Dagblaðið - 10.02.1976, Qupperneq 5
Dagblaðið. Þriðjudagur 10. febrúar 1976.
5
Vatnsmiðlun tryggði rekstur
loðnuverksmiðjanna á Austfjörðum
Olían á dísil-
stöðvarnar
kostar 14
milljónir á viku
„Ödáðavötnin éru okkar gullforði,”
sagði Erling Garðar Jónason rafveitu-
stjóri á Egilsstöðum í viðtali við Dag-
blaðið. „Við höfum geymt hann til
loðnuvertíðarinnar vegna verksmiðj-
anna niðri á fjörðum og nú snúast hér
öll hjól sem snúizt geta,” sagði Erling
Garðar.
Hann kvað Lagarfossvirkjun hafa
verið harla vatnslitla frá því í septem-
ber og frá því í nóvember hefur verið
þurrkur og frost bæði á vatnasvæði
hennar og Grímsárvirkjunar.
Lagarfossvirkjun tók til starfa í fyrra
og þá sem alger rennslisvirkjun. Koma
átti fyrir fjórum lokum í stíflunni, þar
af einni þegar í haust er leið. Á þessu
varð töf og komst fyrsta lokan ekki í fyrr
en í janúar sl.
í vatnsskortinum, sem verið hefur
undanfarið, hafa dísilvélar verið
notaðar, þar af tvær gastúrbínur. Til
þessara stöðva hcfur þurft 450-500
þúsund lítra af olíu á viku, og vikulegur
kostnaður því orðið um 14 milljónir
króna.
Heldur hefur hlýnað í veðri undan-
farið en ekki rignt. Verksmiðjurnar nota
nú um 20% af öllu aflinu sem framleitt
er til raforku en þegar nýja verksmiðjan
í Neskaupstað tckur til starfa í næstu
viku bætist við þörf fyrir 10% til viðbót-
ar. Að óbreyttu veðurfari nægir vatnið í
Ödáðavötnum til að fullnægja þörf
verksmiðjanna í 15-20 daga. Komi telj-
andi frost ódrýgist vatnið nokkuð þar
sem Ódáðavötnin liggja suður al
Skriðdalnum í um 40 km fjarlægð frá
rafstöðinni. Aftur á móti er ekkert
vandamál fyrirsjáanlegt ef hann fer að
rigna. —BS.
Sala undanrennu
eykst mjög
Smjörfjallíð er
nú 328 tonn
A Islandi seldust 49 milljónir og 900
þúsund lítrar af nýmjólk á sl. ári. Var
það aukning um 6,4% frá árinu áður.
Hins vegar nam innvegin mjólk til allra
mjólkursamlaga landsins 11,5
milljónum kg og er það 3,8% minna en
árið áður. Sem nýmjólk eru því ekki
seld nema um 44% þeirra mjólkur sem
tihmjólkursamlaganna berast á árinu.
Af rjóma seldust á sl. ári 1,2 milljónir
lítra. Er það aukning um 1.4%.
Af skyri seldust 1 milljón og 700
þúsund kg. Er það samdráttur í skyr-
sölu um 2.1%.
þúsund kg. Hins vegar voru til birgðir
af smjöri fyrir þannig að smjörbirgðir
eða „smjörfjall” í eigu landsmanna er
328.000 kg.
Af mjólkurostum voru framleidd
1973 þúsund kg og er það 104.000 kg
minna en árið áður. Veruleg aukning
varð hins vegar í sölu osta. Seldust
1163.000 kg og er það aukning um
7,8%. Útflutningur á ostum varð 42%
minni en árið áður. Út voru flutt 588
tonn af ostum en útflutningurinn var
1017 tonn árið áður.
Veruleg aukning varð í sölu
undanrennu eða 15,8%. Seldust 1,3
milljónir lítra.
Á árinu voru framleidd 1520.000 kg
af smjöri en salan var 1.492.000 kg.
Smjörfjall ársins er því ekki nema 28
íslendingar drukku 491 þúsund lítra
af súkkulaðimjólk og hefur hún náð
miklum vinsældum. Þá seldust 45 tonn
af bræddum ostum en það er meðal
nýjunga á markaði hér. Sala mysings
jókst um 21,6% og nam 54 þúsund kg.
ASt.
KRAFLA'
HEITAVATNSLINDIN
ER DÆLUBRUNNUR
„Það eru helber ósannindi að ein-
hver heitavatnslind hafi komið í ljós
undir gólfi stöðvarhússins og
streymi þar óhindrað um öll gólf,”
sagði Þorgils Axelsson, byggingar-
stjóri við Kröflu, í viðtali við Dag-
blaðið. „Sannleikurinn er sá, að við
vorum beðnir að dýpka dælubrunna
undir húsinu. Sprengdum við
brunnana niður og komum þá niður
á þrjár heitavatnsæðar og er ein
þeirra heitust, eða um 58 gráður.”
