Dagblaðið - 07.10.1975, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 07.10.1975, Blaðsíða 3
Dagblaðið. Þriðjudagur 7. október 1975 3 Alþjóðlegt gjaldeyris- //SuTQil fer fram á íslandi Hér á landi eru nú staddir 3 menn frá Alþjóðagjaldeyris- stofnuninni. Hafa þeir átt viðræðufundi með forstöðu- mönnum islenzkra efnahags- stofnana og islenzkum ráðherrum. Er þessi heimsókn starfs- menna gjaldeyrissjóðsins til íslands samkvæmt reglum sjóðsins. Mæla þær svo fyrir, að þátttökulöndin séu sótt heim til viðræðna og úttektar, að minnsta kosti einu sinni á hverjum tveim árum. Aðildarlöndin eru um 150 talsins. Auk skýrslna, sem sjóðnum berast stöðugt, er leitazt við að efla gagnkvæm kynni starfsmanna sjóðsins og forvigismanna i efnahags- málum aðildarlandanna. Seinast komu þessir menn hingað i desember 1973. —BS 800 börn voru í Skóla- görðum Reykjavíkur HELDUR VAR HÚN RÝR UPPSKERAN Það varð rýr uppskeran I Skólagörðum Reykjavikurborgar I ár. Tölur um uppskeruna liggja enn ekki fyrir en Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri kvað uppskeruna hafa verið I lélegu meðallagi.Er það tiðarfarið sem mestu um ræður. 800 börn stunduðu ræktunar- störf i Skólagörðum Reykjavikur i sumar. Skólagarðarnir eru á 5 svæðum, i Laugardal, I gömlum Aldamótagöröunum, Breiðholti, Arbæ og á mótum Miklubrautar og Ásenda. Stærstu svæðin eru tvö þau fyrstnefndu, en nú horfir svo að Skólagarðarnir muni missa gömlu Aldamótagarðana vegna byggingar læknahúss I tengslum við LandspItalann.A.St. Við eðlilega notkun Týs og Ægis er svartolía 100 millj. kr. ódýrari en gasolía um i heimsókn hjá MAN-véla- framleiðendunum ásamt fulltrú- um frá Stálvik. Stálvik er nú að smiða tvo togara meö MAK-vél- um fyrir Islenzka aðila. Fékk Stálvik tilboð um aukatæki vegna svartoliubrennslu i þeim og nam viðbótarkostnaðurinn 16—18 millj. kr. samkvæmt tilboðinu frá Þýzkalandi og aukakostnaöi hér heima. Svartoliunefnd yfirfór áætlun- ina og gerði tillögu um öðruvisi hannað kerfi. Var sú tillaga lögð fyrir hina þýzku vélaframleið- endur i siöustu viku og sam- þykktu þeir kerfi Svartoliunefnd- ar og taka fulla ábyrgö á vélum togaranna eftir sem áður. Kerfi Svartoliunefndar kostar um 1/3 hluta þess umframkostnaðar sem upphaflega var talinn verða mið- að við gasoliubrennslu eingöngu. 1 þessu dæmi hafa tillögur Svartoliunefndar, teikningar og útreikningar staðizt nákvæma endurskoöun þýzkra framleið- enda og orðið til milljónasparnað- ar. Enginn hefur cnnþá vefengt út- reikninga hennar varöandi varð- skipin tvö sem eru meö vélar byggöar fyrir svartolíu en á vél- arnar er notuð gasolía, sem er 100 millj. kr. dýrari á hverju ári en svartolia. —ASt HAGSTÆÐ BIFREIÐAKAUP MEÐ SMÁAUGLÝSINGU: BÍLL FYRIR 40 ÞÚSUND og jafnvel hjólbarðarnir eru þess virði Hann Árni B jarnason auglýsti hjá okkur i Dagblaðinu eftir bil og tók fram að hann mætti ekki kosta meira en 50 þúsund krón ur. Auglýsingin bar þann árang- ur að hann fékk bifreið, Renault R-8 af árgerð 1964, og borgaði fyrir hana 40 þúsund krónur út i hönd. Með bilnum fylgdu sum- ardekk þau er undir bilnum voru og að auki ný negld snjó- dekk