Dagblaðið - 26.09.1975, Síða 24
LagearfIjótsvirkjun formlega opnuð:
Vatnsleysi hafði nœr
komið í veg fyrir opnun
Þaö var mjótt á mununum að
hægt yrði að opna Lagarfljóts-
virkjun i gær vegna vatnsleys-
is. 1 fyrrakvöld var hægt að
ganga þurrum fótum yfir farveg
árinnar uppi viö virkjun, en svo
kom smá dreitill i ána, — svona
rétt til að hægt væri að blanda
vigsluviskiið, eins og einn gest-
anna komst að orði.
Vélum virkjunarinnar er
stjórnað frá Grimsárvirkjun og
varð þvi að hafa simasamband
þangað til aðfá þær ræstar.Það
var Gunnar Thoroddsen, orku-
málaráðherra, sem fyrstur lyfti
tólinu og stuttu siðar fóru allar
vélamar i gang.
Þessi virkjun er mikilvægur
áfangi fyrir Austfirðinga, sem á
undanförnum árum hafa biíið
Jón D. Þorsteinsson verkfræö-
ingur hjá Rafmagnsveitum
rikisins hringir i Grimsár-
virkjun, en þaðan er vélum
Lagarfijótsvirkjunar fjarstýrt.
við allra manna versta raf-
magnsþjónustu. En þó að furðu-
legt megi virðast, virtust
heimamenn ekki siður vera
hrifnir af laxastiga einum mikl-
um sem rafmagnsveiturnar sáu
um að leggja. Einnig verður öll
gæzla og viðhald á stiganum i
höndum rafmagnsveitnanna, og
mun það vera f fyrsta skipti,
sem þær annast slíka þjónustu.
t hófi, sem haldið var á Egils-
stöðum eftir vigsluna, luku
heimamenn miklu lofsorði á
þetta framtak rafmagnsveitn-
anna, og kváðust binda miklar
vonir við stigann i framtiðinni.
—ÁT—
Stöðvarhás Lagarfljótsvirkjunar.
Flugfargjöld hœkka enn
Alltaf von-
góður en
ekki sigur-
viss
,,Ég var alltaf vongóður en ekki
sigurviss,” sagði séra Guðmund-
ur öskar Ölafsson, að aflokinni
kosningunni i Nesprestakalli.
,,Það er ósköp mikill léttir, þegar
þetta er frá. Ég þakka hjartan-
lega öllum, sem lögðu á sig fyrir-
höfn i þessari kosningu. Ég hugsa
til að starfa eins og ég hefi vit og
getu til,” sagði séra Guðmundur
Óskar Ólafsson að lokum. Séra
Guðmundur óskár er kvæntur
Ingibjörgu Hannesdóttur,
Einarssonar, fasteignasala I
Reykjavik. Eiga þau eina dóttur
barna, 14 ára gamla.
Myndin hér að ofan var tekin að
kvöldi kjördags. Séra Guðmund-
ur Óskar stendur við hlið Óskars
Friðrikssonar, sem veitti forstöðu
kosningaskrifstofu hans i KR-
heimilinu.
Séra Guðmundur óskar (til
hægri á myndinni) ásamt
Óskari Friðrikssyni, sem stýrði
kosningabaráttunni. (DB-mynd
Björgvin).
— um 5% 1. nóvember
Flugfargjöld milli Islands og
Evrópu munu hækka 1. nóvember
nk. um 5%. Þýðir það að haust-
fargjöld, sem nú eru i gildi munu
á leiðinni Rvik-Höfn-Rvik hækka
um 1704 kr. og kosta 35.712 kr. en
sumarfargjöld á sömu leið munu
hækka um 2608 kr. og verða 54.624
kr. Samsvarandi hækkanir á far-
gjaldi til og frá Luxemborg munu
verða 1905 kr. á haustgjaldinu og
2928 kr. á sumargjaldinu og kost-
ar þá fargjald þangað 39.990 að
haustlagi en 61.488 að sumarlagi.