Sagði Þorgils að síðan hefði verið
gengið frábrunnunum,steypt yfir þá
og komið fyrir rörum í gegnum
steypuna til þess að geta fylgzt með
hitastigi vatnsins sem þarna væri
undir.
Þorgils sagði að framkvæmdir við
stöðvarhúsið gengju eftir áætlun,
búið væri að steypa allt gólfið og
þakið, eins og ráðgert hefði verið.
— HP.
Raðhús
Stórt og glæsilegt raðhús, alls um
300 ferm. á tveim hæðum Fallegt
útsýni.
Húsið skiptist þannig:
Neðri hæð: Stórt þvottaherb.
með innréttingum, geymsla,
gestasnyrting, skrifstofa, hobbý-
herb. og tvöfaldur bílskúr.
Efri hæð: eldhús, borðstofa, stór
stofa með arni, 3 góð svefnherb.,
Fasteignasalan
BLaugav«gi 18a
simi 17374
Kvöldsími 426IS.
mikið skáparými, mjög stórt og
vandað baðherb. með inn-
réttingum.
Hús í toppklassa.
Höfum jafnan kaupendur að
flestum stœrðum fasteigna
Bátasmíðar i Nauthólsvík
Innritun í bátasmíðar stendur yfir.
Starfsstaður: Nauthólsvík.
Starfstími : Laugardagar.
Starf hefst: 14. febrúar.
Bátstegund: OPTIMIST
Verð: 25.000 kr. (efni) -|-námskeiðsgjald.
Námskeið i siglingafrœðum
og meðferð seglbáta
Námskeið fyrir félaga í Siglunesi.
Starfsstaður: Fríkirkjuvegur 11.
Starfstími: Fimmtudagar kl. 18—19.30
Starf hefst: 12. febrúar.
Verð: kr. 500.—
Athygli er vakin á því að ofangreindir
starfsþættir eru ekki síður fyrir stúlkur en
pilta.
Innritun og nánari upplýsingar á skrifstofu
Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 11
— Sími 15937.
ÆSKULÝÐSRÁÐ
REYKJAVÍKUR
SÍMI 15937
Salon Veh óskar eftir
hárgreiðslusveini
frá 1. apríl. Upplýsingar
í síma 85305 og 21849
Smurbrauðstofan
BJORIMIIMIVi
Njálsgötu 49 - Sími 15105
2ja—3ja herb. íbúðir
í Hlíðunum, við Vesturgötu,
Hjarðarhaga (með bílskúrsrétti),
Njálsgötu, í Kópavogi, Hafnar-
firði og víðar.
4ra—6 herb. íbúðir
í Eskihlíð, Bólstaðarhlíð, Hraun-
bæ, við Hvassaleiti, Skipholt, í
Heimunum, við Safamýri, í
vesturborginni, í Kópavogi.
Breiðholti og víðar.
Einbýlishús
og raðhús
NÝ — GÖMUL — FOKHELD.
Óskum eftir öllum
stærðum íbúða á sölu-
skrá.
Fjársterkir kaup-
endur að sérhæðum,
raðhúsum og einbýlis-
húsum.
íbúðasalan Borg
Laugavegi 84. Sími
14430.
ÞURF/Ð ÞER H/BYU
Miðvangur, Hafn.
2ja herb. íbúð á 7. hæð í háhýsi i
norðurbænum. Stórkostlegt
útsýni.
Alfaskeið — Hafn.
2ja herb. íbúð. Falleg íbúð.
Kópavogsbraut
3ja herb. sérhæð. íbúðin er 2
stofur, 1 svefnherb., skáli, eldhús
og bað. Falleg íbúð.
Fossvogur
Einstaklingsíbúð, / 1. herb.,
eldunaraðstaða og snyrting.
Fossvogur
4ra herb. íbúð 110 ferm. Stórai
suðursvalir. Laus strax.
Hraunbær
4ra herb. íbúð, stofa, 3 svefn-
herb., eldhús,bað.
Kríuhólar
2ja herb. íbúð á 3. hæð.
Fossvogur
Raðhús með bílskúr. Hús og lóð
fullfrágengin.
Upplýsingar um þessa eign að-
eins veittar á skrifstofunni.
'Fokhelt raðhús
í Mosfellssveit með innbyggðum
bílskúr. Mjög hagstætt verð.
Höfum mjög fjár-
sterka kaupendur að
öllum stærðum íbúða,
tilbúnum eða í
smíðum.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastrœti 38.
Sírm 26277
Heimasimi 20178
mmiAÐiÐ
er
smáauglýsingablaðið'