á felgum. Billinn er litið sem ekkert ryðgaður og ekkert hefur að honum fundizt. Arni fékk um 30 tilboð eftir auglýsinguna og reyndist þar margt sæmilegustu bilar þó vissulega hefði einnig verið þar talsvert af druslum. —BH Á myndinni sjáum við Árna hjá hinum ágæta bil sinum. (DB mynd Björgvin). NÚ SENDA ÞEIR BÓKINA HEIM! sú þjónusta Borgarbókasafnsins nýtur œ meiri vinsœlda „Bókaþjónustan er fyrir fatl- aða, blinda og ýmsar stofnanir, svo sem Sjálfsbjörg og Hrafn- istu.” Þetta segir Elfa Björk Gunn- arsdóttir bókasafnsfræðingur en það hefur nú verið möguleiki siðan i mai i fyrra að fá bækur heimsendar. Elfa Björk kemur alltaf i heimsókn til viðkomandi og rabbar við hann. „Það er alltaf auðveldara að tala við fólk i sima þegar persónulegt sam- band er komið á,” segir hún. Það eru venjulegar svartlet- ursbækur, sem eru i útláni fyrir fatlaða og langtimasjúklinga, sem lokaðir eru inni á heimilum sinum og geta ekki farið út. Starfsemin er jafnt fyrir þá yngri sem þá eldri og hún eykst með degi hverjum. Þá er lika það sem kallaö er 50% þjónusta. Kvað Elfa Björk það spara heilmikla vinnu hjá þeim sem þurfa ekki að keyra bækurnar heim. Þá væri gengið frá bókapökkunum en einhver af ættingjum eða vinum við- komandi sækti bækurnar. Svo eru það talbækurnar fyrir hina blindu og sjóndöpru. Slikt lánar Blindrafélagið og Blindravinafélagið einnig. Sú starfsemi er rekin fyrir allt landið öfugt við útlán svartlet- ursbókanna, sem aðeins er fyrir höfuðborgarsvæðið. Talbækur eru spólur, sem les- ið hefur verið inn á. Bæði kass- ettur og stór bönd. Elfa Björk segir okkur að þau séu mörg ó- leyst vandamálin við útlánin á þeim. Bæði sé, að ekki er úr nema um 100 bókatitlum að velja og svo eru það margir sem ekki eiga kassettu- eða segulbandstæki til þess að geta notað þessa þjónustu. Hún sagði að Hrafnista hefði keypt nokkur taéki, sem vist- menn gætu fengiö að láni. Þá hefði kvennadeild Reykjavikur- deildar Rauða krossíns nýlega keypt heilmikið af kassettu- tækjum, sem gjöf til sjúkrahús- anna. Elfa Björk benti á að það væri tilvalin gjöf og vel metin þegar menn veldu gjöf handa blindum eða sjóndöprum að gefa kass- ettutæki. EVI Alltaf eykst starfsemin i bókaútlánunum þar bilsins. Ljósm. Björgvin. sem bækurnar eru sendar heim til viðkomandi. Þetta er Haukur Sveinsson biistjóri bóka- I 3 i r , | I ’■* i I m * mm> ^ir ' j ÓTAMINN HÁHYRNINGUR ÓSKAST í KAUPFÉLAGINU „Lifandi háhyrningur ósk- ast,” segir i auglýsingu sem sett hefur verið upp i sölubúð Kaup- félags Austur-Skaftfellinga á Höfn i Hornafirði. Boðnir eru 10 þúsund dollarar fyrir dýrið. Undir auglýsinguna ritar nafn sitt franskur maður, Grandiere, sem gefur upp heimilisfang á mb. Sigurvon. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir til að koma lifandi háhyrningi til fyrirhugaðra heimkynna, hefur það mistekizteins og lesendum DAGBLAÐSINS er kunnugt. Enda er auglýsingin ennþá uppi i Kaupfélaginu á Höfn. Væntan- lega er átt við ótaminn háhyrn- ing þar sem tamdir háhyrning- ar eru taldir fimm sinnum meira virði en þarna er boðið. —BS—

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.