Á öll þessi gjöld bætist svo 2500
kr. flugvallarskattur.
Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugleiða staðfesti þessa
frétt er Dagblaðið ræddi við hann
um þessi mál. 1 júlihefti „Air
Tariff” er greint frá ákvörðunum
um fargjaldahækkanir og
lækkanir sem ákveðnar voru á
ýmsum flugleiðum i Evrópu á
„Þaö hefur aldrei komið til tals.
Þetta er tóm vitleysa,” sagöi Al-
freð Eliasson, forstjóri, Flugleið-
um, I viðtali við Dagblaðið um
fréttir um, að félagar Flugleiða i
Cargolux hefðu reynt að kaupa
Flugleiðir Ut úr félaginu.
Alfreð sagði, að allt væri i góðu
lagi með samstarfið i Cargolux.
Timaritið Frjáls verzlun skýrir
hins vegar frá þvi i siðasta hefti,
að vegna áhuga á að kaupa nýja
flugvél hafi Sviar og Luxemborg-
arar, sem eru með íslendingum i
félagi um Cargolux, viljað kaupa
Islendingana út. Hefði Flugleiðir
ekki haft aðstöðu til að taka á sig
þann hlut við flugvélakaupin, sem
hefði átt að vera. Frjáls verzlun
segir, að Islenzka samgönguráðu-
neytið muni hafa ætlað að hindra
kaup á nýrri þotu til vöruflutn-
inga Cargolux. Hafi það verið
ráðstefnu sem IATA hélt um þau
mál. í „Air Tariff” kemur fram
að hækkanir verða þetta frá 2%
og upp i 21%, nema hvað blaðið
greinir frá þvi að fargjöld frá
íslandi til meginlandsins hækki
um 70%.
Sveinn sagöi að sú hækkunar-
prósenta sem þarna væri til-
greind væri mismunur á skráðu
IATA-gengi dollarans, sem væri
88 kr. ísl. og núverandi gengis
hans. Væri hækkunarprósentan
reyndar nú orðin 85% eftir siðustu
hækkanir dollarans.
Sveinn kvað mörg flugfélög
eiga i erfiðleikum vegna oliu-
kreppunnar og geysilegrar verð-
bólgu á öllum sviðum. Hafa þau
gjöld sem IATA hefur yfirleitt
ákveöið til tveggja ára fram i
timann ekki staðizt, og nú mun
ákveðið að fargjöld verði endur-
skoðuð miku oftar. Ýmis flug-
végna rikisábyrgða á lánum, sem
Flugleiðir hafa nýlega tekið til að
festa kaup á tveimur farþegaþot-
um, sem Flugleiðir hafa haft á
leigu.
Jóhannes Einarsson fram-
'kvæmdastjóri flugrekstursdeild-
ar Flugleiða sagði i viðtali við
Dagblaðið, að Cargolux væri að
ljúka við gerð leigukaupsamnings
á flutningaþotu i stað flugvélar,
sem félagið hefði haft á leigu.
Nýja vélin yrði afhent 1. október.
Flugleiðir eiga einn þriðja i
Cargolux. Það væri ósk allra,
sagði Jóhannes, að sú skipting
héldi áfram og ekkert þvi til
fyrirstöðu á þessu stigi. Rekstur
Cargolux hefði gengið mjög
þokkalega i ár. Reist hefði verið
nýtt flugskýli á árinu og bUizt við,
að reksturinn yrði i járnum fyrir
árið. —HH
félög og ferðaskrifstofur hafa
orðið að innheimta svokallað
„surcharge” eða viðbótargjald af
farþegum, sem keypt hafa miða
með löngum fyrirvara. Er það hin
ört stigandi verðbólga sem þvi
veldur.
Auk fargjalda munu farmgjöld
I öllum flokkum einnig hækka 1.
nóvember. — ASt
BÍLLINN
HLAÐINN
KJÖTVÖRUM
VAR HORFINN
Einn af Utkeyrslumönnum hjá
Sláturfélagi Suðurlands varð
heldur undrandi er hann i gær-
morgun kom Ut Ur SS--bUðinni i
Aðalstræti og komst að þvi að
bill hans, hlaðinn-pylsum, farsi
og öðrum kjötvörum, var
horfinn sporlaust.
