Dagblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 8
Dagblaðið. Miðvikudagur 14. janúar 1976.
**%ér^m
m *»■
W#*W' - ***
T HVER Á AÐ BORGA,
EIGA OG REKA KROFLU OG
BYGGDARLÍNUNA NORDUR
Enn er óljóst hver á að borga,
eiga og reka Kröfluvirkjun og
sama er að segja um byggðar-
linuna norður, eða „hundinn”
eins og hún er gjarnan kölluð.
Jakob Björnsson, orkumála-
stjóri, staðfesti i viðtali við DB
að þetta væri staðan nií, en
heimild værifyrirþviílögum að
Norðurlandsvirkjun ættiog ræki
virkjunina. Norðurlandsvirkjun
er hins vegar ekki til en nefnd
starfar að könnun á grundvelli
stofnunar hennar. Að sögn
Jakobshafa sams konar nefndir
verið stofnaðar fyrir Vestfirði
og Austurland og er tilgangur
þeirra að koma á samhæfingu
orkumála i landshlutunum og
jafnvel að koma á einni stofnun i
hverjum landshluta, likt og
Landsvirkjun er á SV-landi.
Að sögn Jakobs stafar þessi
óvissa einkum af þvi að skipu-
lag raforkumála á landinu hefur
verið i deiglunni siðan 1972, og
eru hugmyndir um nýtt skipu-
lag ekki fullmótaðar enn.
Nefndir hafa unnið að þvi verki
og munu einhverjar hugmyndir
vera farnar að berast ráðuneyti
þar um.
—GS
Deildarstjóri
varnarmóla-
deildar:
„TRÚI EKKI, AÐ ÞEIR
FELIHÉR KJARNAVOPN"
„Hér eru engin kjarnavopn,”
sagði Páll Asgeir Tryggvason,
deildarstjóri i varnarmáladeild
utanrikisráðuneytisins, i morg-
un. „Enda er það yfirlýst stefna
islenzku stjórnarinnar, að svo
sé ekki.”
Páll kvaðst ekki búast við
slikum ódrengskap af banda-
riska varnarliðinu, að það væri
að fela kjarnavopn á íslandi,
enda sæi hann ekki, hvaða gagn
þvi væri að þvi. Ef kjarnavopn
ætti að nota, ættu að vera ein-
hvers konar skotpallar fyrir
þau. Það væru mannvirki, sem
ekki mundu leynast. Páll
kvaðst, vegna frétta i Þjóðvilj-
anum einum blaða annað veifið,
hafa frá einum tima til annars
formlega spurt varnarliðið,
hvort það hefði kjarnavopn
og svarið jafnan verið neitandi.
Kjarnavopn, sem geymd væru,
gætu Bandarikjamenn betur
geymt heima hjá sér eða i her-
skipum og flugvélum en að fela
þau hér á landi i óþökk is-
lenzkra stjórnvalda og heimild-
Axarfjörður /
Oxarfjörður
- HVORT ER RÉTTARA?
í fréttum af jarðskjálftunum
Noröanlands hefur æ oftar
heyrzt koma fyrir staðarheitið
Oxarfjörður. Þetta er sami
fjörðurinn og er merktur Axar-
fjörður á landakortum.
Skýringin á þessari breytingu
nafnsins er sú, að öxarfjörður
er upprunalegri mynd en Axar-
fjörður. tbúa við fjörðinn
greinir á um hvort sé réttara og
nota þess vegna bæði nöfnin,
samanber öxarfjarðarhreppur
við Axarfjörð.
Axarfjarðarmyndin er fyrst
talin koma fyrir vegna mis-
skilnings danskra landmælinga-
manna. Og þar sem allt er talið
vera mállýti, sem frá dönskum
er komið, heyrist nú eldri
myndin æ oftar i fjölmiðlum.
öxarfjörður skal hann heita
heillin.
—AT—
EINAR ARNALDS HÆSTARETTAR-
DÓMARI FÆR LAUSN FRÁ EMBÆTTI
Forseti tslands hefur, þann 8. Einari Arnalds hæstaréttardóm-
þessa mánaðar, samkvæmt til- ara lausn frá embætti frá 1. marz
lögu dómsmálaráðherra, veitt að telja, samkvæmt ósk hans.
Luns mun „þrýstq að"
íslenzku stjérninni
Framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, dr. Joseph
Luns, sem væntanlegur var um
hádegisbilið, mun reyna að
þoka til afstöðu Islendinga i
landhelgisdeilunni, samkvæmt
fréttum frá Brussel.
Luns mun kanna, hvort mögu-
leikar séu á að hefja samninga-
viðræður að nýju. Diplómatar i
höfuðstöðvum NATO telja, að
hann muni reyna að fá íslenzk
stjórnvöld til að stöðva klipp-
ingar og önnur afskipti varð-
skipa af brezkum togurum, sem
véiða innan landhelgi. Takist
honum þetta, muni hann geta
fengið brezk stjórnvöld til að
kalla herskipin út fyrir 200
milurnar og hefja að nýju
beinar viðræður við Islendinga.
Talið er vist, að Luns muni
reyna að fá islenzku rikisstjórn-
ina til að falla frá þeirri fyrir-
ætlun að slita stjórnmálasam-
bandinu við Bretland. Verði
stjómmálasambandinu slitið,
muni starf Luns verða örðug-
ara, segja diplómatar i Brussel.
Ekki er enn ákveðið, hvort
Luns fer til London eftir viðræð-
urnar hér eða aftur til Brussel.
Bretar hafa verið hálffúlir yfir
Islandsför hans. Það mun fara
eftir þvi, hvaða árangri Luns
telur sig hafa náð i Islandsferð-
inni, hvort hann fer næst til við-
ræðna við brezku stjórnina.
Luns mun i dag ræða við Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra
og ólaf Jóhannesson, sem ann-
ast starf utanrikisráðherra i
forföllum Einars Ágústssonar.
Hann mun eiga fund með allri
rikisstjórninni i fyrramálið.
Frekari viðræður hafa ekkí ver-
ið ákveðnar enn, en
Reuter-fréttastofan telur, að
Luns muni eiga viðræður við
forystumenn stjórnarandstöð-
unnar. Annað kvöld býður rikis-
stjórnin honum sjálfsagt til
kvöldverðar, en burt fer hann á
föstudagsmorgun.
—HH