hjá
eftirtöldum:
Heklu Pálsdóttur, simi 82587,
Guðriði M. Thorarensen, simi
19961,
Bergljótu Halldórsdóttur, simi
14982.
Félagið gengst fyrir opnu húsi
fyrsta miðvikudag hvers
mánaðarað Hallveigarstöðum kl.
3 til 6. Allar félagskonur eru
eindregið hvattar til að lita þar
inn til skrafs og ráðagerða.
biðskýli og snyrtiaðstöðu, en
það hús getur staðið á meðan
glerhúsið verður reist, en
stjórnunin flyzt þá öll á meðan i
skrifstofubygginguna.
Grein i dagblaðinu Visi i dag,
sem að meginefni til er
aðdróttun um skjalastuld, getur
orðið nokkurt umhugsunarefni
öllum sæmilegum mönnum.
Þessi „frétt”, ein allra greina
blaðsins, er ómerkt upphafs-
stöfum höfundar, eins og leiðar-
inn. Þessi klausa er væntanlega
kveðja fyrrverandi samstarfs-
manna undirritaðs I stjórn
Reykjaprents h.f. þ.e. þeirra
þriggja sem nú mynda svo-
kallaðan meirihluta stjórnar-
innar. Allir þessir menn voru
viðriðnir það vandræðatimabil,
þegar rekstur Visis var i bull-
andi tapi og höfuðstóll öfugur
um nokkrar milljónir.
Þegar þeir nú kjósa að ata
auri fyrrverandi framkvæmda-
stjóra félagsins, eða að minnsta
kosti bera ábyrgð á skrifum i þá
átt, hafa þeir i höndum nýtt
reikningsyfirlit um rekstur
þessa árs, eða þar til undirritað-
ur hætti störfum. Hagnaður
félagsins hefur aldrei verið
meiri og þótti sumum hann þó
nægur fyrir. Má hiklaust full-
yrða að eignir Reykjaprents h.f.
nemi nú um 100 — eitthundrað
milljónum króna t- i fasteignum
og fjármunum. Þetta veganesti
ætti að vera nægilegt núverandi
ráðamönnum félagsins til að
„hafa efni á” að stunda heiðar-
íega samkeppni við nýtt dag-
blað, án þess að þurfa að eyða
kröftum sinum i að reyna að
sverta mannorð þeirra, sem við
er keppt. Drengilegar baráttu-
aðferðir skila sér alltaf betur en
rógur og ósannindi.
1 tilvitnaðri klausu um „Visis-
Eins og DAGBLAÐIÐ skýrði
frá um daginn var lögreglan á
Neskaupstað kærð fyrir likams-
meiðingar. Bogi Nilsson, fulltrúi
sýslumanns á Akureyri, hefur
haft rannsókn með höndum. 1
samtali við blaðið i morgun sagði
skjöl” hefur höfundi alveg láðst
að geta þess, kannski visvit-
andi, að i skrifstofu minni voru
geymd og að sjálfsögðu skilin
eftir öll fylgiskjöl félagsins frá
þvi árið 1968 til siðustu áramóta.
Oll þessa árs fylgiskjöl voru
komin til endurskoðanda félags-
ins vegna uppgjörs þess, sem
áður er að vikið. Fyrst fylgi-
skjölin voru ekki „numin á
brott” hvaða skjöl er þá átt við?
Þegar undirritaður hætti störf-
um á dagblaðinu Visi varð það
að samkomulagi milli okkar
Þóris Jónssonar að ég gerði
grein fyrir ýmsum atriðum er
reksturinn varða, þegar leitað
yrði eftir. Það hefur aldrei verið
neitt ágreiningsmál að ég taldi
mig þurfa að yfirfara ýmis bréf
og minnisblöð, sem safnazt
höfðu 1 hirzlur minar á siðast-
liðnu sjö ára timabili. Og tæpast
láir mér þaö neinn þótt ég vildi
tryggja mér aðgang að þessum
gögnum fremur en að láta
„félaga” mina meðhöndla mig i
þeim efnum með sama hætti og
Jónas Kristjánsson ritstjóra er
þeir skiptu um skrá á vinnu-
herbergi hans meðan hann var
i sumarfrii og ráku hann siðan.
Jónas hefur ekki enn fengið að-
gang að skjölum sinum og
kannski sviður mönnum það að
geta ekki viðhaft sama hátt á að
þvi er mig varðar. Þar sem
ýmis vandamál i sambandi við
einstök atriði er varða félögin
Reykjaprent h.f. og Járnsiðu
h.f. hafa verið borin á torg af
þeim félögum þarf það engan
að undra, sem með þvi hefur
fylgzt, þótt meðhöndla verði
Bogi að rannsókn væri lokið og
næsta stig að senda málið til
rikissaksóknara. Ekkert frekar
vildi Bogi tjá sig um málið á
þessu stigi — mál sem þessi væru
alltaf viðkvæm I litlu bæjarfé-
lagi.
með gát ýmis gögn er þessi
félög varða. Er þá átt við, að
tryggt sé, að þau gögn, er Járn-
siðu h.f. tilheyra, lendi á réttum
stað, og hin, er Reykjaprent h.f.
varða, lendi þar sem þau eiga
að vera. Jafnvel þetta ætti þeim
félögum að vera ljóst, þótt vel-
vildinni sé litt fyrir að fara. Þá
skulu menn ekki gleyma þvi að
undirritaður er enn stjórnar-
maður i Reykjaprenti h.f., svo
tæplega verður litið svo á, að
um fjalli óviðkomandi maður.
Það furðulegasta i þessu máli
er svo það, að i gær, 24/9 1975,
hafði Þórir Jónsson forstjóri
samband við undirritaðan og
sagðist hafa tekið saman lista
yfir ýmsar upplýsingar, sem
hann taldi i minni vörzlu og
hann þyrfti að fá. Samdist okkur
svo um, að hann sendi mér list-
ann heim til min i gærkveldi,
hvað hann og gerði, en við hitt-
umst siðan i dag til að afgreiða
málið Næst gerist það að ég les
i Visi, að ég sé meiriháttar
skjalaþjófur, eða hvernig ber á
annan hátt að skilja aðdróttanir
VIsis i dag? Er þarna kannski
einhver að verki, sem ekki vill
þola að „Visismálið” verði ekki
enn verra en orðið er og sendir
mér þvi þetta „drengilega”
skeyti frekar en ekkert. Eru
fylgjendur hinnar frjálsu sam-
keppni, samkvæmt eigin yfir-
lýsingum, að reyna að skaða
samkeppnisaðila með þessum
hætti? Sennilega afgreiða les-
endur blaðanna slik vinnubrögð
á viðeigandi hátt.
25. september 1975
Sveinn R. Eyjólfsson
Bíll og Ijósastaur
—ASt.
KVENSTÚDENTAFÉLAGIÐ
HYGGUR Á ÍBÚÐARKAUP
— til að leigja stúdínu ó vœgu verði
- BS -
Um Vísisskjöl