Þegar haft var samband við
lögregluna Ut af hvarfi bilsins
kom i ljós, að lögreglan hafi
fjarlægt bilinn. Var það gert Ut
af þvi að bilstjórinn hafði gerzt
of nærgöngull við einn af
viðkomustöðum SVR. Var
ekkert verið að biða eftir bil-
stjóranum, en billinn tekinn.
Það fengu þvi allir pylsurnar
sinar og farsið, þó svolitil töf
yrði á. —ASt.
Froskmenn
fundu ekkert
Enn er leit haldið áfram að
Gunnari Ragnarssyni frá
Vikurgerði I Fáskrúðsfiröi. 1
gær voru fjörur gengnar eins
og gert hefur verið dag hvem
alla vikuna og froskmenn tóku
einnig þátt i leitinn Hún bar
engan árangur.
—ASt
frjálst, úháð daghlað
Föstudagur 26. september 1975.
Hríðarmugga
ó Akureyri
Þrir smáárekstrar urðu á
Akureyri i gær en i engu til-
fellanna var um alvarlegt tjón
eöa slys að ræða. Hriðar-
mugga var á Akureyri I
morgun og grátt niður í byggð,
en snjór bráðnar fljótt á
götunum niðri I bænum. Mikill
munur er alltaf á færð niðri á
eyrinni og á götum uppi á
brekkunum.
—ASt
Volkswagen-bíllinn
ónýtur eftir
Harður árekstur varð i
morgun kl. 7.45 á mótum
Hringbrautar og Meistara-
valla. Volkswagen bifreið var
ékið suður yfir Hringbraut inn
i Meistaravelli, en Bronco-
bifreið kom á mikilli ferð
austur eftir Hringbrautinni.
Skipti það engum togum að
hUn lenti I hægri hlið Volks-
wagen-bilsins. Ekki urðu slys
á ökumönnunum, sem voru
einir i bilum sinum, en Volks-
wagen billinn er illa farinn, ef
ekki ónýtur eftir.
—ASt.
Ekið ó lamb
ó Miklubraut
Það er nokkuð algengt að
ekið sé á búfé á vegum Uti, en
að slikt gerist á sjálfri Miklu-
brautinni er næsta fátitt. Þetta
skeði þó i gær rétt fyrir kl. 5.
Vörzlumaður búfjár var að
beiðni Árbæjarlögreglunnar
að eltast við kindur sem leitað
höfðu niður að Elliðaárvogi. t
rekstri hans hlupu kindur út á
Miklubrautina og lamb varð
þar fyrir bil. Varð að aflifa
það á staðnum vegna sára er
það hlaut.
Á þessum tima leita hross
og kindur mjög niður i byggð
og þarf Árbæjarlögreglan
mörgum köllum að sinna i þvi
sambandi. -r-ASt
Sjö fastagestir
inn úr kuldanum
Sjö fastagestir lögreglunnar
voru hirtir upp af miðborgar-
svæði lögreglunnar i nótt og
fluttir I hlýjuna i fangaklefun-
um. Annars var nóttin mjög
róleg hjá lögreglunni, engin
slys á fólki i umferðinni en
nokkrir minniháttar árekstr-
ar.
Hemlar biluðu
ó örlagastund
Hemlar biluðu i gær á fólks-
bifreið sem var að aka i bila-
stæði við' Útvegsbankann i
Kópavogi i gær.Afleiðingarnar
uröu þær að bifreiðin rann á
steinvegg. Skemmdir urðu
litlar enda bifreiðin á litilli
ferð, en tvær, kona er bilnum
ók og slúlka sem með henni
var i bilnum, voru fluttar i
slysadeild en meiðsli þeirra
voru litil og ekki alvarleg.
—ASt
Alfreð Elíasson:
Cargolux gerir leigu-
kaupsamning ó þotu