Dagblaðið - 02.04.1976, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. APRlL 1976.
Líbanon:
7
\
Samið um tíu daga vopnahlé
— ástandið samt rn/ög ótryggt
Vopnahlé milli hinna stríð-
andi afla hægri og vinstri
manna í Líbanon mun taka
gildi á hádegi í dag. Bardag-
arnir sem staðið hafa að undan-
förnu í landinu, aðallega í
höfuðborginni Beirút, hafa
kostað þúsundir manna lífið og
skemmdir á húsum og öðrum
mannvirkjum hafa orðið
miklar. Hafa samningsaðilar
komizt að munnlegu samkomu-
lagi um að láta bardaga niður
falla í tíu daga á meðan þingið
kýs eftirmann Suleiman
Franjieh, forseta, sem flúinn er
úr höll sinni, óttast menn, að til
bardaga kunni að koma áður en
varir.
Kamal Junblatt, leiðtogi
vinstri manna, sem notið hafa
stuðnings Palestínumanna,
sagði, að nauðsynlegt væri, að
Franjieh segði af sér nú á
meðan vopnahlé stæði, ef hann
vildi tryggja áframhaldandi
frið.
ÖRY6GISRÁD SmtlNUÐU ÞJÓÐ-
ANNA FORDÆMIR SUÐUR-AFRÍKU
Suður-Afríka er ennþá eina
landið í Sameirtuðu þjóðunum,
sem öryggisráðið hefur fordæmt
fyrir „yfirgang” var tilkynnt þar í
gærkvöldi.
Ávíturnar í garð Suður-Afríku
voru samþykktar í ráðinu og þess
krafizt, að þeir greiði
Angólamönnum skaðabætur fyrir
spjöll þau, er hermenn Suður-
Afríku unnu, er þeir blönduðu
sér í átökin í landinu.
Samþykkt þessi er nýtt spor í
sögu samtakanna, enda þótt mörg
lönd hafi verið ávítuð fyrir að
beita vopnavaldi.
Fundur Efnahagsbandalagsríkja:
LÍTIÐ UM ÁKVARÐANIR
— mest um baktjaldamakk og nefndastörf
Mikill áhugi á tillögu Vestur-
Þjóðverja þess efnis að hegna eigi
þeim aðildarlöndum, sem brjóta
reglur bandalagsins setti mikið
mark á fyrri dag íundar Efna-
hagsbandalagsríkjanna í
Luxemburg.
í blóra við það, sem búizt var
við, setti forseti Frakklands
d’Estaing, ekki fram tillögur
sínar um aukið „flot” á gjald-
eyrismarkaðinum í Evrópu. Er nú
unnið að því að samræjna
skoðanir manna í nefndum og svo
auðvitað bak við tjöldin, en
undanfarið hefur berlega komið í
ljós, að sum Efnahagsbandalags-
ríkja eru verulega á eftir hinum í
þróun í efnahagslífinu.
I bardögunum siðustu daga,
þar sem notuð voru þung vopn
eins og fallbyssur og eld-
flaugar, hafði vinstrimönnum
orðið vel ágengt að undanförnu
og var jafnvel búizt við þvi, að
þeir myndu fara með sigur af
hólmi.
Ein helzta krafa þeirra er sú,
að mannaráðningar i æðstu
stöður í þjóðfélaginu fari ekki
eftir trúarbrögðum, eins og
verið hefur, þar sem kristnir
hægri menn hafa farið með
völdin.
Borgarastyrjöldin í Líbanon hefur kostað þúsundir mannslifa og
mikla eyðileggingu. Nú standa vonir til þess að vopnahléið leiðl til
samninga milli kristinna manna og múhameðstrúar. Almenningur
hefur auðvitað þjáðst mest eins og yfirieitt í styrjöldum og myndin
ber með sér.
Bandaríkin:
Reyncr að koma í veg fyrír
vopnasmygl til N-fríands
Tveir yfirmenn tollgæzlu í
Bandaríkjunum munu fara til
London til fundar við þarlenda
starfsbræður sína um möguleika
á því að stöðva vopnasendingar
frá Bandaríkjunum til handa
írska frelsishernum.
Munu þeir fara til Belfast og
kynna sér aðstæður þar, að sögn
talsmanna utanríkisráðuneytisins
í Washiiigton. Talið er að ferð
tollgæzlumannanna komi í kjölfar
fundar írska forsætisráðherrans
Cosgrave og Fords Bandaríkja-
forseta í siðasta mánuði. Þá létu
þeir frá sér fara yfirlýsingu þess
efnis, að þeir fordæmdu harðlega
valdbeitinguna i Norður-írlandi,
og hvöttu Bandaríkjamenn til
þess að láta af peninga- og
vopnasendingum til hins ólöglega
frelsishers, IRA.
Siðastliðin fjögur ár hafa 18
Vopnasmygl og fjárgjafir til handa írska freisishernum hafa marg- manns verið leiddir fyrir rétt og
faldazt á síðustu árum. Hér sjást brezkir hermenn leita að vopnum í dæmdir fyrir vopnasmygl til
bílum á N-írlandi. Irlands.
V-Þýzkaland:
Smíða loft-
skip til vöru-
flutninga
Vera kann að á næstu árum
muni þýzk loftskip verða reynd
í tilraunaskyni í lofti yfir
þróunarlöndunum, ef tilraunir
með þau, sem nú fara fram að
beiðni þýzkra stjórnarvalda,
leiða til jakvæðra niðurstaða.
Er smíði og notkun loft-
faranna aðallega hugsuð með
tilliti til vöruflutninga í heitu
löndunum, þar sem loftslag er
stöðugra. Vestur-þýzkt''fyrir-
tæki, sem framleitt hefur lítil
loftskip í auglýsingaskyni
undanfarin ár, mun hefja
tilraunir með þau yfir Afríku í
næsta mánuði.
Það er álit manna, að þau
geti komið ser vel við
vöruflutninga, þar sem ekki er
hægt að lenda venjulegum flug
vélum og ef vel tekst til, munu
stjórnarvöld ætla að láta byggja
loftskip, sem flutt getur allt að
30 tonnum og hefur 180 km
flughraða.
## ...................................................... "
Kaupmannahöfn:
Friðsamleg mótmœli tíu þósund
manns vegna Kristjaníumálsins
Um tíu þúsund manns mót-
mæltu harðlega þeirri ákvörð-
un danskra stjórnarvalda að
leggja niður borgarhverfið
Kristjaníu í gær. Fóru mótmæl-
in fram fyrir utan Þjóðþingið
og var þess krafizt að borgar-
hlutinn fengi að gegna hlut-
verki sinu áfram.
Þar hafa aðallega hafzt við
hippar, eiturlyfjaneytendur og
fólk með aðrar hugmyndir um
þjóðfélagið en fólk á almennt
að venjast. Því miður hefur alls
kyns glæpalýður fylgt í kjölfar
þessa fólks og því greip þjóð-
þingió til þess ráðs að leggja
staðinn niður á siðasta ári.
íbúar Kristjaniu, sem nú eru
700 talsins hafa fengið að vita,
að fari þeir ekki með góðu
verði valdi beitt, en í gær kom
fram tillaga á þiiiginu þess
efnis að lokað yrði í áföngum.
Um 700 manns hafa tekið sér bólfestu í þessu hverfi í
Kaupmannahöfn, þar sem áður voru herbúðir og sett á stofn
samfélag, sem ekki fvlgir reglum þjóðfélagsins, sem fyrir utan er. 1
kjölfar þeirra hugm.vnda hefur fylgt alls kvns útigangslýður,
eiturlyfjaneytendurog glæpamcim. Því hel’ur nú verið afráðið að
ieggjá Ki isljaniu mður, þrátt lyrir mótmæli.
Erlendar
fréttir
Róssar
skamma
Egypta
Egyptar hafa harðlega
neitað ásökunum Rússa þess
efnis, að þeir hafi virt vin-
skap þeirra að vettugi, með
því að halda ekki gerða
verzlunar- og vináttusamn-
inga.
Anwar Sadat forseti sagði
í þinginu í Kairó nú fyrir
skömmu, að augljóst væri,
að Sovétríkin væru að reyna
að auka áhrif sín í Egypta-
landi, með því að reyna að
troða upp á þá vopnum.
Skammir Rússa vegna um-
mæla Sadats átti sendiherra
þeirra i Kairó að afhenda
varaforsetanum. Murbarak,
en hann neitaði að taka við
orðsendingunni vegna þess,
að hér væri ekki urn venju-
legan diplómatískan hátt að
ræða. auk þess sem málið
fjallaði um innanríkismál-
efni Egypta.
Undanfarið hefur andað
köldu á milli þjóðanna
tveggja, þö vel hafi farið á
með þeim i styrjöldunum við
Gyðinga en Egvptar eru
siðan stórskuldugir Rússum
vegna hergagnakaupa.